Frjáls verslun - 01.04.2005, Side 53
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 53
S V E I T A R S T J Ó R N A R M Á L
G
unnar Birgisson tók við af Hansínu
Björgvinsdóttur sem bæjarstjóri í
Kópavogi hinn 1. júní sl. Gunnar hefur
verið oddviti sjálfstæðismanna í Kópa-
vogi og formaður bæjarráðs frá árinu 1990 og
er því ekki ókunnugur starfsumhverfinu. En
hvernig hyggst hann stjórna Kópavogi?
„Með nýjum mönnum koma nýir siðir,
það er alltaf þannig,“ segir Gunnar og vill
ekki gefa upp hvort hann hafi einhverjar
ákveðnar breytingar í huga. „Það verður
bara að koma í ljós. Við vinnum náttúrlega
eftir ákveðnum meirihlutasamningi og þar
er að finna áherslumál beggja flokkanna.
Samstarf sem þetta byggir á sameiginlegri
niðurstöðu sem nær til allra bæjarmálanna,
og eftir því fer ég.“
Gunnar segir samstarfið við Framsóknar-
flokkinn ganga vel. „Það er búið að ganga í 15
ár og árangurinn sjá allir. Það voru rúmlega
16.000 íbúar í bænum þegar við tókum við,
en nú eru þeir orðnir 27.000. Að sama skapi
vorum við það sveitarfélag sem hafði læg-
star tekjur á íbúa, nú erum við að verða það
hæsta, þegar til skatttekna er litið. Þannig að
samsetningin í bænum hefur breyst.“
Til marks um góða samvinnu flokkanna
tveggja nefnir Gunnar að Kópavogur stendur
framarlega í menningu og listum og státar af
glæsilegum íþróttamannvirkjum og skólum.
Ekki sameining við Reykjavík
Þrátt fyrir að samstarf við nágrannasveitar-
félögin gangi vel, segir Gunnar að samstarf
við Reykjavíkurborg sé skrykkjótt. Gunnar
þvertekur því fyrir nokkurn möguleika á
sameiningu við borgina að minnsta kosti
næstu 20 árin. „Ég veit heldur ekki til hvers
það ætti að vera. Fólk er að flykkjast úr
Reykjavík í Kópavog. Við höfum engan
áhuga á að vera að sameinast Reykjavík
sem er skuldug upp fyrir haus. Það er mjög
merkilegt að borgarstjóri segir að Reykjavík
skuldi helmingi minna en Kópavogur og
tekur þá bara fyrir borgarsjóð, ekki fyrir-
tækin. En við verðum náttúrlega að taka
alla samstæðuna og þá skuldum við ríf-
lega helmingi minna heldur en borgin, sem
skuldar núorðið meira en 1.000.000 á íbúa.
Við skuldum aðeins 450.000 á íbúa. Þannig
að við höfum ekkert með það að gera að
sameinast skuldugu og illa reknu sveitar-
félagi.“
Gunnar sér heldur ekki fram á sam-
einingu við önnur nágrannasveitarfélög og
segir Kópavog vera í góðri stærð. „Þegar
Kópavogur verður fullbyggður, eftir um það
bil 20 ár, verður þetta 40.000 – 50.000 manna
samfélag. Það er ekkert bákn og aðgangur
að pólitískt kjörnum fulltrúum og embættis-
mönnum verður greiður. Það er einmitt það
sem við höfum kappkostað í gegnum árin,
ásamt því að hafa stjórnkerfið opið.“
Kópavogur er í örum vexti og Gunnar
bendir á aðeins á næstu sex árum muni
fjölga um allt að 8.000 manns í bænum. „Og
þá eigum enn eftir mikið af óbyggðu landi,
meðal annars uppi við Vatnsenda, auk þess
sem víða er hægt að þétta byggðina en það
mun gerast í öllum sveitarfélögum. Landið
er dýrt og nú er til dæmis töluvert um að fyllt
sé undir byggð úti í sjó, eins og til dæmis í
Bryggjuhverfinu í Reykjavík og í Garðabæ.
Hér á einnig að fara að byggja bryggjuhverfi
vestur á Kársnesi og þar munu búa um 1.000
manns.“
Gunnar bendir á að fjölgunin á höfuð-
borgarsvæðinu hafi verið hvað mest á suður-
svæðinu og hann telur að fjölgunin verði
mikil á þessu svæði næstu 20 árin. Hann
telur þó að eftir 2 – 3 ár muni hægja verulega
á þessari þenslu á svæðinu og að hún verði
ekki jafn mikið á kostnað landsbyggðar-
innar og verið hefur.
Stefnt er að byggingu nýs framhaldsskóla
í Kópavogi árið 2007. Gunnar telur að ef
fram fer sem horfir verði Menntaskólinn í
Kópavogi sprunginn innan þriggja ára. Nýi
skólinn og íþróttamannvirki honum tengd
muni rísa við Vatnsenda í samvinnu við
Knattspyrnuakademíu Íslands og þjóna efri
byggðum Kópavogs og nágrennis.
„Við höfum látið innviði samfélagsins
vaxa með byggðinni þannig að við byggjum
til dæmis grunnskólana, leikskólana, göngu-
stíga og opin svæði um leið og hverfið bygg-
ist upp. Þannig að þegar hverfið er fullbyggt
þá eru venjulega grunn- og leikskólarnir
tilbúnir og íþróttamannvirkin koma þá í
humátt á eftir.“
Gunnar segir lykilinn að þeirri miklu
eftirspurn sem er eftir húsnæði í Kópavogi
vera skipulega uppbyggingu sem gangi hratt
og vel fyrir sig.
GUNNAR BIRGISSON
„Fólk er að flykkjast úr
Reykjavík í Kópavog. Við höfum
engan áhuga á að vera að
sameinast Reykjavík sem er
skuldug upp fyrir haus.“
– Gunnar Birgisson,
bæjarstjóri Kópavogs.