Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Blaðsíða 78
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
in, sem kröfugöngumenn tóku úr her-
búöum, voru talin, og vopnin, sem
skilað hefur verið fram að þessu,
fara ríflega fram úr þeirri tölu, enda
þótt mikið af vopnum sé enn falið.
Maður að nafni Dénes Horvath út-
býtti vopnum meðal námumanna í
Pécs. Síðustu árin hafði hann húið
skammt frá Pécs, í Konló, og stundað
læknisstörf. Þegar hann var beðinn
um að sýna skilríki sín, hvarf hann,
en kom aftur fram uppreisnardagana
í október.
Fyrir nokkrum vikum stofnuðu
verkamenn, er vildu koma á ró og
reglu, til fjöldagöngu til stuðnings við
Kadarstjórnina. Þá var ráðizt á þessa
friðsömu kröfugöngumenn. Um
fjörutíu af árásarmönnunum voru
handteknir, og þrjátíu og tveir þeirra
viðurkenndu, að þeir hefðu verið
sendir ásamt vopnum sínum frá Vest-
urlöndum.
Ég held, að þessi fáu dæmi, sem
valin eru af handahófi, sýni, hvernig
réttmæt reiði almennings tengdist til-
raun til vopnaðrar gagnbyltingar, sem
sumpart var undirbúin erlendis.
Þann 23. okt. hófst lýðræðissinnuð
alþýða Ungverjalands handa um að
binda endi á völd Rakósí-Gerö-klík-
unnar, sem bæði var mótsnúin alþýðu
og lýðræði, og að byggja upp sósíal-
isma með því að endurreisa pólitískt
og efnahagslegt lýðræði. En frá upp-
hafi blönduðu gagnbyltingarsinnar
sér í hreyfinguna og tóku síðar stjórn
hennar í sínar hendur. Þann 22. okt.
héldu stúdentar fjölmarga fundi og
ákváðu að taka frumkvæðið með frið-
samlegri kröfugöngu daginn eftir,
nokkrir vopnaðir menn reyndu að ná
á sitt vald prentsmiðju til þess að
prenta þar flugmiða. Þeir flýðu, þeg-
ar lögreglan kom á vettvang. Þegar
kröfugangan var stödd fyrir framan
þinghúsið, settust þeir um útvarps-
stöðina, reyndu að hertaka vopnabúr.
og aðrir hernaðarlega mikilvægir
staðir urðu einnig fyrir árásum. Það
var þá, að Gerö bað um aðstoð þeirra
sovéthersveita, er bækistöðvar hafa í
Ungverjalandi samkvæmt Varsjár-
samningnum. A sama tíma gerðu
vopnaðir hópar árásir á flokksbygg-
ingar í Ujpest, Kispest, Pestlérine,
Albertfalva og í 13. borgarhverfi, og
náðu þeim á vald sitt. Þann 26. voru
allar flokksbækistöðvar úthverfanna
í umsátursástandi og þann 30. voru
aðalflokksstöðvarnar í Búdapest tekn-
ar herskildi. Þar voru um fimmtíu
manns vægðarlaust myrtir, þar á
meðal ritari félagsstjórnar, kunnur
andstæðingur Rakósís, rakari að iðn.
og einnig hernaðarsendinefnd, sem
þar var stödd af tilviljun. Allt þetta
gerðist á þeim tíma, er forseti lands-
ins og mikill hluti ríkisstjórnarinnar
voru kommúnistar.
Að morgni hins 25. var birt sam-
tímis á mörgum stöðum í borginni
skipun um að taka af lífi meðlimi
pólitísku lögreglunnar. Mannaveið-
68