Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 62

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 62
Maríanna Garðarsdóttir formaður félagsins marianna@landspitali.is 182 LÆKNAblaðið 2015/101 Frá formanni Félags íslenskra röntgenlækna Félag íslenskra röntgenlækna var stofnað 6. október árið 1957 og telur nú um 40 meðlimi en röntgenlæknar starfandi erlendis eru ekki allir félagar. Hlutverk félagsins er fyrst og fremst að vera fag- félag og vettvangur félagsmanna til skoð- anaskipta og þróunar fagsins. Félagið er þátttakandi í erlendu samstarfi, einkum á vettvangi Evrópusamtaka röntgenlækna og Norræna röntgenlæknafélagsins og er það samstarf okkur mjög mikilvægt. Félagsmenn starfa víða, á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, í Röntgen Domus Medica - læknisfræðilegri mynd- greiningu og hjá Íslenskri myndgreiningu í Orkuhúsinu. Einnig starfa röntgenlæknar hjá Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands. Nokkur fjöldi félagsmanna er búsettur erlendis og starfar þar og einnig starfa nokkrir félagsmenn að hluta til hér á landi og að hluta til erlendis eða við fjargrein- ingu fyrir myndgreiningardeildir sem staðsettar eru í öðrum löndum. Viðfangsefni félagsmanna eru marg- vísleg, þar ber auðvitað hæst úrlestur röntgenmynda og tölvusneiðmyndarann- sókna ásamt segulómrannsóknum og túlkun ísótóparannsókna. Röntgenlæknar framkvæma ómskoðanir, ástungur til sýnatöku og jafnvel meðferðir og lækn- isaðgerðir, svo sem æðarannsóknir og víkkun þrengsla í æðakerfi og innæða- fóðringu og einnig meðferð góðkynja og illkynja æxla með hita eða lyfjum. Einnig sinna félagsmenn fjarmyndgreiningu innanlands þannig að stór hluti lands- manna nýtur myndgreiningarþjónustu þótt ekki séu röntgenlæknar staðsettir nema á stærri stöðum. Röntgenlæknar fara frá Landspítala austur á Selfoss og upp á Akranes hluta úr viku til að fram- kvæma ómskoðanir en úrlestur fer fram alla daga vikunnar. Myndgreiningu er sinnt að vissu marki af öðrum læknum en sérfræðingum í myndgreiningu og hafa þeir hlotið viðeigandi þjálfun í sérnámi sínu eða eftir að því lauk. Má þar meðal annars nefna fósturómskoðanir, rann- sóknir á þvagfærum og meltingarfærum og myndatöku á kransæðum og víkkun á þrengslum í kransæðum. Með aukinni notkun tölvutækninnar hefur starfsvettvangur röntgenlækna breyst. Röntgenlæknar eru eftirsóttur starfskraftur víða um lönd og er auðvelt að haga starfsaðstæðum eftir óskum hvers og eins, hvort sem hugurinn stendur til starfa á myndgreiningardeildum sjúkra- húsa eða á einkareknum myndgrein- ingardeildum hérlendis eða erlendis. Ekki er lengur nauðsynlegt að starfa í sama landi og myndgreiningarrannsóknir eru framkvæmdar, heldur er hægðarleikur að sinna fjarmyndgreiningu sitjandi heima á Fróni. Ferðalög eru einnig auðveldari og eru atvinnumöguleikar óþrjótandi, einkum á Norðurlöndum, og vel hægt að vinna hlutastarf í öðrum löndum samhliða vinnu hér eða jafnvel eingöngu. Tækifæri til endurmenntunar og símenntunar eru einnig góð og eru Íslendingar aufúsugestir í þessari sérgrein líkt og öðrum á bestu stöðum í löndunum í kringum okkur, hvort sem er í framhaldsnámi eða til við- bótarþjálfunar. Félagsmenn sinna kennslu læknanema í Háskóla Íslands og einnig þjálfun lækna- nema í klínísku námi og deildarlækna í sérnámi, bæði við Landspítalann og í Röntgen Domus Medica. Eins og í öðrum fámennum stéttum eru kennslustöður fáar en til skamms tíma hafði fræðigreinin yfir að ráða prófessorsstöðu við læknadeild Háskóla Íslands. Sú staða var auglýst fyrir nokkrum árum en ráðning gekk ekki eftir, sem er bagalegt fyrir framþróun kennslugreinarinnar þar sem kennsla og rannsóknir hafa setið á hakanum vegna manneklu. Gera þarf bragarbót á og hefja fagið til þeirrar sjálfsögðu virðingar sem það nýtur í öðrum löndum. Hlutverk röntgenlækna í greiningu og meðferð sjúkdóma ásamt eftirliti er mikil- vægt. Sumar myndgreiningarrannsóknir eru túlkaðar að hluta af læknum sem hafa kallað eftir myndunum en þegar kemur að greiningu flókinna sjúkdóma og samþætt- ingu upplýsinga og klínískra einkenna er mikilvægt að röntgenlæknir komi að vandanum. Myndgreiningarrannsóknum fjölgar ár frá ári og eru nú orðnar mikil- vægari grunnur fyrir sjúkdómsgreiningu en fyrir fáum árum síðan. Nýjar aðferðir til myndgreiningar og sjúkdómsgrein- ingar koma stöðugt fram og verður engan veginn séð fyrir endann á þeirri þróun. Því þurfa félagsmenn ekki að óttast skort á viðfangsefnum og getur hver og einn helgað sig þeim áhugasviðum innan fags- ins sem hann eða hún kýs, því verkefnin eru og verða næg. Sem röntgenlæknar erum við ekki nægilega sýnileg en við þurfum að taka virkari þátt í ákvarðana- töku og meðferð sjúklinga og vera gjarnan sýnilegri út á við og hafa þannig áhrif á stefnumótun, til dæmis með því að þrýsta á um tækjakaup og endurnýjun tækja og hvetja til þess að ný tækni í myndgrein- ingu verði tekin upp hér á landi. Norræna félagið heldur norrænt þing annað hvert ár. Nú er nokkuð um liðið síðan þing var haldið síðast hér á landi, en það var árið 2002. Norrænt þing var haldið í Bergen 2013 og verður næst í Malmö í september. Árið 2017 er svo komið að Íslandi. Þingið verður haldið í Hörpu dagna 29. júní til 1. júlí og búist er við um 500 þátttakendum. Þótt norrænu þingin séu ekki stór eru þau mikilvægur vett- vangur til samskipta innan fagsins og gefa tækifæri til heimsókna til hinna Norður- landanna. Síðasta þing þótti vel heppnað og hafa áhugasamir gestir nú þegar miklar væntingar, enda sívaxandi áhugi á Íslandi og á því að sækja landið heim. Röntgenlæknar eftirsóttur starfskraftur Fyrsti örvinn við einkennum ofvirkrar þvagblöðruß - 3 Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295. 2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395. Munnþurrkur sambærilegur ly�eysu1,2 Það er hægt að lifa við ofvirka þvagblöðru á annan hátt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.