Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2005, Síða 94

Frjáls verslun - 01.04.2005, Síða 94
94 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5 SUMARIÐ ER TÍMINN The Activity Group býður viðskiptavinum fjölbreyt-tar afþreyingarferðir, þar sem ætlast er til að þátt-takendur séu virkir og eigi þess kost að upplifa ævintýri. „Spennan er undirliggjandi í öllu okkar ferða- framboði enda höfum við skynjað að sá markaður er afar stór og fer mjög vaxandi,“ segir Halldór Kristjáns- son, framkvæmdastjóri Activity Group, en rúm tvö ár eru síðan fyrirtækið var sett á laggirnar. Rómaðar jöklaferðir „Við sérhæfum okkur í ferðum á mikið breyttum farartækjum, á til dæmis sex til 14 farþega jeppum eða 19 til 30 farþega aldrifstrukkum. Stærsti bíllinn okkar er 50 farþega 8 hjóla risa trukkur sem við erum með uppi á Langjökli og förum við í útsýnisferðir um jökulinn á honum, að auki bjóðum við upp á vélsleða- og hundasleðaferðir. Alls eru sleðarnir okkar rúmlega sextíu, en lagt er upp í Langjökuls- ferðir bæði frá skálanum Jaka ofan við Húsafell og frá Skálpanesi á Biskupstungnaafrétti sem liggur að jöklinum austanverðum. Þeir sem koma með okkur í ferðir inn á jökul róma þær og segjast sumir aldrei myndu hafa trúað hve stórkostlegt ævintýri það er að fara um jökulinn beinan og breiðan þegar gott er skyggni. Þær slóðirnar sem við förum eru í 1.400 metra hæð og útsýnið stórkostlegt,� segir Halldór. Langstærstur hópur viðskiptavina Activity Group eru útlendingar eða nokkuð yfir 90%. Þar eru Þjóðverj ar fjölmennastir, en einnig eru margir Bretar og Norðurlandabúar. „Sá þáttur starfsemi okkar sem Íslendingar þekkja hvað best eru flúðasiglingar í Hvítá í Biskups tungum. Þær hófust fyrir allmörgum árum undir merkjum Bátafólksins og á þeim grunni byggjum við. Farið er niður Hvítá frá Brúarhlöðum, um það bil klukkustundar langa siglingu að Drumboddsstöðum þar sem við höfum ágæta aðstöðu. Þessar ferðir eru mjög vinsælar og sífellt meira sóttar.“ Hópeflisleikir ómissandi Halldór Kristjánsson segir þátttakendur í ferðum Activity Group á öllum aldri – og flóra þeirra verði sífellt fjölbreyttari. „Við erum með á okkar dagskrá skemmtilegar fjórhjóla- ferðir um Haukadalsskóg ofan við Geysi. Ekki alls fyrir löngu fórum við í frábæra ferð þar, m.a. með áttræða konu frá Svíþjóð, sem hafði átt sér þann draum alla tíð að keyra mótorhjól. Hún varð ekki fyrir vonbrigðum þegar sá draumur loks varð að veruleika.“ Activity Group er með fastar dagsferðir. Lagt er upp frá Reykja vík árla morguns og haldið meðal annars upp í Borgarfjörð eða austur fyrir fjall – hvort sem er í jöklaferð eða siglingu. Ferðaúrvalið er mikið og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Markmið okkar er að geta boðið okkar viðskiptavinum uppá heildar- lausnir í hverskyns afþreyingu. Fyrirtækið er einnig með sérferðir sem eru sniðnar að þörfum og óskum hvers viðskiptavinar. „Við setjum saman pakka í sam- ræmi við óskir hvers viðskiptavinar. Starfsmannahópar taka sig gjarnan saman og fara í ferðalög og þá eru ýmiss konar hópeflisleikir ómissandi. Mörgum finnst líka gaman að fara í hestaferðir – og meðal okkar viðskiptavina hefur slegið í gegn að fara í útreiðartúr frá Skógar- hólum í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þræða þar slóð gömlu eyðibýlanna þar sem sagan er við hvert fótmál.“ Activity Group Spennan er undirliggjandi Vélsleðar, flúða- sigl ingar og fjórhjól. Activity Group býður fjöl- breyttar ferðir þar sem þátttakend ur eru virkir og upplifa ævintýri. „Heildarlausnir í hvers kyns afþreyingu,“ segir Halldór Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Activity Group.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.