Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2015/101 169
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Óttar Guðmundsson
geðlæknir, formaður félagsins
ottarg@landspitali.is
Félag áhugamanna um sögu læknis-
fræðinnar var stofnað þann 18. desember
1964. Fyrsti fundurinn var haldinn í 1.
kennslustofu Háskóla Íslands. Undirbún-
ingsnefnd, sem hafði starfað að stofnun
félagsins, sendi út fundarboð sem Jón
Steffensen prófessor undirritaði. Fram
kemur í fundargerðarbók að Læknafélag
Reykjavíkur hafði frumkvæði að stofnun
félagsins.
Á fundinum var Gunnlaugur Snædal
skipaður fundarstjóri og Ólafur Bjarnason
fundarritari.
Jón Steffensen flutti ávarp og fór yfir
tilgang og hlutverk félagsins. Hann hafði
um nokkurt skeið starfað í ritstjórn tíma-
ritsins Medicinhistorisk Årbok og Jón taldi
að Ísland ætti að taka þátt í þeirri útgáfu.
Þá ræddi hann um mikilvægi ýmissa
heimildarita um sögu læknisfræðinnar
á Íslandi og varðveislu íslenskra hand-
rita um læknisfræðileg efni. Loks fjallaði
Jón um varðveislu lækningaminja og var
tíðrætt um Nesstofu í því sambandi.
Á fundinum voru lög félagsins sam-
þykkt en tillaga að þeim hafði verið send
út með fundarboði.
Í fyrstu stjórn félagsins voru kosnir
Jón Steffensen læknir formaður, Ólafur
Bjarnason læknir ritari, Birgir Einarsson
apótekari gjaldkeri, og endurskoðendur
Páll V.G. Kolka fyrrum héraðslæknir og
Sverrir Magnússon apótekari.
Félagið hefur æ síðan starfað af miklum
krafti undir forystu Jón Steffensens, Gunn-
laugs Snædals, Halldórs Baldurssonar
og Atla Þórs Ólasonar auk núverandi
formanns. Helsta baráttumál félagsins
hefur allt frá stofnun þess verið að koma
upp Lækningaminjasafni úti á Nesi. Sá
draumur virtist vera að verða að veruleika
en steytti á skeri og framkvæmdir stöðv-
uðust nokkuð skyndilega fyrir tveimur til
þremur árum síðan. Húsið stendur síðan
tómt og tæplega fokhelt, munúðarlaust
og umkomulaust úti á Seltjarnarnesi. Það
er ennþá stefnumál okkar að húsið verði
notað í samræmi við fyrri áætlanir og
samninga.
Félagið stóð á nýafstöðnum Læknadög-
um fyrir veglegri afmælisdagskrá þar sem
rætt var um heilsufar og Skaftárelda 1783.
Vonandi tekst íslenskum læknum að
halda áfram starfi FÁSL. Nauðsynlegt er
að vera meðvitaður um söguna til að geta
skilið nútímann.
Félag áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar 50 ára
Jón Steffensen Gunnlaugur Snædal Halldór Baldursson Atli Þór Ólason Óttar Guðmundsson
Formenn félagsins frá upphafi
Stofnendur félagsins:
jón Steffensen, Ólafur bjarnason, Gunnlaugur Snædal, Theódór Skúlason, karl Sig. jónasson, Halldór Hansen eldri, kristján Eldjárn,
Magnús Már Lárusson, jakob benediktsson, Þórarinn Guðnason, Ernst Daníelsson, Árni Guðmundsson, Sigurður E. Þorvaldsson,
Eggert Ó. jóhannsson, Þórarinn Sveinsson, birgir Einarsson, Tómas Á. jónasson, Þórður Þórðarson, jón Þorsteinsson, baldur johnsen,
bergsveinn Ólafsson, Páll kolka, Pétur H.j. jakobsson, Guðmundur björnsson, Magnús Ólafsson, Stefán bogason, Gísli Fr. Petersen,
Óskar Þórðarson, jón R. Árnason, Guðjón S. jóhannesson, Eggert Steinþórsson, Stefán Ólafsson, Magnús Þorsteinsson, Gunnar Guðmundsson,
Víkingur H. Arnórsson, Sigurður Samúelsson, Ólafur jóhannsson, Ófeigur j. Ófeigsson, Stefán P. björnsson, María Hallgrímsdóttir, örn bjarnason,
bjarni bjarnason, Niels Dungal, bjarni kornráðsson, Einar Ólafur Sveinsson, Sverrir Magnússon, jón Sigtryggsson, Snorri Hallgrímsson.
Fyrsta astmalyfið
– Sterkur barksteri1 og hraðvirkur LABA2*
– Sýnilegur skammtateljari
– 3 styrkleikar
Ábending: Flutiform® er ætlað til reglulegrar meðferðar við astma þegar
notkun samsetts lyfs (innúðalyfs með barkstera og langvirkum β2 örva)
er viðeigandi3
Flutiform®50/5 og 125/5 fyrir fullorðna og unglinga (>12 ára), flutiform®
250/10 fyrir fullorðna (>18ára)
Heimildir: 1. Adams, N. P. et al. Copyright© 2010, The Cochrane Collaboration. Published by JohnWiley & Sons, Ltd. 2. Bodzenta-Lukaszyk, A. et al. Respiratory Medicine (2011) 105, 674-682 3. Samantekt á eiginleikum lyfs (spc) www.serlyfjaskra.
N
O
R
15
02
01
sem sameinar sterkan barkstera,
flútikasón1 og hraðvirkan β2 örva,
formóteról2