Læknablaðið - 01.03.2014, Side 54
182 LÆKNAblaðið 2014/100
í þessum bransa tónlistarinnar?“ spyr Elín
Edda blaðamann og svari nú hver fyrir sig.
Tók próf í sendiráðinu í parís
Hún segir að þó hún hafi alltaf vitað að
Björk væri fræg, hafi hún ekki gert sér
grein fyrir hversu stórt nafn hún raun-
verulega er í hinum alþjóðlega tónlistar-
heimi.
„Björk er frábær tónlistarmaður og hún
er í rauninni miklu stærra nafn í tónlistar-
heiminum en ég held að fólk hér heima
geri sér grein fyrir. Það er alveg sama hvar
í veröldinni maður er, allir þekkja Björk,
tónleikarnir seljast upp og hún er dáð af
þeim sem koma að sjá hana.“
Kostirnir við skipulag tónleikaferða
Bjarkar segir Elín Edda vera að hún haldi
yfirleitt nokkra tónleika á sama stað.
Námið í læknisfræðinni hafði í rauninni
alltaf forgang en með góðu skipulagi, aga
og sveigjanleika tókst læknanemunum
tveimur að klára sig af hvorutveggja.
„Biophiliu-verkefnið er þannig upp-
byggt að Björk þróar það stöðugt, hún
skipuleggur tónleikaferðir sínar þannig að
hún heldur nokkra svokallaða „residency“
tónleika á sama stað, svo við fengum
oft tækifæri til að skoða okkur um, því
stundum voru nokkrir dagar á milli tón-
leikanna. Við gátum því farið í alls konar
útsýnisferðir og maður kynntist borgun-
um ágætlega. Annar kostur við þetta var
að ég gat stundað námið mitt samhliða,
með því að lesa á daginn.
Í febrúar 2013 var tónleikaröð í París
en á sama tíma vorum við í mjög stórum
kúrsum á þriðja árinu í meinafræði og
lyfjafræði. Ég gat samt ekki hugsað mér að
sleppa þessari ferð og þetta endaði þannig
að við Begga fórum báðar út og fengum
leyfi til að taka meinafræðiprófið í íslenska
sendiráðinu í París. Þetta var mjög undar-
legur tími, þar sem maður las á daginn og
söng á tónleikum á kvöldin. Kvöldið fyrir
prófið vorum við að syngja á tónleikum í
sirkustjaldi á eyju í París. Þetta var mjög
sérstök upplifun og frábært að Háskólinn
veiti þetta svigrúm. Daginn eftir prófið
byrjaði svo annar kúrs og við komum ekki
heim fyrr en daginn fyrir prófið í honum,
en þetta gekk allt saman upp með því að
nýta tímann vel.“
En við erum ekki alveg komin á leiðar-
enda ennþá því í maí - júní 2013 efndi
Björk til tónleikaferðar í Bandaríkjunum
og þá var auðvitað kallað í kórinn.
„Við vorum nokkrar vikur í San
Fransisco og Los Angeles en fórum líka
á tónlistarhátíðir í Chicago og Nashville.
Ég kláraði BS-ritgerðina mína á meðan
og náði að skila henni á réttum tíma, frá
Los Angeles. Seinna um sumarið fórum
við svo til Kanada og aftur til Banda-
ríkjanna og þaðan til Japan í þrjár vikur
og Taiwan. Biophiliu-verkefninu lauk
svo í fyrrahaust með tónleikum í Dublin,
London og Berlín. Formlegu lokatónleik–
arnir voru í London. Þar vorum við allar
24 stelpurnar samankomnar í fyrsta sinn
í mörg ár og tónleikarnir teknir upp til
útgáfu á DVD-diski. Þarna upplifðum við
vissulega blendnar tilfinningar, enda var
ljóst að þetta verkefni væri á enda og viss
kaflaskipti í lífi okkar allra. Í London tók
ég annað próf í sendiráðinu og þá fannst
mér það bara sjálfsagt, búin að gera þetta
áður,“ segir hún létt í bragði.
Hún segir þetta vera reynslu sem hafi
bætt hana á ýmsan hátt en líka áminning
um að þrátt fyrir strangt nám sé mikil-
vægt að sinna öðrum hugðarefnum líka.
„Þetta er tækifæri sem gefst ekki nema
einu sinni á ævinni og mér finnst þetta
hafa veitt mér innsýn í menningu heims-
ins á þann hátt að ég er þroskaðri og sjóuð
í samskiptum við fjölbreyttan hóp af fólki.
Gerir mig vonandi að betri lækni í fram-
tíðinni,“ segir Elín Edda Sigurðardóttir
og er þar með rokin af stað, því skyldan
kallar þegar komið er í starfsnám á deild á
Landspítalanum.
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Elín Edda og Bergljót Rafnar í Sintra, Portúgal sumarið
2012. Ljósmynd/Elín Edda.
„Þessi mynd var tekin í London í september 2013 af okkur öllum 24 stelpunum, þegar Biophiliu-verkefninu var að
ljúka,“ segir Elín Edda. Ljósmynd/Saga Sig.
Benidette
– Getnaðarvörn til inntöku
Barneignir
ekki á dagskrá
Hver tafla inniheldur 150 µg af desógestreli
og 20 µg af etinýlestradíóli.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
3
1
6
0
8
1