Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 13
LÆKNAblaðið 2015/101 133
börn (30,0%) höfðu fundið fyrir ógleði, 41 barn (8,3%) hafði fundið
fyrir brjóstsviða og 121 barn (24,5%) hafði fundið súrt bragð eða
ælubragð í munni (nábítur) (tafla III). Af þessum hópi höfðu 13
börn (2,6%) fengið lyf við vélindabakflæði.
Tengsl öndunarfæraeinkenna við einkenni frá meltingarfærunum
Borin voru saman einkenni frá meltingarvegi síðasta hálfa árið og
einkenni frá öndunarfærum síðasta heila árið fyrir rannsóknina
(tafla IV og mynd 1). Börn með surg eða píp í brjósti voru marktækt
oftar með einkenni um magavélindabakflæði en börn án surgs og
píps (p<0,001) eða 63,6% á móti 42,0%. Börn með surg fyrir brjósti
höfðu oftar sögu um uppköst án þess að vera með gubbupest
eða matareitrun (p<0,001) og fengu oftar ógleði (p<0,001) heldur
en börn án surgs. Þau höfðu einnig oftar sviða eða sársaukatil-
finningu fyrir miðju brjósti (p<0,001) og þau fundu einnig oftar
fyrir súru bragði eða ælubragði í munni, en sá munur var ekki
marktækur (tafla IV).
Alls höfðu 56,4% barna sem voru með astma síðastliðna 12
mánuði einkenni um magavélindabakflæði. Sá munur var ekki
marktækur borinn saman við börn sem ekki höfðu haft astma. Alls
höfðu 203 börn (44,7%) haft einkenni um magavélindabakflæði án
þess að vera með astmaeinkenni á síðustu 12 mánuðum. Börn sem
fengið höfðu astmaeinkenni á síðustu 12 mánuðum höfðu mark-
tækt oftar ógleði (p<0,05) og sviða eða sársaukatilfinningu fyrir
brjósti (p<0,001) en ekki marktæka aukningu á súru bragði í munni
eða uppköst án gubbupestar (tafla IV).
Börn sem einhvern tímann höfðu haft astma voru líklegri til
að hafa fengið uppköst án þess að vera með gubbupest eða mat-
areitrun (p<0,02) og til að hafa verið óglatt (p<0,01) á síðustu 6
mánuðum. Hins vegar voru þau ekki með aukinn brjóstsviða eða
súrt bragð í munni.
Börn með hnerra, nefrennsli eða nefstíflur á síðustu 12 mán-
uðum, án þess að vera með kvef, höfðu oftar einkenni um bak-
flæði en samanburðarhópurinn. Þetta átti einnig við um uppköst
(p<0,01), ógleði (p<0,01), sviða eða sársaukatilfinningu fyrir brjósti
(p<0,01) og súrt bragð eða ælubragð í munni (p<0,001) (tafla IV).
Þau börn sem höfðu ofnæmi í nefi, þar með talið frjókvef, höfðu þó
aðeins marktækt meiri einkenni um súrt bragð í munni (p<0,02).
Þegar viðmiðunarhópurinn, börn sem sögðu að sér yrði ekki
illt af því að borða sérstaka fæðu eða mat (n=317), var skoðaður
sérstaklega, breyttist marktæknin ekki á milli öndunar- og melt-
ingarfæraeinkenna nema að ekki voru marktæk tengsl á milli
nefeinkenna síðastliðna 12 mánuði og brjóstsviða og astmakasts
síðastliðna 12 mánuði og ógleði.
Þau börn sem ekki höfðu haft lungna- eða nefeinkenni síðast-
liðna 12 mánuði voru marktækt minna með uppköst án gubbu-
pestar (p=0,001 (líkindahlutfall 0,43 (0,27-0,70)), ógleði án gubbu-
pestar (p=0,001 líkindahlutfall 0,49 (0,37-0,74)), brjóstsviða (p<0,001
(líkindahlutfall 0,20 (0,10-0,39)) og nábít (p<0,001 (líkindahlutfall
0,43 (0,28-0,67)) borið saman við börn með lungna- eða nefeinkenni
síðastliðna 12 mánuði.
Þau einkenni frá öndunar- og meltingarfærum sem höfðu
marktækustu tengslin voru á milli sviða eða sársaukatilfinningu
fyrir brjósti og surgs fyrir brjósti á síðustu 12 mánuðum, líkinda-
hlutfall 7,4 (3,8-14,5) og á milli astmaeinkenna á síðustu 12 mán-
uðum, líkindahlutfall 5,5 (2,5-12,2) (tafla IV).
R A N N S Ó K N
Tafla III. Taflan sýnir hlutfall þeirra barna sem svöruðu játandi spurningum um
meltingarfæraeinkenni, n=493.
Spurningar Hlutfall sem svaraði
spurningunni játandi
Hefur barnið haft uppköst án þess að vera með
„ælupest“ eða matareitrun?
17,2%
Hefur barnið kvartað yfir aðkenningu að kasta upp
eða ógleði þegar það var ekki með „ælupest“ eða
matareitrun?
30%
Hefur barnið kvartað yfir sviða- eða
sársaukatilfinningu fyrir miðju brjósti?
8,3%
Hefur barnið kvartað yfir súru- eða ælubragði í
munni?
24,5%
Tafla IV. Taflan sýnir hlutfall þeirra sem hafa lungna- og nefeinkenni og þeirra sem hafa meltingarfæraeinkenni með líkindarhlutfalli og 95% öryggismörkum.
Surgur eða píp í brjósti síðustu 12 mánuði, n=77 Astmi síðustu 12 mánuðia, n=39 Nefeinkenni síðustu 12 mánuðib, n=103
já
%
Nei
%
Líkindahlutfall og
95% öryggismörk
já
%
Nei
%
Líkindahlutfall og
95% öryggismörk
já% Nei
%
Líkindahlutfall og
95% öryggismörk
Hlutfall með uppköst 31,2 14,7 2,6 (1,5-4,6)*** 28,2 16,2 2,0 (0,9-4,2) 26,2 14,8 2,0 (1,2-3,4)**
Hlutfall með ógleði 46,8 26,9 2,4 (1,4-3,9)*** 46,2 28,6 2,1 (1,1-4,1)* 40,8 27,2 1,8 (1,8-2,9)**
Hlutfall með brjóstsviða 27,3 4,8 7,4 (3,8-14,5)*** 28,2 6,6 5,5 (2,5-12,2)*** 15,5 6,4 2,7 (1,4-5,2)**
Hlutfall með súrt eða
ælubragð í munni
31,2 23,3 1,5 (0,8-2,5) 23,1 24,7 0,9 (0,4-2,0) 40,8 20,3 2,7 (1,7-4,1)***
* = p<0,05, ** = p<0,01, *** = p<0,001
a) Þeir sem sögðust hafa fengið astmakast síðastliðna 12 mánuði, b) þeir sem höfðu haft hnerra, nefrennsli eða nefstíflur án þess að vera með kvef eða flensu síðastliðna 12 mánuði.
Mynd 1. Myndin sýnir skörun einkenna frá lungum, nefi og meltingarfærum hjá
7-10 ára skólabörnum í Reykjavík.