Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 50
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
170 LÆKNAblaðið 2015/101
Runólfur Pálsson
læknir
runolfur@landspitali.is
Á XXI. þingi Félags íslenskra lyflækna
sem fram fór í Reykjavík 21.-22. nóvember
í haust voru að venju veitt verðlaun fyrir
framúrskarandi vísindarannsókn ungs
læknis og læknanema úr Verðlaunasjóði
í læknisfræði sem læknarnir Árni Krist-
insson og Þórður Harðarson stofnuðu.
Hlutskörpust ungra lækna varð Berglind
María Jóhannsdóttir, deildarlæknir við
lyflækningasvið Landspítala og doktors-
nemi við læknadeild Háskóla Íslands, er
hlaut verðlaunin fyrir rannsókn sína á
áhrifum æðakölkunar og blóðfitu á lang-
vinnan nýrnasjúkdóm, sem hún vann
undir handleiðslu Hrefnu Guðmunds-
dóttur nýrnalæknis. Úr röðum læknanema
varð Elín Edda Sigurðardóttir, læknanemi
á 5. ári, fyrir valinu fyrir rannsókn sína
á áhrifum greiningar og eftirfylgni góð-
kynja einstofna mótefnahækkunar á lifun
sjúklinga með mergæxli, sem hún vann
undir leiðsögn Sigurðar Yngva Kristins-
sonar prófessors.
Berglind María Jóhannsdóttir læknir og Elín Edda Sigurðardóttir læknanemi með viðurkenningarskjöl sín. Með þeim á myndinni eru Runólfur Pálsson, formaður Félags íslenskra
lyflækna, Rafn Benediktsson, formaður vísinda- og dómnefndar þingsins, og læknarnir Árni Kristinsson og Þórður Harðarson. Mynd: ljósmyndari Landspítala, Þorkell Þorkelsson.
Verðlaun á þingi Félags íslenskra lyflækna
Practical og Congress Reykjavík hafa nú sameinað
krafta sína undir merkjum CP Reykjavík. Við erum
frísklegt og skapandi þjónustufyrirtæki sem skipu-
leggur viðburði, ferðir og ráðstefnur fyrir innlenda
og erlenda viðskiptavini.
RÁÐSTEFNUR / VIÐBURÐIR / HVATAFERÐIR
Við gerum
atvinnulífið
viðburðaríkara
www.cpreykjavik.is