Læknablaðið - 01.01.2015, Síða 48
48 LÆKNAblaðið 2015/101
U M f J Ö l l U n O G G R E i n a R
„Í hnotskurn erum við að endursemja
nálgun alls heilbrigðisstarfsfólks að
umönnun sjúklinga,“ segir Jason Stein
sem var sérstakur gestur á lyflæknaþingi
á dögunum og flutti athyglisvert erindi
um breytingar í vinnu- og verkferlum
sjúkradeilda.
„Við þurfum að spyrja okkur hvers vegna
við erum ekki að koma upplýsingum
nægilega vel á milli starfsmanna við
óbreyttar aðstæður og eftir því sem hrað-
inn eykst verður þetta að vandamáli sem
æ erfiðara er að yfirstíga,“ segir Stein og
kveður þetta að nokkru leyti afturhvarf
til þess tíma á sjúkrahúsum er sjúklingar
fengu persónulegri meðferð. „Með síaukn-
um kröfum um hraða hefur sjúklingurinn
orðið útundan í vissum skilningi og þetta
er viðleitni til að snúa þeirri þróun við en
jafnframt höfum við nýtt okkur nýjustu
aðferðir í breytinga- og verkefnastjórnun
til að standast kröfur nútímans um sjúkra-
húsrekstur,“ segir Stein. Hann segir
aðferðina ótvírætt hafa skilað árangri.
Morgunfundur með þátttöku allra
Jason Stein er yfirlæknir á lyflækninga-
deild Emory-háskólasjúkrahússins í
Atlanta í Bandaríkjunum og er jafnframt
yfirmaður gæðamála á því stóra sjúkra-
húsi. Hann hefur skipulagt og haft umsjón
með skipulagsbreytingum á fjölda sjúkra-
húsdeilda víðsvegar um Bandaríkin og
Ástralíu.
„Ef við berum saman hina hefðbundnu
meðferð og þetta módel, lítur hinn dæmi-
gerði morgunn á sjúkrahúsdeild þannig
út að starfsmenn eru að sinna sjúklingi
hver af öðrum, án þess að eiga skipuleg
samskipti sín á milli, og samskipti þeirra
við sjúklinginn eru tilviljanakennd og
eiga sér ekki stað samtímis. Okkar módel
byggir á því að allir starfsmenn sem sinna
Með því að hægja
á okkur aukast afköstin
– frá málþingi á lyflæknaþingi
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
nordic Specialist Course
in Palliative Medicine 2015-2017
lokadagur umsókna – 15.03.2015
Samnorrænt sérfræðinám lækna í líknarmeðferð
Lífið, samtök um líknarmeðferð á Íslandi hefur í samvinnu við norræn sérfræðifélög líknarlækna staðið fyrir sérfræðinámi í líknarmeðferð fyrir lækna frá
og með haustinu 2003. Námið er einungis ætlað þeim sem hafa lokið sérnámi í læknisfræði. Sjöunda námskeiðið hefst haustið 2015. Námið er tveggja
ára fræðilegt nám sem skipt er upp í sex 5 daga námskeið:
1. Introduction to palliative medicine and to course projects. Symptom management in palliative care. Þrándheimur, 21. – 25. september 2015.
2. The imminently dying. Audit in palliative care. Helsinki, 25. - 29. janúar 2016.
3. Communication I. Ethics. Teamwork. Malmö, 11. - 15. maí 2016.
4. Decision making in palliative medicine. Emergencies in palliative medicine. Complementary and alternative treatments. organisation of
palliative care in the Nordic countries. Teaching. Follow up on course projects. Bergen, 26. - 30. september 2016.
5. Communication II. Pain. Follow up on course projects. Kaupmannahöfn, 23. - 27. janúar 2017.
6. Management and organisation. Palliative care in non-malignant diseases. Presentation of research projects. Examination and evaluation.
Stokkhólmur, 24. - 28. apríl 2017.
Námskeiðunum fylgja heimaverkefni, þátttakendur þurfa að skila afmörkuðu rannsóknarverkefni og skriflegt próf er í lokin. Kennt er á ensku. Tveir
Íslendingar eiga þátttökurétt. Sjá nánar á vefsíðu: www.nscpm.org
Námskeiðskostnaður er alls 4800 evrur, auk húsnæðis og fæðis. Áhugasamir hafi samband við Valgerði Sigurðardóttur, yfirlækni líknardeildar Land-
spítala í Kópavogi, sem gefur allar frekari upplýsingar, sendir út umsóknareyðublöð og er tilbúin að aðstoða við styrkumsóknir. Sími: 543 6337/ 825
5018, netfang: valgersi@landspitali.is
Líknarlækningar eru viðkennd sérfræðigrein í Bretlandi, Ástralíu, Bandaríkjunum og Finnlandi, í nokkrum Austur-Evrópulöndum og í Asíu. Þær eru
viðurkenndar sem undirsérgrein í Noregi og Danmörku og verða það í Svíþjóð 2015. Námskeiðið spannar þá fræðilegu þekkingu sem krafist er fyrir
viðurkenningu líknarlækninga sem undirsérgreinar á Norðurlöndum. Sótt hefur verið til velferðarráðuneytisins um viðurkenningu líknarlækninga sem
undirsérgreinar á Íslandi.