Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 4
124 LÆKNAblaðið 2015/101
F R Æ Ð I G R E I N A R
3. tölublað 2015
127
Þóra Steingrímsdóttir
Trú, hefð og tíska
– harðir hús-
bændur
Við megum ekki hlaupa
til og gera óþarfar og
heilsuspillandi aðgerðir á
konum (eða körlum) sem
sækjast eftir þeim, ef ekki
er ástæða til samkvæmt
okkar fræðum og bestu
faglegu samvisku.
131
Michael Clausen, Þórarinn Gíslason, Svala Aðalsteinsdóttir, Davíð Gíslason
Öndunar- og meltingarfæraeinkenni
hjá 7-10 ára börnum í Reykjavík
Rannsóknin sýnir sterkt samband milli bakflæðis annars vegar og nefkvefs, surgs og
astma hins vegar þó að enn sé óljóst hvers eðlis þetta samband er. Hafa ber bak-
flæðisjúkdóm í huga ef astmi og nefeinkenni skýrast ekki af öðrum ástæðum.
137
Brynjólfur Árni Mogensen, Hjalti Már Björnsson, Gestur Þorgeirsson,
Gísli Engilbert Haraldsson, Jón Magnús Kristjánsson, Brynjólfur Mogensen
Árangur endurlífgunartilrauna utan spítala
á Reykjavíkursvæðinu árin 2004-2007
Endurlífgunartilraunir í hjartastoppum utan spítala á höfuðborgarsvæðinu hafa verið
vel rannsakaðar allt frá árinu 1976. Ef miðað er við erlendar rannsóknir hefur árangur
af endurlífgunum utan spítala á höfuðborgarsvæðinu verið góður frá því farið var að
veita þessa þjónustu.
145
Jónína Einarsdóttir, Geir Gunnlaugsson
Algengi og margbreytileiki andlegs ofbeldis
og reynsla af vanrækslu í æsku á Íslandi
Það er umhugsunarefni að þeir sem voru yngri en 30 ára voru þrisvar sinnum líklegri
til að segja frá reynslu af andlegu ofbeldi en þeir sem voru eldri. Yngri viðmælendur
sögðu frá meiri reynslu af því að vera hræddir, kyrrsettir, sviptir fríðindum eða að sagt
hafi verið frá einhverju sem átti að fara leynt, borið saman við eldri viðmælendur.
129
Unnur Steina
Björnsdóttir
Hænan og eggið?
Samspil vélinda-
bakflæðis og
astma
Allt að 75% sjúklinga
með astma hafa einkenni
vélindabakflæðis og tvö-
falt fleiri astmasjúklinga
hafa vélindabakflæði
miðað við þá sem ekki
hafa astma.
L E I Ð A R A R
Á innra neti Læknafélags-
ins, á lis.is, er að finna
myndasafn með helling
af myndaalbúmum frá
kandídatamóttökum, aðal-
fundum, formannafundum
og Læknadögum síðustu
ára. Hér er ein þeirra, Mar-
grét Aðalsteinsdóttir tók
myndina á Læknadögum í
Hörpu um daginn. Fyrir-
sæturnar eru fulltrúar efri
deildar lækna: Margrét
Guðnadóttir (85) og Ólafur
Ólafsson (86), skelegg og
skemmtileg.
árgangar að baki