Læknablaðið - 01.03.2014, Page 70
198 LÆKNAblaðið 2014/100
Úr fórum Læknablaðsins – 1915-2014
Þriðji árgangur
Læknablaðsins, 1917
■ ■ ■ Védís Skarphéðinsdóttir
Á fyrstu þremur árunum í sögu Læknablaðsins, 1915-1917, sátu í
ritstjórn þeir Guðmundur Hannesson, Matthías Einarsson og M.
Júlíus Magnús. Útgefandi er Læknafélag Reykjavíkur. Þessir ár-
gangar eru í föstum skorðum, 12 tölublöð og hvert blað ein örk, 16
blaðsíður, alls 192 blaðsíður. Fimm auglýsingar í hverju tölublaði,
á kápunni, og þar er auglýst tóbak, kryddað þorskalýsi, kodak-
myndavélar, rannsóknastofa í smásjárskoðunum, og Bókaverslun
Sigfúsar Eymundsson þar sem segir: Tímarit erlend og bækur lækna-
fræðilegs efnis útvegum vér greiðlega, sendið oss pantanir yðar.
Áberandi eru í blaðinu greinar um stéttarmál, umbætur á kjör-
um, að koma á tímaritafélögum sem myndu kaupa þýsk læknarit
sem væru send milli lækna.
Í marsblaðinu segir í Smágreinum og fréttum:
Heilbrigðisvottorð, svohljóðandi: „Ekkert að, alheilbrigð og öll líffærin
ósködduð“, gaf læknir nokkur ungri stúlku, sem var að sækja um atvinnu.
Svona gálauslega orðuðu vottorði er ekkert hægt að byggja á, því læknir-
inn fullyrðir hér meira en hann getur vitað.
Í sama blaði eru rakin skrifleg læknapróf sem haldin voru í
febrúar 1917:
Handlæknisfræði: Hvað er skilið við fractura intraarticularis?
Hverjar eru hinar helztu? Hver eru einkenni þeirra? Hvernig eru horfur
fyrir lækningu og hvernig á meðferðin að vera?
Lyflæknisfræði: Hvað getur valdið greftri í þvagi? Hvernig verður
hann fundinn í þvaginu? Hvernig verður ráðin bót á þessu meini með
lyfjum?
Réttarlæknisfræði: Henging. Hver eru útvoris og innvortis merki
hennar.
Væri hægt að leggja þessi próf fyrir nemendur 2014?
Það eru margar stórmerkar greinar um íslenska læknisfræði
í þessum þriðja árgangi blaðsins: um berkla, tvær eftir Sæmund
Bjarnhéðinsson um lækningatilraunir á Holdsveikraspítalanum í
Laugarnesi, Steingrímur Matthíasson sendir vel ættfærð, rekjanleg
og afar ítarleg sjúkratilfelli norðan úr Gudmanns Minde á Akur-
eyri, um mislingasmit, um dánarmein Íslendinga 1912, skýrsla
um manndauða á landinu 1735-1915 og rekur gulusótt, blóðsótt,
bólu, taksótt, hallæri og skyrbjúg, leiðbeiningar um rannsókn
meltingarfæranna eftir Halldór Hansen. Guðmundur Hannesson
opnar ýmsa glugga í austur og vestur, þýðir stuttar klausur úr
erlendum læknaritum, setur inn skýrslur og tölur um rekstur ís-
lenskra sjúkrahúsa og vitnar til Þjóðverja um hvernig best skuli
hagað skoðun lækna á skólabörnum. Hann er andríkur og inn-
blásinn og ekki annað hægt en hrífast með. Hér eru lokaorð hans í
grein í októberblaðinu um skólaeftirlitið: -
Skólalæknar hafa lengst af fengið störf sín illa borguð, og ekki vildi
eg skoða 5-6000 börn fyrir 500 mörk, eins og mér skilst að sumir skóla-
læknar í Berlín hafi gert. Hins er aftur að gæta, að til þess er hver læknir
í heiminn kominn, að hann hjálpi öðrum, verji þá þeim meinum, sem hjá
má komast, en lækni hin; með gómsætum lyfjum ef það nægir, með hníf
eða ferrum candens, ef þess þarf við, og ekki eingöngu einstaklinga, heldur
þjóðfélagið.
Fróður, röggsamur og einbeittur skólalæknir getur ætíð látið gott af sér
leiða. – Þau eru víst töluð til lækna orðin: Þér eruð salt jarðar, og ef saltið
missir sinn kraft, með hverju á þá að salta?
En langt ofar öllum krónum stendur meðvitundin um að hafa unnið
drengilega verk sinnar köllunar, látið gott af sér leiða, og gert heiminn
betri og farsælli en hann var, þó ekki sé nema í þeim litla verkahring, sem
íslenskum héraðslækni er trúað fyrir.
P
R
A
-1
3
-0
1
-9
0
,
O
k
to
b
e
r
2
0
1
3
Pradaxa er ætlað til fyrirbyggjandi meðferðar gegn heilaslagi®
og segareki í slagæðum hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif,
sem ekki tengist hjartalokum, með einn eða fleiri áhættuþætti*
*Einhvern tíma fengið heilaslag, tímabundna blóðþurrð í heila eða segarek í slagæð; Útfallsbrot vinstri slegils < 40%; Hjartabilun með einkennum, NYHA (New York
Heart Association) flokkur II; Aldur 75 ár; Aldur 65 ár og jafnframt eitt af eftirfarandi: sykursýki, kransæðasjúkdómur eða háþrýstingur≥ ≥
Pradaxa (dabigatran) leiðir til marktækt
minni hættu á dauðsfalli vegna æðasjúkdóms
samanborið við Marevan (warfarín)
® 1
Pradaxa (dabigatran) 150 mg N = 6.076
Marevan (warfarín) N = 6.022
Fj
ö
ld
i s
jú
kl
in
g
a
Heildarfjöldi dauðsfalla Dauðsföll vegna æðasjúkdóms
Grafið er unnið af Boehringer Ingelheim Danmark A/S eftir upplýsingum frá heimild 1
Heimild 1: Connolly et al. Dabigatran versus warfarin in patients with atrial fibrillation. N Engl J Med. 2009;361: 1139–1151
and Connolly et al. Newly identified events in the RE-LY trial. N Engl J Med. 2010;363: 1875–1876.
438
487
274
317
( =0,05)p
( =0,04)p
500
400
300
200
100