Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.01.2015, Page 45

Læknablaðið - 01.01.2015, Page 45
LÆKNAblaðið 2015/101 45 dagbækur fangelsisins og minnispunkta Sævars áttuðum við okkur á því að þetta voru trúverðugar lýsingar sem voru síðan staðfestar í ákveðnum atriðum af fanga- vörðum. Það eru því miklar líkur á því að Sævar hafi sagt satt og rétt frá. Athug- anir starfshópsins staðfestu því sumar af lýsingum Sævars og sem dæmi má nefna lýsti Sævar því að um tíma hefði ljós verið látið loga stöðugt, allan sólarhringinn, í fangaklefanum í Síðumúla. Einn af fanga- vörðunum staðfesti í viðtali við okkur að þetta væri rétt, hann hefði verið beðinn um að taka slökkvarann í klefanum úr sambandi.” Aðspurður um að sakborningar hafi verið beittir líkamlegu ofbeldi sagði Jón Friðrik, „Við vitum ekki til þess að lög- reglumennirnir hafi beitt sakborningana ofbeldi. Harðræðisskýrslan svokallaða lýs- ir hins vegar ofbeldi einstaka fangavarða gagnvart sakborningum en þó verður að halda því til haga að samkvæmt niður- stöðu Hæstaréttar er einungis viðurkennt eitt slíkt tilfelli þar sem yfirfangavörður Síðumúlafangelsisins sló Sævar utanundir við yfirheyrslur. Það kemur líka fram af lestri fangelsisdagbókanna að fangaverðir Síðumúlafangelsisins, og þá sérstaklega yfirfangavörðurinn, voru beinlínis þátt- takendur í rannsókn málanna, en dag- bækur Síðumúlafangelsisins eru mjög góð heimild um hvernig staðið var að rann- sókninni. Slíkt væri talið mjög alvarlegt brot á verkaskiptingu lögreglumanna og fangavarða í dag.“ Minnisvafaheilkennið og falskar játningar Eins og kunnugt er skrifuðu tveir sak- borninganna, Guðjón Skarphéðinsson og Tryggvi Rúnar Leifsson, dagbækur í einangrunarvistinni í Síðumúlafangelsinu, sem Jón Friðrik segir að hafi komið að góðum notum við rannsókn starfshópsins. „Sannleiksgildi þeirra er hægt að staðfesta með samanburði við dagbækur fangelsins. Þeir skrifuðu gjarnan í dagbækurnar hver heimsótti þá í klefann, lögreglumenn, prestar, lögfræðingar og hvað var að gerast í rannsókn málanna. Þetta er hægt að staðfesta með samanburði og er nánast undantekningarlaust rétt. Það er því varla hægt að draga í efa að dagbækurnar voru skrifaðar á þessum tíma en ekki eftir á. Það var mjög fróðlegt að skoða dagbók Guðjóns, en af henni höfðum við hvað mest gagn varðandi niðurstöðu okkar, því hann lýsir því einstaklega vel hvernig hann sannfærir sjálfan sig smám saman um að hann hafi framið glæp sem hann man ekkert eftir að hafa framið. Í upphafi furðaði hann sig á því hvers vegna hann dróst inn í þetta mál en smátt og smátt, eftir því sem leið á einangrunina og yfir- heyrslunum fjölgaði, velti hann því fyrir sér hvers vegna hann mundi ekkert eftir því að hafa framið glæpinn. Við tökum mjög skýra og afdráttarlausa afstöðu til játningar Guðjóns og teljum hana ótvírætt falska. Við höfum hins vegar ekki alveg jafn skýra mynd af hugarástandi og af- stöðu hinna sakborninganna. Við getum rökstutt að játningar þeirra hafi verið óáreiðanlegar en göngum skrefinu lengra varðandi játningu Guðjóns.” Um játningarnar almennt segir Jón Friðrik: „Strangt til tekið er varla hægt að kalla þetta játningar. Sakborningarnir samþykktu tilgátur lögreglumannanna og reyndu að fylla út í eyður sem þeir stilltu U M f J Ö l l U n O G G R E i n a R „Lögreglumennirnir virðast ekki hafa gert sér neina grein fyrir því hvað það er sem ræður því að einangrunarfangar játa eða neita sök og þarna voru gerð grundvallarmistök,” segir prófessor Jón Friðrik Sigurðsson um rannsókn Guð- mundar- og Geir- finnsmálanna.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.