Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 47

Læknablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2015/101 167 l Ö G F R æ ð i 1 3 . P i S T i l l Læknar eru hvattir til að koma á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund ábendingum um efni. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Íslands DoggP@lis.is Að loknu verkfalli Það fór svo að samningar milli samninga- nefndar ríkisins og lækna tókust ekki áður en ný lota verkfalla hófst hinn 5. janúar síðastliðinn. Læknafélag Íslands náði niðurstöðu í sínum kjaraviðræðum að- faranótt 7. janúar síðastliðinn eftir tveggja daga verkfall. Réttum sólarhring síðar samdi Skurðlæknafélag Íslands svo boðuð verkföll þess hófust aldrei á nýju ári. Sam- hliða nýjum kjarasamningum við lækna undirrituðu LÍ og SKÍ yfirlýsingu með stjórnvöldum um framtíð heilbrigðiskerfis- ins. Í yfirlýsingunni er meðal annars lögð áhersla á að launakjör lækna, vinnuálag og vaktafyrirkomulag sé samkeppnisfært við nágrannalöndin að teknu tilliti til þeirrar sérstöðu sem íslenska heilbrigðiskerfið býr við. Eins og margoft kom fram í kjara- baráttunni á liðnu hausti höfðu launakjör lækna leitt til þess að almennir læknar fóru fyrr út til sérnáms, þeir snéru seinna til Íslands að loknu sérfræðinámi og sífellt fjölgaði í þeim hópi sem ekki snéri til baka. Þess er vænst að nýr kjarasamningur skapi mun betri möguleika en áður á því að læknar komi til starfa á ný hér á landi að sérfræðinámi loknu. Kynning LÍ kynnti nýgerðan kjarasamning á nokkr- um fundum, fyrst 9. janúar á einum fjöl- mennasta fundi sem haldinn hefur verið í sögu félagsins. Á fimmta hundrað félags- menn sóttu fundinn. Samningurinn var einnig kynntur á smærri fundum. Í Hlí- ðasmára var fundur mánudaginn 12. janúar og var sendur út á netinu. Þegar mest var fylgdust 155 með útsendingunni en auk þess voru liðlega 50 manns mættir á fund- inn. Þá var efnt til fundar á Sjúkrahúsinu á Akureyri 13. janúar og á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum 14. janúar. Báðir fundirnir voru vel sóttir. Félag íslenskra heimilislækna stóð fyrir sérstökum kynn- ingarfundi fyrir sína félagsmenn. Sama gerði Félag almennra lækna. Kosning Rafræn atkvæðagreiðsla um samning LÍ hófst mánudaginn 12. janúar og stóð hún til miðnættis föstudaginn 16. janúar. Niður- staða atkvæðagreiðslunnar var afgerandi. Liðlega 80% þátttaka var í atkvæðagreiðsl- unni. Samtals 669, eða 91,1%, samþykktu kjarasamninginn, nei sögðu 49 (6,7%) og 16 (2,2%) skiluðu auðu. Hjá SKÍ varð niður- staðan svipuð. Liðlega 92% þátttaka var í atkvæðagreiðslnni. Samtals 72, eða 85,71%, samþykktu kjarasamningin, nei sögðu 9 (10,71%) og 3 (3,57%) skiluðu auðu. Margt í hinum nýja kjarasamningi er flókið. LÍ bauð því læknum að koma með launaseðla sína á Læknadaga sem haldnir voru 19.-23. janúar síðastliðinn. Starfsmenn félagsins fóru yfir launaseðla lækna og sögðu þeim hvernig þeir myndu raðast í nýja launatöflu. Fjölmargir læknar not- færðu sér þessa þjónustu og fór aðsóknin vaxandi eftir því sem leið á vikuna. LÍ stóð einnig fyrir málþingi um kjaramál á Læknadögum, líkt og það hefur gert síðustu tvö ár. Þar var nýr kjarasamningur ræddur á fjölmennum fundi. Eins og fram hefur komið gildir nýr kjarasamningur frá 1. júní 2014. Fyrir lá því að leiðrétta þyrfti laun lækna sjö mánuði aftur í tímann. Þá tók ný og stærri launatafla gildi frá 1. janúar 2015. Við undirritun kjarasamningsins taldi samninganefnd ríkisins að ómögulegt yrði að leiðrétta launin og raða læknum í nýja launatöflu við launaútreikning 1. febrúar. Það tækist ekki fyrr en við launagreiðslu 1. mars. Síðar kom þó í ljós að þetta yrði mögulegt og fór svo að læknar fengu laun sín leiðrétt og greidd samkvæmt nýjum kjarasamningi hinn 1. febrúar síðastliðinn. Leiðbeiningar hjá LÍ LÍ tók því saman leiðbeiningar til lækna til að auðvelda þeim að skoða hvort allar launa- leiðréttingar hefðu skilað sér á launaseðlin- um. Einnig bauð LÍ félagsmönnum að fara yfir launaseðla til að skoða hvort réttilega hefði verið greitt. Stór hópur lækna hefur notfært sér þessa þjónustu. Skemmst er frá því að segja að vel hefur tekist til við fram- kvæmd hins nýja kjarasamnings og hefur hún að mestu verið hnökralaus. LÍ hefur þó fundið nokkur dæmi þess að læknum hafi ekki verið réttilega raðað í nýja launatöflu. LÍ hvetur félagsmenn, sem ekki eru vissir um hvort launum þeirra hafi réttilega verið breytt samkvæmt nýjum kjarasamningi að hafa samband við skrifstofu félagsins. Næsti áfangi í nýjum kjarasamningi gengur í gildi 1. júní næstkomandi þegar allir læknar eiga að hækka um einn launa- flokk. Á sama tíma tekur gildi þýtt kerfi viðbótarþátta sem gefur læknum mögu- leika á launaflokkahækkunum vegna við- bótarverkefna sem þeir taka að sér ofan á hefðbundnar daglegar vinnuskyldur. Stofnanir skulu ljúka sinni vinnu vegna þessa hinn 15. apríl næstkomandi og kynna fyrir samningsaðilum. Samninga- nefnd LÍ mun að sjálfsögðu fylgjast grannt með því hvernig tekst til með framkvæmd þessa sem og annarra áfanga kjarasamn- ingsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.