Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 53
LÆKNAblaðið 2015/101 173
lýsti þessu sá hann ekki annað en rétt
væri að fresta vökunni.
Ung kvennaskólastúlka kom inn til
fæðingar löngu fyrir tímann. Barnið var
pasturslítið og átti í öndunarerfiðleikum,
sem títt er um fyrirbura.
Sigursteinn fór á Sauðárkrók og fékk
súrefniskassa. Á meðan hætti barnið að
anda. Blés ég í það lífi nokkrum sinnum.
Bjuggumst við varla við að hún ætti sér
lífs von.
Það þótti viðeigandi að gefa barninu
nafn. Prófasturinn Þorsteinn í Steinnesi
skírði barnið „skemmri skírn“. Þuldi
ritningagreinar yfir óvitanum, en gerðist
boðorðalengri en æskilegt var. Stoppaði
öndun í tvígang og þurfti að blása hana
áður en hann lauk lestrinum. Hún fór
síðan í kassann og fór nokkuð batnandi
upp úr því.
Aðalsteinn sonur okkar þá 3ja ára,
fylgdist með barninu nær daglega. Einn
dag kom hann niður með óðagoti og kall-
aði: „Mamma, mamma, búrið er opið og
barnið er sloppið út.“ Hafði krílið verið
sett í bað. Stúlkan, sem hlaut nafnið Sigur-
björg, útskrifaðist á barnadeildina fyrir
sunnan og spjaraði sig vel, er nú gift kona
með fjölskyldu í Bandaríkjunum.
Okkur leið vel fyrir norðan, bæði vön
sveitalífi. Það var góð aðstaða á sjúkrahús-
inu. Sigursteinn tók botnlanga og lagaði
kviðslit í etersvæfingu sem Anna Reiners
gaf á maska. Eftir aðgerðir fengum við
kaffi og bakkelsi hjá frú Birgitte.
Sigursteinn leiddi mig gegnum botn-
langatökur. Ég hafði fyrir nokkra reynslu
frá Hvítabandinu, þar sem Andrés Ás-
mundsson gaf stúdentum gjarnan hlut-
deild í aðgerðum.
Afkoma okkar Höllu var dágóð, unn-
um stundum hvort á sinni stofu og bið-
stofugestir gaukuðu gjarnan smáaurum
að frumburðinum. Héraðslæknisstörf
áttu vel við mig, hefði sjálfur vel getað
hugsað mér þau í ár eða svo. Halla var
ekkert á því, vildi drífa mig í sérnám án
tafar og við það stóð.
Það tíðkaðist að læknar færu út í hérað
beint frá prófborðinu og störfuðu sem
slíkir ævina út.
Sigurgeir Kjartansson
Meistaranám í lögfræði
við lagadeild Háskólans í Reykjavík
• Rannsókna- og verkefnatengt tveggja ára meistaranám til ML-gráðu.
• Heimilt er að ljúka náminu á fjórum árum.
• Námið hentar ekki aðeins þeim sem lokið hafa grunnnámi í lögfræði heldur einnig þeim
sem hafa háskólapróf í öðrum greinum.
• Einstaklingsbundin námsáætlun.
• Val um áherslur og námsleiðir og margvíslegir möguleikar á sérhæfingu innan lögfræði
og samþættingu við aðrar greinar.
• Gefinn er kostur á að ljúka meistaranámi á alþjóðasviði.
Umsóknarfrestur um inngöngu í meistaranámið haustið 2015 er til og með 30. apríl.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um meistaranámið á vef lagadeildar
Háskólans í Reykjavík: lagadeild.is