Frjáls verslun - 01.04.2005, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
D A G B Ó K I N
Fram kemur að Actavis
nái með kaupunum fótfestu á
markaði í Bandaríkjunum og geti
markaðssett lyf sín á stærsta
lyfjamarkaði heims í gegnum
sölustarfsemi Amide. Þannig
gefist tækifæri til að auka tekjur
félagsins og framlegð og styrkja
stöðu Actavis-samstæðunnar.
Þá gefist tækifæri til að mark-
aðssetja lyf Amide á núverandi
mörkuðum Actavis í Evrópu.
Allir lykilstjórnendur Amide um
að halda áfram störfum hjá
félaginu en forstjóri félagsins,
Divya C. Patel, tekur sæti í
framkvæmdastjórn Actavis.
Starfsmenn Amide eru um 200
talsins.
21. maí
Þórunn selur AVIS
Það kom nokkuð flatt upp á
menn þegar það var tilkynnt að
Þórunn Reynisdóttir, forstjóri
bílaleigunnar Avis og annar
eigenda fyrirtækis, væri búin
að selja fyrirtækið. Kaupandi
var bílaleigan ALP, sem einnig
rekur Budget-
bílaleiguna.
Seljandi var
fyrirtækið Auto
Reykjavík en
einungis bíla-
leigurekstur
Avis á Íslandi
var seldur út
úr félaginu.
Þórunn Reynisdóttir, fráfarandi
forstjóri AVIS og annar eigenda,
sagði í Morgunblaðinu, að sl.
ár hafi ítrekað verið óskað eftir
því að kaupa reksturinn. „Svo
kom álitlegt tilboð sem við
gengum að,“ sagði Þórunn og
bætti því við að hún væri búin
að vera í þessum rekstri í 15 ár.
„Nú er góður tími til að hætta.
Kominn tími til að gera nýja
hluti og fara í útrás.“ Hún hefur
átt Avis-bílaleiguna í félagi við
Bandaríkjamann.
Knútur G. Hauksson,
forstjóri Heklu.
23. maí
Knútur með bíladellu
Knútur G. Hauksson, fyrrverandi
forstjóri Samskipa, tók við starfi
forstjóra Heklu um mánaðamótin
um leið og Tryggvi Jónsson
varð starfandi stjórnarformaður.
Knútur eignast jafnframt hlut í
Heklu. Hjörleifur Jakobsson, for-
stjóri Olíufélagsins, hætti sem
stjórnarformaður en hann situr
áfram í stjórn Heklu. Knútur
er verkfræðingur að mennt og
að eigin sögn með „mikla bíla-
dellu“. Það hefur vakið athygli
margra að Knútur og Hjörleifur,
tveir af nánustu samstarfs-
mönnum Ólafs Ólafssonar,
stjórnarformanns Samskipa, séu
í forystusveit Heklu.
Það var mikil spenna í lofti
þennan dag. Einkavæðingarnefnd
sendi frá sér tilkynningu um að
12 af 14 hópum sem hefðu sent
inn óbindandi tilboð í Símann
fengju að halda áfram og taka
áfram þátt í útboðinu.
Með öðrum orðum: 12 fjár-
festahópar fá að afla sér frekari
upplýsinga um Símann í gegnum
kynningar, heimsóknir og áreiðan-
leikakannanir í því augnamiði að
gera bindandi tilboð í hlut ríkis-
ins í Símanum í júlílok.
Sex þessara fjárfestahópa
eru skipaðir erlendum aðilum
eingöngu og þrír hópar einungis
innlendum fjárfestum.
Þeir hópar, sem fá að taka
þátt í ferlinu áfram, eru eftir-
farandi:
1. Advent International,
Bretlandi
2. Breski fjárfestahópurinn
Altia sem í eru:
David Ross
Capricorn Ventures BVI
Sun Capital
TDR Capital
3. Apollo Management V, L.P,
Bandaríkjunum
4. Fjárfestahópur sem í eru:
Atorka Group hf.
Frosti Bergsson
Jón Helgi Guðmundsson
Jón Snorrason
Sturla Snorrason
5. Fjárfestahópur sem í eru:
Burðarás hf.
Kaupfélag Eyfirðinga svf.
Ólafur Jóhann Ólafsson LLC
Talsímafélagið ehf.
Tryggingamiðstöðin hf.
6. Fjárfestahópur sem í eru:
Cinven Limited, Bretlandi
Straumur fjárfestingarbanki
7. Fjárfestahópur sem í eru:
Exista ehf.
Kaupþing Banki hf.
Lífeyrissjóður verslunar-
manna
Lífeyrissjóður sjómanna
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
Samvinnulífeyrissjóðurinn
MP fjárfestingarbanki
Skúli Þorvaldsson
8. Fjárfestahópur sem í eru:
Hellman og Friedman
Europe
Limited, Bretlandi
Warburg Pincus LLC,
Bandaríkjunum
D8 ehf.
9. Madison Dearborn
Partners LLC,
Bandaríkjunum
10. Providence Equity
Partners Ltd.,
Bretlandi
11. Fjárfestahópur sem í eru:
Ripplewood, Bandaríkjunum
MidOcean, Bandaríkjunum
Íslandsbanki
12. Thomas H. Lee
Partners L.P.,
Bandaríkjunum
Þeir hópar, sem lögðu fram
tilboð en er ekki boðið að halda
áfram, eru Summit Partners Ltd.
í Bretlandi og Telesonique S.A.
í Sviss.
25. maí
Hver þeirra fær Símann í júlílok?
Þórunn
Reynisdóttir