Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2005, Síða 11

Frjáls verslun - 01.04.2005, Síða 11
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 11 Því er fagnað um þessar mundir að fimmtíu ár eru frá því að fyrsta flugvél Loftleiða flaug til Lúxemborgar, en þá hófst nýr kafli í íslenskri flugsögu. Mikið var mikið um dýrðir á Lúxemborgarflugvelli þegar fyrsta vél Loftleiða lenti þar 22. maí 1955. Tildrög flugsins voru þau að Loftleiðum, sem var fyrsta lág- fargjaldaflugfélagið í heiminum, höfðu smátt og smátt verið settir afarkostir varðandi far- gjöld til verndar ríkisflugfélögum í þeim löndum í Evrópu sem Loftleiðir höfðu flogið frá vestur um haf, með viðkomu á Íslandi. Í Lúxemborg var ekkert flugfélag starfandi, enda var Loftleiðum tekið þar opnum örmum. Í upphafi var umfang Lúxemborgarflugsins takmarkað. Notaðar voru DC-4 flugvélar með aðeins 54 sæti. Flugvélarnar voru án jafnþrýstibúnaðar, hæg- gengar og óhagkvæmar. Með tilkomu DC-6B flugvéla árið 1960, sem voru hraðskreiðari og með jafnþrýstibúnaði, jókst framboð sæta stórlega, enda mun hagkvæmari flugvélar. Frá 1964 voru notaðar Rolls Royce 400 flugvélar, skrúfuþotur með 189 sæti. Um tíma voru Loftleiðir þá með stærstu flug- vélar á Atlantshafinu. Frá árinu 1970 voru teknar í notkun DC-8 flugvélar með 249 sæti. Þá var umfang Lúxemborgarflugsins mest, komst upp í 4-5 ferðir daglega. Þegar fluginu var hætt 1999 voru notaðar Boeing 757 í flugið. Hafði áætlunarflugi frá Lúxemborg þá fækkað verulega. Lúxemborgarflugið var vendi- punktur í starfsemi Loftleiða í byrjun sjöunda áratugarins. Mikill hagnaður myndaðist á næstu árum og byggt var fyrir eigið fé, fyrst skrifstofu- byggingin 1964 og Hótel Loftleiðir 1966. FRÉTTIR Þeir stýra Samskipum. Ólafur Ólafsson, starfandi stjórnarformaður, og forstjórarnir Michael F. Hassing og Ásbjörn Gíslason. Fimmtíu ár frá fyrsta flugi Loftleiða til Lúxemborgar Móttökuathöfn á flugvellinum í Lúxemborg 22. maí 1955. Ingólfur Jónsson samgöngumálaráðherra flytur ávarp við móttöku- athöfnina. Fréttaritari frá Luxemborg heldur á hljóðnema og hægra megin við Ingólf er Pierre Hamer, flugmálastjóri í Lúxemborg Fulltrúar Loftleiða og íslenskir embættismenn ganga frá borði við komuna til Lúxemborgar Talið frá vinstri: Alfreð Elíasson forstjóri, Kristján Guðlaugsson stjórnarformaður, Sigurður Magnússon blaðafulltrúi, Sigurður Helgason, varaformaður stjórnar, Kristinn Olsen flugstjóri, Agnar Kofoed-Hansen flug- málastjóri og Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.