Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 51
LÆKNAblaðið 2015/101 171
Veigamesta verkefni lyfjateymis Embættis
landlæknis er að stuðla að skynsamlegri
lyfjanotkun í landinu. Þetta er verk-
efni sem lýkur í sjálfu sér aldrei og á sér
margar hliðar. Starfsemin er einkum
þríþætt, upplýsingamiðlun sem byggir á
lyfjagagnagrunni embættisins, fræðsla og
almennt eftirlit með lyfjaávísunum.
Ofnotkun eða vannotkun lyfja?
Færa má rök fyrir því að sum lyf séu
ofnotuð en að önnur lyf ætti að nota meira
(í vannotkun fléttast áhrif lágrar með-
ferðarheldni en það er efni í annan pistil).
Til að leggja mat á þetta er oftast gripið til
þess að gera samanburð við aðrar þjóðir.
Einkum berum við okkur saman við hin
Norðurlöndin. Samanburður af þessu
tagi er þó engan veginn einhlítur enda
getur meiri notkun lyfs á Íslandi en í öðru
landi stafað af ofnotkun hér, vannotkun í
samanburðarlandinu eða hvoru tveggja.
Þá geta samfélög verið ólík, til dæmis hvað
varðar aldurssamsetningu, þjónustu eða
algengi sjúkdóma. Mat á því hvort notkun
tiltekins lyfs eða lyfjaflokks sé eðlileg
er þess vegna erfitt og samanburður á
notkun milli landa er einungis hluti af því
mati.
Sjálfvirkar endurnýjanir lyfjaávísana
Gera má ráð fyrir að nokkuð sé um endur-
nýjanir lyfjaávísana sem séu óþarfar.
Eðlilegt er að sum lyf séu endurnýjuð án
mikilla heilabrota eða skoðunar á sjúklingi
en önnur lyfjameðferð krefst þess að hún
sé endurskoðuð reglulega með skoðun á
sjúklingi og í samráði við hann.
Skömmtun
Í reglugerð um skömmtun lyfja nr.
850/2002 er fjallað um handskömmtun í
lyfjabúðum og um vélskömmtun hjá vél-
skömmtunarfyrirtækjum. Skömmtun lyfja
er til mikilla þæginda fyrir vissa hópa
sjúklinga, bæði þá sem eru í heimahúsi og
aðra sem eru á hjúkrunar- og dvalarheim-
ilum af ýmsu tagi, en skömmtun getur
einnig skapað vandamál.
Ef hakað er við reit á lyfjaávísun þar
sem stendur „Afgreiðist í skammtaöskju“,
og gildistími lyfseðils er ekki takmark-
aður með því að fylla í viðeigandi reit, þá
fer lyfjaávísunin í skömmtun í heilt ár,
óháð því hvaða magni er ávísað. Það sem
afhent er einstaklingi hverju sinni er oftast
samkomulagsatriði milli sjúklings og
lyfjabúðar og getur verið viku-, mánaðar-
en þó aldrei meira en tveggja mánaða
skammtur. Ef læknirinn vill takmarka
þann tíma sem skömmtunin er í gangi er
mikilvægt að hann fylli út viðeigandi reit
og vilji hann takmarka það magn sem af-
hent er hverju sinni þarf hann að tilgreina
það á ótvíræðan hátt. Þetta síðastnefnda
atriði getur skipt miklu máli vegna þess
að flest lyf, þar með talin eftirritunarskyld
og önnur ávanabindandi lyf, geta farið í
skömmtun. Það sem kemur einkum í veg
fyrir að lyf geti farið í skömmtun er áhrif
á geymsluþol, það er lyf sem ekki þola
að vera utan upprunalegra umbúða (til
dæmis ljósnæm lyf) svo og sum lyfjaform
(til dæmis plástrar og innúðalyf).
Þegar skömmtunarlyfjaávísanir renna
út er haft samband við sjúkling eða lækni
til að fá endurnýjun sem viðkomandi
læknir á að framkvæma. Dvalarheimili
nota skömmtunarkort sem gilda þar til
annað er ákveðið.
Þeir einstaklingar sem stunda læknaráp
og misnota ávanabindandi lyf eru stund-
um með lyfin í skömmtun hjá einum lækni
en fara þar að auki til annarra lækna til að
fá stakar lyfjaávísanir á sömu lyf. Í slíkum
tilvikum getur lækna skort upplýsingar
um heildarlyfjanotkun einstaklings og hér
gildir það sama um skömmtun, fjölnota-
og staka lyfseðla. Ef grunsemdir vakna
um misnotkun, geta læknar fengið slíkar
upplýsingar með því að hafa samband
við Embætti landlæknis og áður en langt
um líður munu þeir sjálfir geta sótt slíkar
upplýsingar í lyfjagagnagrunn Embættis
landlæknis.
Skömmtun lyfja er kerfi sem er mjög
gagnlegt fyrir vissa sjúklingahópa en allir
sem að því koma þurfa að vanda sig sér-
staklega til að auka öryggi lyfjaávísana.
Niðurlag
Höfundum er kunnugt um dæmi þess að
lyf sem ætluð voru til meðferðar á skamm-
tíma vandamálum „gleymdust“ í kerfinu
og voru endurnýjuð, jafnvel árum saman
að þarflausu. Þar skorti gagnrýna endur-
skoðun á lyfjameðferð sem þarf að fara
fram reglulega. Læknar og lyfjafræðingar
sem koma að skömmtun lyfja þurfa að
vanda sérstaklega til verka til að allt gangi
fyrir sig eins og til er ætlast. Eins og sést í
meðfylgjandi töflu er talsvert um að sjúk-
lingar fái ávísað ávanabindandi lyfjum frá
fleiri en einum lækni í vélskömmtun.
Taflan sýnir fjölda einstaklinga sem
fengu ávísað einhverjum lyfjum sem
teljast ávanabindandi í vélskömmtun frá
fleiri en einum lækni, á hverju ári. Þó að
einstaklingur fái skammtað frá fleiri en
einum lækni þarf ekki að vera neitt at-
hugavert við það en utanumhald verður
erfiðara fyrir vikið.
Fjöldi lækna 2012 2013 2014
2 1464 1552 1631
3 228 265 274
4 46 54 62
5 11 10 4
6 3 2 1
7 0 1 0
8 0 0 1
Sjálfvirkni í lyfjaávísunum
Magnús Jóhannsson
læknir
magnus@landlaeknir.is
Ólafur b. Einarsson
sérfræðingur
lárus S. Guðmundsson
lyfjafræðingur
F R Á E M b æ T T i l a n D l æ k n i S 8 . p i s t i l l