Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 44
164 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
„Markmið okkar er að ávísun á hreyf-
ingu verði aðgengilegt meðferðarúrræði
fyrir alla lækna á Íslandi og hugsanlega
fleiri heilbrigðisstéttir. Að meðferðin
sé byggð á eins traustum fótum þekk-
ingarlega eins og kostur er. Að með-
ferðarheldni verði að meðaltali 60-70%
og að aukin virkni sjúklinga haldist
eftir að meðferð lýkur,“ segir Jón Steinar
Jónsson heilsugæslulæknir í Garðabæ,
einn ötulasti talsmaður hreyfiseðlanna
hérlendis um árabil.
„Vísbendingar um neikvæð áhrif
hreyfingarleysis á ýmsa algenga sjúkdóma
Vesturlandabúa hafa komið fram í mörg-
um faraldsfræðilegum rannsóknum á
síðustu áratugum. Á undanförnum árum
hafa rannsóknir á hreyfingu sem meðferð
fært okkur mikilvæg gögn og þekkingu
sem gefa tækifæri til að nýta í heilbrigðis-
þjónustunni í dag. Flestir eru líklega sam-
mála um mikilvægi hreyfingar í heilsu-
eflandi skyni fyrir almenning og fáir
efast sennilega um mikilvægi hreyfingar
sem meðferð eða hluta af meðferð við
mörgum algengum sjúkdómum. Hreyfing
sem meðferðarúrræði innan íslenska heil-
brigðiskerfisins hefur ekki verið markvisst
skipulagt hingað til en skjólstæðingum
vissulega verið gefin ráð um hreyfingu og
í vissum tilvikum vísað í ýmis þjálfunar-
eða endurhæfingarúrræði. Ávísun á hreyf-
ingu, hreyfiseðill, er meðferðarúrræði sem
markvisst hefur verið unnið að undan-
farin fjögur ár og skipulega er nú unnið
að innleiðingu þess á Íslandi,“segir Jón
Steinar sem á sæti í hópnum sem stýrir
verkefninu. Hann stóð jafnframt fyrir
málþingi á nýafstöðnum Læknadögum
þar sem fjallað var um hreyfiseðlana frá
ýmsum hliðum.
Hreyfingarleysi er þekktur áhættuþáttur
„Það hefur lengi verið þekkt að hreyf-
ingarleysi er mikilvægur áhættuþáttur
ýmissa sjúkdóma. Og að regluleg hreyfing
getur haft umtalsverð áhrif á horfur þeirra
sem glíma við þessa sjúkdóma. Margar
faraldsfræðilegar rannsóknir þar sem þol
eða upplýsingar um hreyfingu er ein af
breytunum gefa þetta til kynna. Þrátt fyrir
þessa vitneskju höfum við Íslendingar
látið það eiga sig að byggja upp hreyfingu
sem markvisst meðferðarúrræði í líkingu
við það sem grannar okkar á Norður-
löndum hafa gert á undanförnum árum.
Það er mikill munur á því að ráðleggja
sjúklingi almennt um hreyfingu eða ávísa
hreyfingu sem meðferð,“ segir Jón Steinar.
„Hreyfiseðlaverkefnið á Íslandi er
sprottið úr grasrótinni og er svar við hinni
augljósu þörf á að byggja upp markvisst
úrræði fyrir lækna og aðra heilbrigðis-
starfsmenn til að beita hreyfingu sem
meðferð við þeim sjúkdómum þar sem
hún á við. Þar erum við sérstaklega að tala
um svokallaða lýðsjúkdóma: hjarta- og
æðasjúkdóma, fullorðinssykursýki, lang-
vinna lungnateppu, slitgigt og vefjagigt,
þráláta verki, vægt þunglyndi, offitu og
fleiri sjúkdóma. Það verður æ algengara að
sami einstaklingur sé með fleiri en einn
slíkan sjúkdóm sem hreyfingin hefur áhrif
á og hún verður þannig í vissum skilningi
„breiðvirk“ meðferð. Lífsstíll fólks hefur
gríðarlega þýðingu varðandi tilurð og
framgang ýmissa sjúkdóma. Mikilvægir
þættir eru reykingar, rangt mataræði, of
mikill matur og hreyfingarleysi. Á Íslandi
hefur tekist vel upp í baráttu við reykinga-
faraldurinn á síðari hluta 20. aldarinnar.
Mjög markvissar lýðheilsuaðgerðir skiluðu
árangri hérlendis sem við getum verið
stolt af þó uppbygging úrræða í með-
ferð við reykingum hafi ekki verið eins
markviss og tilefnið gefur til. Ýmsum
lýðheilsuaðgerðum, áróðri og fræðslu
hefur verið beitt hérlendis til að minnka
hreyfingarleysi meðal almennings. Með
tilkomu hreyfiseðlisins verður nú byggt
upp heildstætt meðferðarúrræði, ávísun á
hreyfingu þar sem hreyfing ætti að vera
að minnsta kosti hluti af þeirri meðferð
sem er ávísað.“
Þróa og prófa viðurkennt verkfæri
„Árið 2006 var farið af stað með tilrauna-
verkefni á heilsugæslustöðinni í Garðabæ
í samvinnu við ýmsa aðila í bænum, þar
sem hreyfingu var beitt sem meðferðarúr-
ræði. Þetta lognaðist reyndar útaf en frá
árinu 2011 hefur markvisst verið unnið
að uppbyggingu og þróun hreyfiseðla á
Íslandi. Auður Ólafsdóttir og Héðinn Jóns-
son sjúkraþjálfarar og ég tókum höndum
saman og fengum til ráðgjafar Ingibjörgu
Jónsdóttur lífeðlisfræðing í Gautaborg,
en hún stýrir streiturannsóknarstöðinni
þar í borg og hefur tekið þátt í að innleiða
„Ávísun á hreyfingu verði
aðgengilegt meðferðarúrræði
fyrir alla lækna”
– segir Jón Steinar Jónsson
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson