Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 49

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2015/101 169 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Óttar Guðmundsson geðlæknir, formaður félagsins ottarg@landspitali.is Félag áhugamanna um sögu læknis- fræðinnar var stofnað þann 18. desember 1964. Fyrsti fundurinn var haldinn í 1. kennslustofu Háskóla Íslands. Undirbún- ingsnefnd, sem hafði starfað að stofnun félagsins, sendi út fundarboð sem Jón Steffensen prófessor undirritaði. Fram kemur í fundargerðarbók að Læknafélag Reykjavíkur hafði frumkvæði að stofnun félagsins. Á fundinum var Gunnlaugur Snædal skipaður fundarstjóri og Ólafur Bjarnason fundarritari. Jón Steffensen flutti ávarp og fór yfir tilgang og hlutverk félagsins. Hann hafði um nokkurt skeið starfað í ritstjórn tíma- ritsins Medicinhistorisk Årbok og Jón taldi að Ísland ætti að taka þátt í þeirri útgáfu. Þá ræddi hann um mikilvægi ýmissa heimildarita um sögu læknisfræðinnar á Íslandi og varðveislu íslenskra hand- rita um læknisfræðileg efni. Loks fjallaði Jón um varðveislu lækningaminja og var tíðrætt um Nesstofu í því sambandi. Á fundinum voru lög félagsins sam- þykkt en tillaga að þeim hafði verið send út með fundarboði. Í fyrstu stjórn félagsins voru kosnir Jón Steffensen læknir formaður, Ólafur Bjarnason læknir ritari, Birgir Einarsson apótekari gjaldkeri, og endurskoðendur Páll V.G. Kolka fyrrum héraðslæknir og Sverrir Magnússon apótekari. Félagið hefur æ síðan starfað af miklum krafti undir forystu Jón Steffensens, Gunn- laugs Snædals, Halldórs Baldurssonar og Atla Þórs Ólasonar auk núverandi formanns. Helsta baráttumál félagsins hefur allt frá stofnun þess verið að koma upp Lækningaminjasafni úti á Nesi. Sá draumur virtist vera að verða að veruleika en steytti á skeri og framkvæmdir stöðv- uðust nokkuð skyndilega fyrir tveimur til þremur árum síðan. Húsið stendur síðan tómt og tæplega fokhelt, munúðarlaust og umkomulaust úti á Seltjarnarnesi. Það er ennþá stefnumál okkar að húsið verði notað í samræmi við fyrri áætlanir og samninga. Félagið stóð á nýafstöðnum Læknadög- um fyrir veglegri afmælisdagskrá þar sem rætt var um heilsufar og Skaftárelda 1783. Vonandi tekst íslenskum læknum að halda áfram starfi FÁSL. Nauðsynlegt er að vera meðvitaður um söguna til að geta skilið nútímann. Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar 50 ára Jón Steffensen Gunnlaugur Snædal Halldór Baldursson Atli Þór Ólason Óttar Guðmundsson Formenn félagsins frá upphafi Stofnendur félagsins: jón Steffensen, Ólafur bjarnason, Gunnlaugur Snædal, Theódór Skúlason, karl Sig. jónasson, Halldór Hansen eldri, kristján Eldjárn, Magnús Már Lárusson, jakob benediktsson, Þórarinn Guðnason, Ernst Daníelsson, Árni Guðmundsson, Sigurður E. Þorvaldsson, Eggert Ó. jóhannsson, Þórarinn Sveinsson, birgir Einarsson, Tómas Á. jónasson, Þórður Þórðarson, jón Þorsteinsson, baldur johnsen, bergsveinn Ólafsson, Páll kolka, Pétur H.j. jakobsson, Guðmundur björnsson, Magnús Ólafsson, Stefán bogason, Gísli Fr. Petersen, Óskar Þórðarson, jón R. Árnason, Guðjón S. jóhannesson, Eggert Steinþórsson, Stefán Ólafsson, Magnús Þorsteinsson, Gunnar Guðmundsson, Víkingur H. Arnórsson, Sigurður Samúelsson, Ólafur jóhannsson, Ófeigur j. Ófeigsson, Stefán P. björnsson, María Hallgrímsdóttir, örn bjarnason, bjarni bjarnason, Niels Dungal, bjarni kornráðsson, Einar Ólafur Sveinsson, Sverrir Magnússon, jón Sigtryggsson, Snorri Hallgrímsson. Fyrsta astmalyfið – Sterkur barksteri1 og hraðvirkur LABA2* – Sýnilegur skammtateljari – 3 styrkleikar Ábending: Flutiform® er ætlað til reglulegrar meðferðar við astma þegar notkun samsetts lyfs (innúðalyfs með barkstera og langvirkum β2 örva) er viðeigandi3 Flutiform®50/5 og 125/5 fyrir fullorðna og unglinga (>12 ára), flutiform® 250/10 fyrir fullorðna (>18ára) Heimildir: 1. Adams, N. P. et al. Copyright© 2010, The Cochrane Collaboration. Published by JohnWiley & Sons, Ltd. 2. Bodzenta-Lukaszyk, A. et al. Respiratory Medicine (2011) 105, 674-682 3. Samantekt á eiginleikum lyfs (spc) www.serlyfjaskra. N O R 15 02 01 sem sameinar sterkan barkstera, flútikasón1 og hraðvirkan β2 örva, formóteról2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.