Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2015/101 163
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Arnarson, Gunnar Sigurðsson, Reyni Þor-
steinsson, Pétur Skarphéðinsson og síðast
en ekki síst Sigurð Þ. Guðmundsson og
Jón Þorgeir Hallgrímsson sem voru alltaf
kallaðir Siggi og Jorri. Þeir voru perluvinir
og herbergisfélagar og mjög skemmtilegir
á golfvellinum hvor á sína vísu. Jón Þorgeir
hafði gaman af því að sletta þýsku og eru
sum orðatiltæki hans ennþá rifjuð upp við
hentug tækifæri. Ef menn áttu óvenju gott
og langt upphafshögg greip Jón stundum
til þýska hernaðarfrasans: „Wir schlagen
gegen England.“ Ef menn hins vegar lentu
óvænt í glompu brosti Jón góðlátlega og
sagði: „Aha, Bunker hinein!“
Í þessari ferð vorum við Ásgeir Jónsson
að spila saman í liði á móti Sigga og Jorra á
Kilspindie en ég var tiltölulega nýbyrjaður
í golfi. Á 6. braut sem er 240 metra par 4
hola sló ég í upphafshöggi óvænt inn á flöt
með 4 járni, að vísu í nokkrum meðvindi.
Jorri leit þá til himins og andvarpaði: „Guð
hjálpi okkur ef þessi maður lærir einhvern
tímann að spila golf.“ Þeir voru yndislegir
félagar og forréttindi að hafa kynnst þeim
í golfinu. Sigurður lést árið 2007 langt fyrir
aldur fram en Jón Þorgeir er enn við góða
heilsu og lagði á ráðin við skrif þessarar
greinar.
Lengi vel var golfið aðeins karlaíþrótt
og konur komu þar hvergi nærri. Þetta
hefur verið hvað langlífast í Skotlandi
og er mönnum í fersku minni skilti þar í
landi þar sem á stóð: „No women or dogs
allowed“. Þetta hefur nú allt breyst og eru
konur nú velkomnar á alla velli í Skot-
landi nema Muirfield sem liggur undir
miklu ámæli út af þessu. Golfið er ekki
síður íþrótt kvenna en karla og orðið mikið
hjónasport. Fremsti golfari í læknastétt á
Íslandi er reyndar án efa Ásgerður Sverris-
dóttir fyrrverandi Íslandsmeistari kvenna.
Í hópi Skotlandsfara er talað í velvilj-
uðum tón um „spúsugolfið“ þó það megi
ekki taka allt yfir hjá mönnum. Í þessari
minni fyrstu ferð 1996 var lokahóf og
haldnar nokkrar tækifærisræður. Nokkrar
eiginkonur höfðu komið með og sumar
þeirra meira að segja spilað. Í lokahófinu
tók einn félaganna til máls og lýsti ánægju
sinni með þessa þróun og velti upp þeim
möguleika hvort ekki ætti að hafa kon-
urnar með í þessar ferðir og fara til Spánar.
Þá þyrmdi yfir Svavar Haraldsson og hann
sagði alvöruþrunginn yfir borðið: „Ef við
förum til Spánar og konurnar koma með,
þá er þetta búið“. Hin seinni ár hafa þetta
eingöngu verið karlaferðir og gjarnan spil-
aðar 36 holur á dag.
Aldurinn er reyndar heldur að færast
yfir hópinn en engan bilbug er á mönnum
að finna. Tilhlökkunin byrjar fljótlega
eftir að ferð lýkur og stendur óslitið fram
að næstu ferð. Á seinni árum hafa bæst í
hópinn ungir og efnilegir golfarar en það
verður m.a. verkefni þeirra að halda þess-
ari skemmtilegu hefð gangandi. Fyrir þá
sem vilja kynna sér svæðið nánar fylgir hér
áhugaverð krækja.
golfeastlothian.com/home.asp
1. Sæmundsdóttir G, Lúðvíksson SJ. Golf á Íslandi. Forlagið
Reykjavík 2012.
Fallegur dagur í North Berwick. Knútur Björnsson og Kristinn Jóhannsson á 18. teig á
East Links. 17. flöt í baksýn og í fjarska sést Bass Rock, kennileiti bæjarins. Kona Krist-
ins, Sigrún Einarsdóttir, tók myndina árið 1987.
Þrír snillingar við klúbbhúsið á Muirfield, Svavar Haraldsson, Kristinn Jóhannsson
og Guðmundur Arason. Myndina tók Alan Brown, kvensjúkdómalæknir og félagi í
Honorary Company of Edinburgh Golfers árið 2000.
Galvaskir golfarar fyrir framan Maitlandfield Hotel í Haddington 1996. Frá vinstri: Ólafur Einarsson, Svavar
Haraldsson, Jón Þorgeir Hallgrímsson, Ingimar Hjálmarsson, Kristinn Jóhannsson, Sigurður Þ. Guðmundsson, Ólafur
Alexander Ólafsson (Alli málari), Sigríður Birna Ólafsdóttir, Brynjólfur Mogensen, Kristmundur Ásmundsson,
Þórhildur Sigtrygggsdóttir, Hrafnkell Óskarsson, Hörður Bergsteinsson, Guðmundur Arason, Halldóra Axelsdóttir,
Þráinn Rósmundsson og Ólafur Z. Ólafsson.