Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2015/101 167
l Ö G F R æ ð i 1 3 . P i S T i l l
Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða
pistlahöfund ábendingum um efni.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
DoggP@lis.is
Að loknu verkfalli
Það fór svo að samningar milli samninga-
nefndar ríkisins og lækna tókust ekki áður
en ný lota verkfalla hófst hinn 5. janúar
síðastliðinn. Læknafélag Íslands náði
niðurstöðu í sínum kjaraviðræðum að-
faranótt 7. janúar síðastliðinn eftir tveggja
daga verkfall. Réttum sólarhring síðar
samdi Skurðlæknafélag Íslands svo boðuð
verkföll þess hófust aldrei á nýju ári. Sam-
hliða nýjum kjarasamningum við lækna
undirrituðu LÍ og SKÍ yfirlýsingu með
stjórnvöldum um framtíð heilbrigðiskerfis-
ins. Í yfirlýsingunni er meðal annars lögð
áhersla á að launakjör lækna, vinnuálag og
vaktafyrirkomulag sé samkeppnisfært við
nágrannalöndin að teknu tilliti til þeirrar
sérstöðu sem íslenska heilbrigðiskerfið
býr við. Eins og margoft kom fram í kjara-
baráttunni á liðnu hausti höfðu launakjör
lækna leitt til þess að almennir læknar
fóru fyrr út til sérnáms, þeir snéru seinna
til Íslands að loknu sérfræðinámi og sífellt
fjölgaði í þeim hópi sem ekki snéri til baka.
Þess er vænst að nýr kjarasamningur skapi
mun betri möguleika en áður á því að
læknar komi til starfa á ný hér á landi að
sérfræðinámi loknu.
Kynning
LÍ kynnti nýgerðan kjarasamning á nokkr-
um fundum, fyrst 9. janúar á einum fjöl-
mennasta fundi sem haldinn hefur verið í
sögu félagsins. Á fimmta hundrað félags-
menn sóttu fundinn. Samningurinn var
einnig kynntur á smærri fundum. Í Hlí-
ðasmára var fundur mánudaginn 12. janúar
og var sendur út á netinu. Þegar mest var
fylgdust 155 með útsendingunni en auk
þess voru liðlega 50 manns mættir á fund-
inn. Þá var efnt til fundar á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 13. janúar og á Heilbrigðisstofnun
Austurlands á Egilsstöðum 14. janúar. Báðir
fundirnir voru vel sóttir. Félag íslenskra
heimilislækna stóð fyrir sérstökum kynn-
ingarfundi fyrir sína félagsmenn. Sama
gerði Félag almennra lækna.
Kosning
Rafræn atkvæðagreiðsla um samning LÍ
hófst mánudaginn 12. janúar og stóð hún
til miðnættis föstudaginn 16. janúar. Niður-
staða atkvæðagreiðslunnar var afgerandi.
Liðlega 80% þátttaka var í atkvæðagreiðsl-
unni. Samtals 669, eða 91,1%, samþykktu
kjarasamninginn, nei sögðu 49 (6,7%) og
16 (2,2%) skiluðu auðu. Hjá SKÍ varð niður-
staðan svipuð. Liðlega 92% þátttaka var í
atkvæðagreiðslnni. Samtals 72, eða 85,71%,
samþykktu kjarasamningin, nei sögðu 9
(10,71%) og 3 (3,57%) skiluðu auðu.
Margt í hinum nýja kjarasamningi er
flókið. LÍ bauð því læknum að koma með
launaseðla sína á Læknadaga sem haldnir
voru 19.-23. janúar síðastliðinn. Starfsmenn
félagsins fóru yfir launaseðla lækna og
sögðu þeim hvernig þeir myndu raðast í
nýja launatöflu. Fjölmargir læknar not-
færðu sér þessa þjónustu og fór aðsóknin
vaxandi eftir því sem leið á vikuna. LÍ
stóð einnig fyrir málþingi um kjaramál
á Læknadögum, líkt og það hefur gert
síðustu tvö ár. Þar var nýr kjarasamningur
ræddur á fjölmennum fundi.
Eins og fram hefur komið gildir nýr
kjarasamningur frá 1. júní 2014. Fyrir
lá því að leiðrétta þyrfti laun lækna sjö
mánuði aftur í tímann. Þá tók ný og
stærri launatafla gildi frá 1. janúar 2015.
Við undirritun kjarasamningsins taldi
samninganefnd ríkisins að ómögulegt yrði
að leiðrétta launin og raða læknum í nýja
launatöflu við launaútreikning 1. febrúar.
Það tækist ekki fyrr en við launagreiðslu
1. mars. Síðar kom þó í ljós að þetta yrði
mögulegt og fór svo að læknar fengu laun
sín leiðrétt og greidd samkvæmt nýjum
kjarasamningi hinn 1. febrúar síðastliðinn.
Leiðbeiningar hjá LÍ
LÍ tók því saman leiðbeiningar til lækna til
að auðvelda þeim að skoða hvort allar launa-
leiðréttingar hefðu skilað sér á launaseðlin-
um. Einnig bauð LÍ félagsmönnum að fara
yfir launaseðla til að skoða hvort réttilega
hefði verið greitt. Stór hópur lækna hefur
notfært sér þessa þjónustu. Skemmst er frá
því að segja að vel hefur tekist til við fram-
kvæmd hins nýja kjarasamnings og hefur
hún að mestu verið hnökralaus. LÍ hefur þó
fundið nokkur dæmi þess að læknum hafi
ekki verið réttilega raðað í nýja launatöflu.
LÍ hvetur félagsmenn, sem ekki eru vissir
um hvort launum þeirra hafi réttilega verið
breytt samkvæmt nýjum kjarasamningi að
hafa samband við skrifstofu félagsins.
Næsti áfangi í nýjum kjarasamningi
gengur í gildi 1. júní næstkomandi þegar
allir læknar eiga að hækka um einn launa-
flokk. Á sama tíma tekur gildi þýtt kerfi
viðbótarþátta sem gefur læknum mögu-
leika á launaflokkahækkunum vegna við-
bótarverkefna sem þeir taka að sér ofan
á hefðbundnar daglegar vinnuskyldur.
Stofnanir skulu ljúka sinni vinnu vegna
þessa hinn 15. apríl næstkomandi og
kynna fyrir samningsaðilum. Samninga-
nefnd LÍ mun að sjálfsögðu fylgjast grannt
með því hvernig tekst til með framkvæmd
þessa sem og annarra áfanga kjarasamn-
ingsins.