Frjáls verslun - 01.04.2005, Síða 98
98 F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 5
Hvað gerir ung leikkona sem
nýbúinn er að fá Óskarsverðlaunin
í annað sinn. Hillary Swank var
ekki í vafa, hún valdi að leika
unga kennslukonu í kvikmynd
sem heitir The Freedom Writers
og er leikstýrt af Richard LaGar-
vanese, sem er þekktur handrita-
höfundur og skrifaði meðal annars
handritin að The Fisher King og
The Bridges of Madison County,
en hefur ekki náð sömu hæðum
sem leikstjóri.
Myndin er byggð á sönnum
atburðum sem lýst er í bókinni
The Freedom Writer’s Diaries og
er skrifuð af enskukennara og
nemendum hennar. Í bókinni segir
frá kennslukonu, Erin Gruwell,
sem er að stíga sín fyrstu spor
í starfinu. Hún kemst að því á
fyrsta degi að enginn nemenda
hennar hefur heyrt minnst á hel-
förina gegn gyðingum, auk þess
sem hún finnur fyrir mikilli óþolin-
mæði hjá nemendum sínum. Hún
kastar öllum kennsluforritum frá
sér og fer í söguskoðum með nem-
endum sínum með því að láta þau
lesa Dagbók Önnu Frank og sjá
Schindler’s List. Hún hrífur nem-
endur sína með sér og í lok annar-
innar fá þau það verkefni að skrifa
ritgerð um það sem þau hafa
lært og setja það í samhengi við
eigið líf. Í bókinni eru síðan þessar
ritgerðir. (Þess má geta að nem-
endurnir hittu Steven Spielberg og
ræddu við hann um myndina.)
Ekki verður hægt að hefja
tökur strax þar sem Hillary Swank
hafði samþykkt að leika í tveimur
kvikmyndum áður en hún fékk
óskarinn fyrir Billion Dollar Baby,
The Black Dahlia, sem Brian de
Palma leikstýrir og verið er að
kvikmynda og The Reaping, sem
Stephen Hopkins leikstýrir. Sjálf-
sagt byrja tökur á The Freedom
Writers ekki fyrr en seint á þessu
ári.
Átta ár eru liðin síðan Batman and Robin var
tekin til sýningar. Héldu flestir að sú mynd
myndi ganga af Batman seríunni dauðri,
enda um einstaklega slaka mynd að ræða.
Svo var þó ekki og 12. júní mun nýjasta Bat-
man-myndin, Batman Begins, líta dagsins
ljós og eru væntingar miklar hjá þeim sem
að henni koma. Er sú mynd allt öðruvísi en
hinar myndirnar, ekki aðeins að nýr leikari,
Christian Bale, klæðist svarta búningnum,
heldur má segja að farið sé á byrjunarreit.
Myndin hefst á því að Bruce Wayne horfir
á með hryllingi þegar foreldrar hans eru
myrtir. Hann fyllist reiði og ákveður að
hefna sín, en örlögin koma í veg fyrir að
af því geti orðið. Hann flýr til Austurlanda
þar sem hann kemst í kynni við ninja-regl-
una, aðhyllist hana og vingast við foringja
hennar. Þegar hann kemur aftur til Gotham
borgar er allt í niðurníðslu og borgin á valdi
glæpamanna. Foreldrar Waynes voru mjög
ríkir og nú er verið að reyna að gera hann
eignalausan. Af tilviljun finnur hann helli
undir heimili foreldra sinna þar sem hann
sér búning, vopn og farartæki. Þegar hann
hefur klæðst þessum búningi verður hann að
annarri persónu, Batman.
Frægir leikarar Leikstjóri myndarinnar,
Christopher Nolan, sem einnig er handrits-
höfundur ásamt David S. Goyer, gerði hina
snjöllu Memento, og fylgdi henni eftir með
lítið síðri kvikmynd, Insomnia. Það var í raun
tilviljun að hann tók að sér að leikstýra Bat-
man Begins. Nolan var með fullbúið handrit
að kvikmynd um Howard Hughes og hafði
fengið Jim Carrey til að leika aðalhlutverkið,
þegar það fréttist að Martin Scorsese væri
kominn lengra áleiðis með Aviator, sem
einnig er byggð á ævi Hughes. Hann setti því
handrit sitt upp í hillu og tók tilboði um að
leikstýra Batman Begins.
Fjöldinn allur af frægum leikurum eru
í myndinni. Fyrir utan Christian Bale má
nefna Michael Caine, Liam Neeson, Morgan
Freeman, Gary Oldman, Ken Watanabe,
Katie Holmes, Tom Wilkinson, Rutger Hauer
og Linus Roach.
Þess má svo geta að Batman-myndin er
að hluta til tekin á Íslandi, eins og flestum
er í fersku minni, en er einnig tekin á Bret-
landseyjum og í Bandaríkjunum.
Spielberg valdi Bale Christian Bale er
fæddur í Wales og hafði leikið í þremur sjón-
varpsmyndum og slegið í gegn á leiksviði í
London þegar Steven Spielberg valdi hann
í aðalhlutverkið í Empire of the Sun. Þá var
Bale 13 ára gamall.
Eftir að Bale komst á fullorðinsár hefur
hann leikið jöfnum höndum í kvikmyndum
og leikhúsi. Stóra stökkið var árið 2000 þegar
hann sýndi magnaðan leik í hlutverki hins
kolbrjálaða morðingja, Patrick Bateman. Bale
tekur leiklistina alvarlega og má geta þess að
í nýjustu kvikmynd sinni The Machinist, létti
hann sig niður í 59 kíló til að líta sannfærandi
út. Hann þurfti svo að þyngja sig heilmikið og
fara í ræktina fyrir Batman Begins.
KVIKMYNDIR
TEXTI: HILMAR KARLSSON
BATMAN Á BYRJUNARREIT
Hillary í hlutverki kennslukonu
Hillary Swank í hlutverki sínu í
Billion Dollar Baby, sem færði henni
Óskarsverðlaunin í annað sinn.