Frjáls verslun - 01.04.2005, Page 33
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 33
D A G B Ó K I N
23. maí
Engey er
með sjö þilför
Nýjasta skip HB-Granda hf.
kom til landsins þennan dag
frá Póllandi og er um að ræða
stærsta skip íslenska fiskveiði-
flotans. Nafn skipsins er Engey
RE-1 og er það um 7 þús. brútt-
ótonn að stærð og 105 metra
langt. Skipið er 20 metra breitt
og með sjö þilför. Skipið er
smíðað í Vigo á Spáni árið 1994.
HB-Grandi keypti skipið í nóvem-
ber og hefur það verið í umfangs-
miklum breytingum í Póllandi
síðastliðna mánuði.
24. maí
Ásbjörn til Íslands
Það þurfti ekki að bíða lengi
eftir tilkynningu frá Samskipum
um það hver yrði eftirmaður
Knúts G. Haukssonar. Ásbjörn
Gíslason, forstjóri Samskipa í
Hollandi, flytur sig um set til
Íslands og tekur við af Knúti á
aðalskrifstofu félagsins. Hann
verður forstjóri ásamt Dananum
Michael F. Hassing, fyrrveranda
forstjóra skipafélagsins Mærsk á
Bretlandi. Hassing mun einkum
sinna gámaflutningastarfsemi
Samskipa erlendis og flutning-
smiðlun félagsins.
25. maí
Nýir stjórnar-
menn í TM
Á hluthafafundi Trygginga-
miðstöðvarinnar hf. voru Páll
Þór Magnússon og Kjartan
Broddi Bragason kosnir nýir í
stjórn félagsins en auk þeirra
skipa stjórnina þau Geir Zoëga,
Guðbjörg M. Matthíasdóttir og
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson.
26. maí
Kaupþing og
Nýherji verðlaunuð
Kaupþing banki og Nýherji fengu
verðlaunin IR Nordic Awards
fyrir Íslands hönd sem afhent
voru á glæsilegri verðlaunahátíð
á Nordica hóteli fimmtudags-
kvöldið. Þetta var galahátíð
eins og hún gerist best – þar
sem allir skörtuðu sínu fínasta
pússi. Það er breska fagtímaritið
Investor Relations Magazine
sem veitir norrænum fyrirtækjum
þessi verðlaun fyrir fjárfesta-
tengsl en um 200 fagfjárfestar
og greiningaraðilar hafa tilnefnt
norræn fyrirtæki til þeirra.
(Sjá nánar á bls 16.)
30. maí
Hagnaður af rekstri
Haga 1,3 milljarðar
Hagnaður af rekstri Haga, að
teknu tilliti til reiknaðra skatta
nam 1.302 milljónum króna á
síðasta rekstrarári félagsins sem
lauk 28. febrúar. Hagnaður fyrir
fjármagnsliði og skatta nam 26
milljónum króna. Hins vegar var
stórfelldur söluhagnaður vegna
sölu félagsins á Lyfju, sem
fellur undir fjármagnstekjur, og
skýrir hann hagnað fyrirtækisins.
Stjórnendur telja hagnaðinn
undir væntingum.
Hagar reka Bónus,
Hagkaup, 10-11, Skeljung,
Útilíf, Zöru, Debenhams og
Topshop. Samtals á félagið
81 verslun í þessum þremur
löndum. Jafnframt á fyrirtækið
innkaupafyrirtækið Aðföng og
Grænt og vöruhótelið Hýsingu.
31. maí
Þórólfur forstjóri
Icelandic Group
Það var nokkuð sérstakt
hvernig að forstjóraskiptunum
í Icelandic Group var staðið.
Þórólfur Árnason, fv. borgarstjóri
og forstjóri Tals, mætti til Kína
og tók þar á móti forsetanum
og fylgdarliði „nánast í beinni
útsendingu“. Enginn fjölmiðill
kom með skýringu á því daginn
eftir hvers vegna Þórólfur væri
þarna. Nokkrum dögum síðar
fór sá kvittur í gang að hann
ætti að taka við starfi forstjóra
Icelandic Group af Gunnari
Svavarssyni, sem verið hefur
forstjóri SH frá árinu 1999.
Icelandic Group varð til við
sameiningu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og Sjóvíkur. Fyrsti
hluthafafundur hins nýja félags
var haldinn 30. maí og þar var
samþykkt að breyta nafni félags-
ins í Icelandic Group og ráða
Þórólf sem forstjóra.
Þórólfur Árnason, forstjóri
Icelandic Group.
27. maí
Magnús Scheving samdi við Disney
Latibær hefur gert samning við Disney fjölmiðlafyrirtækið um
dreifingu á sjónvarpsþáttaröðinni í Frakklandi, Spáni og Ítalíu.
Magnús Scheving, forsvarsmaður Latabæjar vinnur nú að því að
koma þáttaröðinni í sýningu í sem flestum löndum, en nú þegar
sýna sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum, Kanada og Suður-
Ameríku þættina.
Þættirnir um Latabæ eru að slá í gegn á heimsvísu.