Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Blaðsíða 15
RITSTJÓRNARGREINAR
fylgjendur Framsóknar og Alþýðuflokksins. Þessir gömlu hernámsflokkar hafa ekki tekið
neinum sinnaskiptum. Þeir munu ekki af eigin hvötum beita sér fyrir brottflutningi hers-
ins, það þarf að reka þá til þess. Og það þarf að gerast áður en þeir hafa sprengt stjórnar-
samstarfið. Sá meirihluti þjóðarinnar, sem veitti núverandi stjórnarflokkum atfylgi í þing-
kosningunum s.l. sumar, verður að krefjast einbeittlega efnda á loforðunum um brott-
flutning hersins. Vér verðum að gera nýtt átak í herstöðvamálinu — heldur í dag en á
morgun.
10. marz.
Mál og menning
Afmælishátíð í haust
Viniu Máls og menningar hafa ástæðu til að fagna árinu 1957 því að í suinar á félagið
tuttugu ára afmæli, og er stofndagur þess 17. júní þó að fyrstu félagsbækurnar, Vatna-
jökull og Rauðir pennar, kæmu ekki út fyrr en um haustið 1937. Leiðir af sjálfu sér að við'
verðum aff styrkja sem bezt Mál og menningu í ár og gera tvítugsafmælið hátíðlegt og
minnisstætt í sögu félagsins.
I sambandi við Mál og menningu er margt að rif ja upp, því að þó aldurinn sé ekki hár
hafa árin verið þeim mun viðburðaríkari, og Mál og menning hefur ekki unnið lítið starf
í þágu íslenzkrar menningar og bókaútgáfu og komið mörgu af stað. Þó að ekki séu dregin
saman nema höfuðatriðin úr sögu félagsins er af miklu að taka í afmælisfagnað, og er hitt
þó meira um vert að félagið hagnýti sér tuttugu ár reynslu sína til að marka sér á afmæl-
inu djarfa framtíðarstefnu og setja sér ný verkefni í anda þeirrar bjartsýni sem einkennt
liefur starf Máls og menningar frá byrjun.
Stjórn félagsins hugsar sér að afmælishátíðin verði ekki fyrr en í september í haust, í
Reykjavík, og er ósk vor að umboðsmenn félagsins sem víðast af landinu geti sótt hátíð-
ina. Okkur er Ijóst að ferð til Reykjavíkur Iiefur mikinn kostnað í för með sér fyrir þá sem
langt eiga að og mun félagið sjálft reyna að taka þátt í þeim kostnaði. Fyrir utan afmælis-
fagnaðinn mun félagið gangast fyrir tveim-þremur samkomum þar scm skáld og rithöfund-
ar sem mest hafa komið við sögu félagsins flytja erindi eða skáldskap eftir sig. Líklegt
er einnig að bókasýning o. fl. verði í sambandi við afmælið.
Vegamót
Eins og áður hefur verið frá skýrt var stofnað haustið 1953, að frumkvæði Máls og
menningar, hlutafélagið Yegamót í þeim tilgangi að kaupa eða reisa hús fyrir bókabúð
og aðra starfsemi Máls og menningar, og þetta félag festi þá kaup á Laugavegi 18 í Reykja-
vík, gömlum liúsum á allstórri lóð. Draumur Vegamóta og stjórnar Máls og menningar var
að reisa þarna nýja byggingu sem fullgerð yrði fyrir tuttugu ára afmæli Máls og menning-
ar í ár. En vegna synjunar ár eftir ár um fjárfestingarleyfi gat sá draumur ekki rætzt.
5