Læknablaðið - 01.03.2014, Blaðsíða 56
184 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Frá og með 1. janúar 2014 býðst öllum
konum á aldrinum frá 23 ára til 65 ára leg-
hálskrabbameinsleit á þriggja ára fresti.
Áður var leitað á aldrinum frá 20 ára til 69
ára á tveggja ára fresti. Þessar breytingar
og fleira hefur læknunum Kristjáni Sig-
urðssyni og Reyni Tómasi Geirssyni
orðið tilefni til greinarskrifa í febrúarhefti
Læknablaðsins. Tilgangur þessarar greinar
er ekki að standa í ritdeilu um skoðanir
greinarhöfunda heldur að varpa ljósi á
þær faglegu forsendur sem liggja að baki
breytingum á leghálskabbameinsleitinni.
1. Flestir fræðimenn eru sammála um
að skimun fyrir krabbameini hjá ein-
kennalausum einstaklingum sé flókin
og leggja áherslu á að leita verði jafn-
vægis milli þess að gera sem mest
gagn og valda sem minnstum skaða.
Fræðimenn eru sammála um að það sé
óraunhæft að skimun geti komið í veg
fyrir öll krabbamein.
2. Frumubreytingar og leghálskrabba-
mein orsakast af HPV-sýkingum sem
smitast við kynlíf. Um 80-90% HPV-
sýkinga eru meinlausar og ganga til
baka á einu til tveimur árum. Ef leit
hefst of snemma og/eða er of þétt er
konum ekki gefinn kostur á að losna
við HPV-sýkinguna af sjálfsdáðum.
Það getur valdið ofgreiningum og
oflækningum. Um 10% HPV-sýkinga
geta orðið viðvarandi og eru konur
með viðvarandi há-áhættu HPV-
sýkingu í mestri hættu á að fá legháls-
krabbamein.
3. Algengi og aldursdreifing HPV (Hum-
an Papilloma Virus), sem veldur frumu-
breytingum og leghálskrabbameini,
er með svipuðum hætti hér á landi
eins og í nágrannalöndunum. Þessi
staðreynd sýnir að engin fagleg rök
eru fyrir því að aldursmörk og millibil
leitar eigi að vera með öðrum hætti hér
á landi en erlendis.
4. Harald zur Hausen uppgötvaði tengsl
HPV og leghálskrabbameins árið 1984
og hlaut Nóbelsverðlaunin í læknis-
fræði árið 2008. Núverandi skipulag
leitarinnar hér á landi var nánast
óbreytt frá 1988. Síðan hefur mikil
þróun átt sér stað varðandi þekkingu
á sjúkdómsgangi leghálskrabbameins.
Breytingarnar nú eru fyrst og fremst
gerðar með hliðsjón af þessu.
5. Leitarleiðbeiningum var nýlega breytt í
Bandaríkjunum en þar hófst leit við 20
ára aldur og var árlega en hefst nú við
21 árs aldur og er á þriggja ára fresti.
Á Norðurlöndunum hefst leit við 23
ára eða 25 ára aldur. Í Englandi var
leitaraldur hækkaður úr 20 ára í 25 ára
2003 og sama var gert í Wales síðast-
liðið haust og verður gert í Skotlandi
um næstu áramót. Vegna aukinnar
þekkingar á leghálskrabbameini hafa
nágrannalöndin öll verið að hækka
aldurinn þegar leit hefst og öll leita
þau á þriggja ára fresti að minnsta
kosti til 50 ára aldurs. Hvergi í ná-
grannalöndunum hefst leit við 20 ára
aldur, hvergi er millibil leitar tvö ár og
hvergi er millibil leitar lengra en þrjú
ár fyrir 50 ára aldur. Meðalaldur við
greiningu leghálskrabbameins er 45 ár
hér á landi.
6. Nánast undantekningarlaust er leit
hætt við 65 ára aldur á Vesturlöndum.
Á 48 ára tímabili, 1964-2012, greindust
40 konur með leghálskrabbamein á
aldrinum 66 ára til 69 ára. Ein þeirra
hafði mætt reglulega í leghálskrabba-
meinsleit.
7. Engar breytingar voru nú gerðar hér
á landi á leghálskrabbameinsleit hjá
konum sem eru í eftirliti vegna for-
stigsbreytinga eða fyrri aðgerða.
8. Breytingar á leghálskrabbameins-
leitinni um síðustu áramót voru bornar
undir sérfræðinga í illkynja kven-
sjúkdómum á Landspítala. Þær voru
kynntar á samráðsfundi Leitarstöðvar-
innar og Félags íslenskra fæðingar- og
kvensjúkdómalækna 27. nóvember
2013 og að honum loknum ríkti ein-
hugur um þær. Hvorugur greinarhöf-
unda var viðstaddur fundinn.
9. Breytingarnar voru samþykktar af
Velferðarráðuneytinu og Sjúkratrygg-
ingum Íslands að fenginni umsögn
Embættis landlæknis og studdar af
stjórn Krabbameinsfélags Íslands.
10. Í fjöldamörg ár hefur aðeins verið um
50% mæting í aldurshópnum 20-24 ára
en það hefur ekki leitt til aukningar á
fjölda krabbameina hjá konum undir
23 ára. Samkvæmt upplýsingum frá
Krabbameinskránni greindust þrjá
konur yngri en 23 ára með legháls-
krabbamein á tímabilinu frá 1964 til
2012.
11. Tíðni leghálskrabbameins er lág
hjá konum yngri en 24 ára eða um
1/24.000. Þetta rennir enn frekari stoð-
um undir þau faglegu rök að ekki sé
rétt að hefja leit að leghálskrabbameini
fyrir 23 ára aldur og þar með sé fylgt
því sem gert er á Vesturlöndum, að
Bandaríkjunum undanskildum.
12. Samhæfing á leit að brjóstakrabba-
meini og leghálskrabbameini, eins og
greinarhöfundar leggja mikla áherslu
á, virðist ekki styðjast við nein fagleg
rök og er hvergi skipulögð þannig.
Krabbameinsleit verður að byggjast á
faglegum forsendum miðað við bestu
þekkingu á hverjum tíma.
13. Það er samdóma álit stjórnar Félags
íslenskra fæðingar- og kvensjúkdóma-
lækna (FíFK) að ekki sé ástæða til að
gera grindarþreifingu við skimun fyrir
Er meira betra?
Um breytt skipulag leghálskrabbameinsleitar
kristján Oddsson
yfirlæknir Leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins
ko@krabb.is