Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2005, Side 57

Frjáls verslun - 01.04.2005, Side 57
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 57 góð“, en þarf ekki að halda því áfram og auglýsa jafnvel „Mjólk er best!?“ „Því miður mun Samkeppnisstofnun ekki samþykkja að við auglýstum þannig. Það er hins vegar athyglisvert að inni í sölutölum um gosdrykki er einnig átappað vatn og ávaxtasafi. Þessi markaður er að vaxa um 1% á ári, þ.e. svipað og fjölgun landsmanna. Þessir þrír flokkar, þ.e. mjólk, ávaxtasafi og gosdrykkir, eru að keppa um markaðinn en við teljum að það sé mjög heilsusam- legt fyrir fólk að drekka ákveðið magn af mjólk á hverjum degi. Þó svo að við höfum ekki náð að halda okkar hlutdeild í neyslu- mjólk hefur verið góð aukning bæði í ostum og ekki síður mjólkurréttum. Þannig erum við að sjá góða söluaukningu í heildina síðustu 12 mánuði ef salan er umreiknuð yfir í mjólkurlítra, og í rauninni mun meiri aukningu en sést hefur undanfarin ár. Þar hafa skarað fram úr heilsusamlegir mjólkur- réttir á borð við skyr.is sem er markaðsfærð bæði sem spónamatur og drykkur.“ Lífvirk efni sem hafa heilsubætandi efni Guðbrandur segir að þegar umræðan um innflutning á norskum kúm stóð sem hæst hafi verið haldið á loft kenningum um að íslenska kúamjólkin mundi draga úr sykursýki í börnum. Því sé eðlilegt að velta vöngum yfir hvort í mjólkinni séu einhver lífvirk efni sem hafi heilsubætandi áhrif. Benda má á LGG sem býr til jákvæðari þarmaflóru og stemmir af meltinguna og Benecol sem er afurð sem dregur úr kolester- oli, og er að koma sterk inn á markaðinn. Þetta eru dæmi um að lífvirk efni í mjólkinni hafi mjög góð áhrif. -Hefur góð eða slæm ímynd bændastéttar- innar einhver áhrif á neyslu mjólkurvara? „Það má velta því fyrir sér en ég tel að ímynd bænda hafi verið að batna hjá þjóðinni, ekki síst vegna þess að það hefur átt sér stað mikil og jákvæð þróun í greininni, bændum hefur fækkað en bú að sama skapi stækkað. Ég held hins vegar að sú kynslóð, sem nú er að vaxa úr grasi og hefur ekki mikla reynslu af sveitastörfum, sé ekki mikið að spá í þetta.“ -Faðir þinn, Sigurður Markússon, var mjög áberandi í starfi Sambandsins meðan það var og hét og var um tíma stjórnarformaður. Er sonurinn að hefja samvinnuhreyfinguna til vegs og virð- ingar á nýjan leik? „Samvinnufélög í dag eru allt öðru vísi en samvinnufélög á árum áður. Samvinnu- reksturinn eins og hann var gekk sér til húðar. En samvinnurekstur á mikinn rétt á sér enn, og gagnvart mjólkurbændum, sem eru að ná miklum árangri, er þetta mjög hentugt félagsform. Þarna eru margir öflugir atvinnurekendur, þ.e bændur með stór bú, og þeir vilja bara sjá fagleg og vönduð vinnu- brögð rétt eins og í hlutafélagarekstri. Ég held að sú þróun haldi áfram að bú stækki og bændum fækki. Jarðarverð hefur farið hækkandi og verðlagning framleiðsluréttar hefur einnig farið hækkandi. Þetta tel ég góðar fréttir fyrir bændur og endurspegla bætta afkomu þeirra auk þess sem þetta ýtir undir hagræðingu í greininni og gerir bændum kleift að bregða búi ef þeir svo vilja.“ - Á í auknu mæli að auglýsa íslenskar landbúnaðarvörur erlendis sem sjálf- bærar og ómengaðar ef útflutningur á þeim eykst í nánustu framtíð? „Það væri örugglega sterkt, en við þurfum þá að athuga bæði hvaða afurðir og markaðir henta best fyrir okkur. Ef ná á góðum árangri í útflutningi landbúnaðar- vara þarf samstillt átak sem mun örugglega taka nokkur ár.“ Guðbrandur segir, þegar talið berst að tómstundagamni, að hans helsta tómstunda- gaman sé fjölskyldan. Þau hjónin eigi þrjú börn, Önnu Katrínu 17 ára, Rögnu Kristínu 4 ára og Inga Hrafn 2 ára. Að frátalinni vinnu og fjölskyldu gefist lítill tími til annarra verka. Guðbrandur segist hafa séð allt of lítið af Íslandi, og það væri gaman af bæta úr því. Göngutúrar eru einnig vinsælir sem og veiðiskapur í hófi, og þar séu Víði- dalsá og Laxá í Þingeyjarsýslu í talsverðu uppáhaldi. M J Ó L K U R I Ð N A Ð U R „Ég tel að ímynd bænda hafi verið að batna hjá þjóðinni, ekki síst vegna þess að það hefur átt sér stað mikil og jákvæð þróun í greininni.“ Guðbrandur fær sér vænan mjólkursopa.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.