Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Blaðsíða 27
AUGUST STRINDBERG
Hin sterkari
Einþáttungur
Á íslenzku eftir Einar Braga.
Leikinn í Listamannaklúbbnum 19. nóvember 1956.
Leikstjóri: Gunnar R. Hansen.
Frú X: Guðbjörg Þorbjarnardóttir.
M:lle Y: Helga Bachmann.
Oheimilt er að leika þáttinn nema með leyfi þýðanda og Islandia Edition.
' SVIÐ
Horn í kaffihúsi; tvö lítil járnborð, rauður flossóji og nokkrir stólar.
Frú X kemur inn vetrarklœdd með hatt og í kápu, ber fallega japanska körfu
á handleggnum.
M:lle Y situr yfir liáljri ölflösku og er að lesa í myndablaði, leggur það síð-
an frá sér og byrjar á öðru.
Frú X: Góðan daginn, Amalía mín! -— Situr þú ein hér á aðfangadag jóla,
eins og athvarfslaus ókvæntur maður.
M:lle Y lítur upp úr blaðinu, kinkar kolli og heldur áfram að lesa.
Frú X: Eg segi það satt, að ég tek reglulega nærri mér að sjá þig: eina, al-
eina á kaffihúsi á sjálfan aðfangadag jóla. Mér fellur það ámóta illa og
þegar ég sá einu sinni nývígð brúðhjón ú veitingahúsi í París: brúðurin
sat og var að lesa í skemmtiriti, en brúðguminn var að spila billjarð við
svaramennina. Úff, hugsaði ég: hvernig verður framhaldið og endirinn,
fyrst upphafið er svona!
Hann spilaði billjarð á brúðkaupsdaginn sinn! — Og hún las í skemmti-
riti, geturðu hugsað þér! Jæja, það er náttúrlega ekki alveg jafn slæmt!
Framreiðslustúlkan kemur inn, setur súkkulaðibolla á borðið hjá Frú X
og fer út.
tímarit máls og mennincar
17
2