Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 115

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 115
UMSAGNIR UM BÆKUR Höfundur leiðir að því ljós rök með hinni díalektísku rannsóknaraðferð sinni, að frumhæfingarnar þrjár (samsemdarlögmál- ið, mótsagnarlögmálið og lögmálið um ann- að' tveggja) feli í rauninni hver aðra í sér, það sé ein og sama hugsunin, sem í þeim felist öllum saman, sem sé þessi: „Allt, sem liugsunin tekur til, er greint í A og ekki-A“. Hér er um að ræða rökfræðilega niður- stöðu, sem hefur víðtækar afleiðingar, og er fróðlegt að sjá, hvernig henni verður tekið. Síðari ritgerðin um þekkingarfræði lieit- ir Hughyggja — efnishyggja. Hér ræðir um það grundvallarvandamál þekkingarfræð- innar, hvort til sé hlutveruleiki óháður mannlegri skynjun eða ekki. Eftir afstöð- unni lil þessarar undirstöðuspurningar skiptist heimspekin í tvær meginstefnur, hughyggju og efnishyggju. Efnishyggjan heldur því fram, að hlutveruleiki óháður skynjun vorri sé til, en hughyggjan neitar því eða lieldur því að minnsta kosti fram, að enginn vegur sé að sannreyna, að svo sé. Fylgjendur hughyggjunnar viðurkenna að vísu, að þeir geri ráð fyrir tilvist hlutveru- leika í hinni daglegu breytni sinni, en full- yrða, að slík afstaða byggist ekki á óyggj- andi þekkingu og sé því óleyfileg innan heimspekinnar. Upphafsmenn hinnar díalektísku efnis- hyggju, heimspekikenningar marxismans, telja að reynslan, bæði reynsla hins daglega lífs og sú reynsla og þekking, sem fæst með nútímavísindum, sé nægileg sönnun fyrir tilvist hlutveruleikans, og þar eð hughyggju- menn viðurkenni þetta í reynd, séu allar liinar lærðu útlistanir þeirra á hinu gagn- stæða einber skólaspeki, án allrar hagnýtrar þýðingar. Hafa marxistar æ siðan látið sér nægja þessa röksemd í deilum sínum við hughyggjumenn um þetta efni. En hug- byggjan heldur áfram að lifa góðu lífi og fulltrúar hennar liafa kannski aldrei verið ötulli en síðustu áratugina við að túlka sjónarmið hennar: afneita hlutveruleikan- um í nafni vísindalegrar hugsunar. I ritgerð sinni um þetta efni gengur höf- undur feti framar en venja marxista liefur verið, lætur ekki sitja við hina hagnýtu sönnun, heldur haslar sér völl innan tak- marka sjálfrar heimspekinnar. Hann tekur sér fyrir hendur að sýna fram á, að rök- semdir htighyggjumanna fái ekki staðizt, að sá þekkingarfræðilegi grundvöllur, er þeir reisa kenningar sínar á, sé raunveru- lega baldlaus. Niðurstaðan af röksemda- leiðslu hans er í stuttu máli þessi: Ef hug- hyggjumaðurinn viðurkennir lögbundið samhengi milli fyrirbæranna, jafngildir það viðurkenningu á hlutveruleikanum. En ef liann liins vegar afneitar öllu lögbundnu samhengi, er honum ekki leyfilegt að álykta, og dómar hans eru markleysa. Höfundur orðar niðurstöðu sína á þessa leið: „Til þess að geta ályktað eða fellt gildan dóm, verðum vér að viðurkenna tilvist nátt- úrulögmála eða lögbundins samhengis til- verunnar. Annars höfnum vér sjálfum oss sem vitsmunaverum, meira að segja réttin- um til að efast. Vér afneitum sjálfum grund- velli lífs vors.“ Þessi ritgerð er tvímælalaust mjög merkt framlag í hinni þekkingarfræðilegu deilu og díalektískri efnishyggju varanlegur á- vinningur. Næstu þrjár ritgerðirnar fjalla um nátt- úrufræðileg efni, og heitir sú fyrsta þeirra Efni og orka. Þar gagnrýnir höfundur í stuttu en skýru máli notkun eðlisfræðinnar á hugtökunum efni og orka, einkum þá til- hneigingu nútímaeðlisfræði að nota orku- hugtakið sem samnefnara hlutveruleikans. Leggur hann til, að efnishugtakið verði aft- ur látið hljóta þann sess, en þá í rýmri merk- ingu en það hefur nú innan eðlisfræðinnar. Næsta ritgerð fjallar um rúm, tíma og óendanleika. Höfundur ræðir þessi hugtök 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.