Læknablaðið - 01.01.2015, Qupperneq 60
Ö l D U n G a D E i l D
afmælishátíð 20 ára
Læknafélags reykjavíkur 1929
Jón Sigurðsson svæfingalæknir sendi öldungasíðunni
þessar skemmtilegu myndir en þær eru úr fórum afa
hans, Jóns Kristjánssonar læknis (1881-1937).
Læknafélag Reykjavíkur var stofnað 18. október
1909. Eftirtaldir 9 læknar voru stofnendur: Guðmund-
ur Björnsson, Guðmundur Hannesson, Guðmundur
Magnússon, Jón Rósenkranz, Júlíus Halldórsson,
Matthías Einarsson, Sigurður Magnússon, Sæmundur
Bjarnhéðinsson og Þórður Thoroddsen. Fyrsti for-
maður félagsins var Guðmundur Magnússon 1909-1911
og einnig 1915-16.
Haustið 1929 var efnt til samsætis í tilefni af 20 ára
afmæli félagsins. Fjölrituð var vegleg dagskrá fyrir
samsætið. Í henni var að finna matseðil á frönsku og
lagaskrá tónleika er gestir nutu. Síðast en ekki síst
voru í skránni skopmyndir af 11 læknum. Af þeim
voru 8 formenn, þar af þrír stofnendur félagsins. Auk
formanna voru myndir af þremur stofnendum. Ekki
eru myndir af þremur látnum stofnendum: Guðmundi
Magnússyni, Jóni Rósenkranz og Júlíusi Halldórssyni
(allir látnir 1924) og af Andrési Fjeldsted formanni
1918-19 sem lést 1923. Nöfn Guðmundar Björnssonar
landlæknis á forsíðu, Sigurðar Magnússonar og Þórðar
Thoroddsen eru „upplýstar ágiskanir“.
Myndirnar teiknaði hinn vinsæli skopteiknari
Tryggvi Magnússon sem þekktastur var fyrir myndir
sínar í Speglinum. Hin kunna „kínverska“ undirskrift
hans er á myndunum.
Myndunum fylgja vísur eða máltæki. Ekki sést
hver orti vísurnar. Mynd og vísa á forsíðu tengist
sennilega umdeildri ráðningu Sigvalda Kaldalóns í
Keflavíkurhérað um þessar mundir. PÁ
Guðmundur Björnsson
landlæknir, stofnandi
Hár er þessi hiti orðinn.
Hvað mun valda?
Er það banvæn innanólga
eða Suðurnesjabólga?
Gunnlaugur Claessen
formaður 1920-1922
Ef gengurðu fram á fínan mann
og finnst þú minni,
þá reyndu að gægjast gegnum
hann
hvað geymist inni.
Matthías Einarsson
stofnandi og formaður
1922-1924
Ef þú hefur bogið bak
og bein þín eru slöpp
Matthías þér tekur tak
og treystir með þinni eigin löpp.
Ólafur Þorsteinsson
formaður 1924-1926
Húsráð:
Ef við hendur hjólasveina
hangir auraklessa
sítrónu má sjálfsagt reyna
svolítið að pressa.
Halldór Hansen
formaður 1926-1928
Post festum:
Þegar veislan úti er
ætti hver að gá að sér.
Vina(r) læknis vitja má.
Þú verður skárri eftirá.
Níels Dungal
formaður 1928-1929
Hvort sem hann hnarreistur
gengur á götunum,
gólfunum slítur í samkvæmis-
fötunum,
eða hann rannsakar riðukind
þá rennur upp stöðugt hin sama
mynd.
Sigurður Magnússon
stofnandi
Hvernig sem ég hlusta og ber
hjartað ekki slær.
Dauðaþögn og deyfð er hér.
Dóuð þér kannske í gær?
Þórður Thoroddsen
stofnandi
Hendir seinn hvatan?
Guðmundur Hannesson
stofnandi og formaður
1911-1915
Veginn og mældur verður þú
og vísitalan skráð.
Gott er að hafa hlýðin hjú
og herforingja ráð.
Sæmundur Bjarnhéðinsson
stofnandi og formaður
1916-1918
Áður í lifur átti bú
alidýr í laumi.
Sullungarnir sækja nú
Sæmund heim í draumi.
Jón Hjaltalín Sigurðsson
formaður 1919-1920
Daginn á hann ekki frí
og þá heim hann nær
vikuskýrslur vantar í
vont er að ná í þær.
60 LÆKNAblaðið 2015/101
&
Victoza (líraglútíð)
leiðir til allt að:1
1,5%
lækkunar á HbA1c
frá 8,4 % HbA1c til 6,9 % HbA1c
3,7 kg
þyngdartaps
Magi
Victoza seinkar
magatæmingu og
veitir því aukna
mettunartilnningu. 2,3
Briskirtill
Victoza virkjar
betafrumurnar sem
losa insúlín þegar
blóðsykur er hár. 2,3
Lifur
Victoza hamlar
seytingu glúkagons
og dregur úr útskilnaði
glúkósa frá lifur. 2,3
Matarlyst
Victoza dregur úr
matarlyst, sem leiðir til
minnkaðrar fæðuneyslu. 2
líraglútíð