Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 22

Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 22
FORSÍÐUGREIN „Við bjuggum okkur einfaldlega til rými og nýjan hóp viðskipta- vina. Greifinn er fjölskylduvænn staður, umhverfið þægilegt, þjónustan hröð en góð og matseðilinn alþjóðlegur og fjölbreyttur. Þjóðvegur eitt liggur einnig fram hjá okkur og því vorum við að mörgu leyti nær hjartanu heldur en í miðbænum, auk þess sem við þurftum ekki að glíma við bílastæðaskort eins og veitingahúsin þar.Það er fyrst og fremst heimamarkaðurinn sem við höfum einbeitt okkur að og hann er allt kjördæmið. Við erum stoltir af því að geta sagt að Greifinn er uppáhaldsstaður Akureyringa,“ segir Sigurbjörn Sveinsson, framkvæmdastjóri Veitingahússins Greifans, og sýnir kannanir þar að lútandi. „Aðsókn og velta Greifans hafa vaxið jafnt og þétt og við höfum tvisvar sinnum stækkað staðinn, fyrst árið 1991 þegar við opnuðum 50 manna sal í sama húsnæði og svo árið 1996 þegar við festum kaup á allri jarðhæðinni að Glerárgötu 20 svo nú telur hann 600 fermetra og tekur um 150 manns í sæti. Árleg velta veitingahússins fór úr fáeinum milljónum króna á stofnárinu og í um 130 milljónir árið 1998. Þá tókum við yfir veitingarekstur Hótels Kea, en við það urðu kaflaskil í rekstri fyrirtækisins.“ Fýsilegur hótelrekstur „Við vorum beðnir um að taka að okkur Hótel Kea og gerðum það. Fosshótel var þá að taka yfir gistireksturinn. Það er því ekki hægt að segja að þetta hafi verið úthugsuð framrás af okkar hálfu. Hér lágu hins vegar leiðir okkar og Páls Lárusar saman en hann var þá hótelstjóri á Hótel Kea og Hótel Hörpu,“ segir Hlynur og Páll Lárus bætir við: „Vorið 2000, þegar við höfðum unnið hér saman í tvö ár og átt mjög farsælt samstarf, var rekstur Fosshótela á Hótel KEA og Hótel Hörpu til sölu. Ég lagði þá til við þá félaga að við sameiginlega myndum kaupa reksturinn og að vandlega íhuguðu máli ákváðum við að slá til.“ Það var svo hinn 1. janúar árið 2000 sem Veitingahúsinu Greifanum hf. var breytt í Eignar- haldsfélagið Greifann hf. og um leið stofnuð tvö dótturfélög, Veitingahúsið Greifinn ehf., sem rekur samnefndan veitingastað, og Keahótel ehf., sem annast rekstur allra hótelanna. - Hótelrekstur hefur löngum þótt erfiður og sveiflurnar miklar í rekstri og afkomu eins og í fleiri greinum ferðaþjónustunnar. Hvað var það sem að ykkar mati gerði hótelrekstur skyndilega að fýsilegum fjárfestingarkosti? „Reynslan af þessum rekstri, sem við vorum búnir að afla okkur, skipti auðvitað afar miklu máli. Við höfðum fulla trú á því að slíkur rekstur gæti gengið upp og gátum líka sýnt fram á það. Við höfðum einnig trú á að með fjölgun hótela yrði samlegðin meiri og reksturinn fengi styrkari stoðir. Við erum með tiltölulega litla yfirstjórn. Öll markaðs- og sölumál eru sameiginleg sem og bókhald og fleira. Það eykur hagræðið í rekstrinum,“ segir Páll Lárus. Næstu kaflaskil urðu í rekstrinum einu og hálfu ári síðar þegar Eignarhaldsfélagið Greifinn ákvað að nýta forkaupsrétt sinn á húseignum Hótel KEA og Hótel Hörpu, þ.e. Hafnarstræti 87-89 og 22 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 HVERJIR ERU GREIFARNIR? HLYNUR JÓNSSON 38 ára. Framkvæmda- og fjár- málastjóri Eignarhaldsfélagsins Greifinn hf. Hlynur stofnaði fyrirtækið 29. janúar árið 1989. Hann er með grunnskólapróf, hóf nám í matreiðslu en lauk ekki og hefur sótt námskeið í stjórnun og rekstri. Hann er fæddur á Akureyri og uppalinn í Eyjafjarðarsveit. „Á yfirstandandi ári gerum við ráð fyrir að veltan verði nálægt 800 milljónum og á því næsta um 900 milljónir. Hjá okkur starfa um 150- 160 manns í um 100 stöðugildum.“ PÁLL L. SIGURJÓNSSON 43 ára. Framkvæmdastjóri Keahótela hf. Hann er raf- virki að mennt og gengur inn í félagið þegar Eignarhaldsfélagið Greifinn hefur hótelrekstur á Hótel Kea og Hótel Hörpu árið 2000. Hann er fæddur og upp- alinn í Neskaupstað en flutti til Akureyrar árið 1997.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.