Frjáls verslun - 01.11.2006, Qupperneq 104
104 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6
BESTU HERFERÐIRNAR
„Ímyndarherferð Glitnis tókst að minni hyggju afar vel, enda voru
stjórnendur bankans einhuga að baki breytingunni sem er algjört skil-
yrði þess að endurmörkun takist. Í kjölfar þess að nýtt nafn var tekið
upp var farið í viðamikla herferð og öfluga innri markaðssetningu. Að
fá starfsfólk til virkrar þátttöku skipti miklu, enda er hlutverk þeirra
að skila þeim gildum sem fyrirtækið setur sér,“ segir Sverrir Björnsson,
framkvæmdastjóri hönnunarsviðs Hvíta hússins.
Íslandsbanki var settur á laggirnar árið 1990 og hafði allt frá upp-
hafi sterkari samkeppnisímynd en aðrir bankar. Hún dalaði hins
vegar þegar gömlu ríkisbankarnir voru seldir til einkaaðila sem aftur
leiddi til þess að þeir urðu virkari gerendur á markaði en verið hafði.
Á sama tíma var Íslandsbanki í örum vexti erlendis og skilgreindi sig
nú sem íslensk-norskan banka. Þetta kallaði á endurmörkun bankans
og nýtt heiti.
Eins árs ferli
Nýja Glitnisnafnið var kynnt 10. mars sl. á samkomu með öllum
starfsmönnum bankans, en þá var liðið um það bil eitt ár frá því
vinna við nýja stefnumótun, endurmörkun og útlitsbreytingar hófst.
„Í samstarfi við Loewy group í London voru eiginleikar bankans og
viðhorf viðskiptavina til hans kannað ofan í kjölinn og þegar nið-
urstöður lágu fyrir voru lagðar línur um framhaldið, bæði innra starf
og auglýsingaherferðina,“ segir Sverrir.
Samkeppnisímynd Glitnis hefur síðustu mánuði styrkst til muna
og hefur bankinn nú afgerandi forystu á því sviði. Um 31% stjórn-
enda í mælingu Capacent Gallup í júní sl. taldi bankann í fararbroddi
á markaðnum sem setur hann í efsta sætið í þeirri mælingu. Auglýs-
ingaeftirtekt mælist mun hærri í samanburði við aðra banka og stöðu
bankans sjálfs fyrir ári, áður en honum var breytt og rautt gert að
einkennislit bankans, en samkvæmt fræðunum stendur hann fyrir
frumkvæði og drift, gildi sem Glitnir hefur gert að sínum og lagt
áherslu á eins og sjá mátti til dæmis í Reykjavíkurmaraþoninu, en
bankinn var og er helsti bakhjarl þess.
Glitnir í fararbroddi
„Höfuðmarkmið herferðarinnar var að Glitnir yrði haustið 2007 í
efsta sæti mælingar Capacent Gallup á því hvaða banki væri í far-
arbroddi hvað varðar samkeppnisímynd. Það takmark náðist hins
vegar strax nú í haust, ári fyrr en vænst var. Það er frábær árangur
sem ekki verður skýrður öðruvísi en svo að allt hafi gengið upp, það
er undirbúningur, stefnumótun og skapandi herferð,“ segir Sverrir
Björnsson að síðustu.
Frumkvæði og drift
Sverrir Björnsson, framkvæmdastjóri hönnunarsviðs Hvíta hússins.
Herferð Glitnis leiddi til þess að bankinn náði að nýju sterkustu sam-
keppnisímynd bankanna.
Hvíta húsið / Glitnir
Flokkur: Þjónusta
Verðlaun: Silfur
Titill: Ímyndarherferð Glitnis