Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Blaðsíða 76
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
eftir í landinu, og hugmyndakerfi
þeirra — þjóðrembingur, gyðinga-
hatur, hugmyndin um að endurreisa
Stór-Ungverjaland — hélt áfram að
hafa sín áhrif, þó að ekki væri það
boðað opinberlega. Þetta stafaði að-
allega af því, að klerkastéttin, sem
misst hafði hinar geysimiklu land-
eignir sínar, var bandamaður þeirra
um að endurreisa „gömlu stjórnina“.
En ungversku þjóðinni, sem öld-
um saman hafði búið við eymd og
kúgun, skapaði alþýðulýðræðið
möguleika á velmegun og framför-
um. Þær ráðstafanir, sem gerðar
voru á fyrsta skeiði alþýðulýðveldis-
ins, sköpuðu nauðsynlegan grund-
völl fyrir því, að hægt væri að hag-
nýta þessa möguleika. Afnám aðals-
skipulagsins í sveitum með uppskipt-
ingu stórjarða, þjóðnýting banka og
stórra verksmiðja og skipulagning
framleiðslu og dreifingar eru sigrar,
sem þjóð okkar vill varðveita. En
valdi alþýðunnar var misbeitt og
heilbrigðri þróun til sósíalisma spillt
með einræðislegum aðgerðum, bæði
skriffinnskulegum og ólöglegum, af
hálfu þeirrar klíku, er safnazt hafði
um þá Rakosí og Gerö. Sumar stjórn-
arstofnanir tóku sér vald ofar lögun-
um, en með því rofnaði sambandið
milli laga og framkvæmda. Pólitík-
inni var þröngvað að oss ofan frá,
skipulagningin var óraunhæf, tók
ekki tillit til möguleikanna og arftek-
innar efnahagslegrar getu vorrar.
Eftir fyrstu sigrana létust valdhafar
landsins ekki sjá hin versnandi lífs-
kjör eða minnkandi landbúnaðar-
framleiðslu. Klíka Rakósís og Gerös
efldi einræðisaðstöðu sína og útilok-
aði hvern þann, sem bar fram gagn-
rýni. Hún reyndi að ljúga til um hinn
efnahagslega afturkipp með áróðri,
sem enginn lagði trúnað á.
Þessi pólitík og þessar skaðlegu
stjórnaraðferðir hlutu að enda með
árekstri við alla ungversku þjóðina.
Með öðrum orðum, allir þeir, sem
vildu, að sósíalisminn yrði byggður
upp með heiðarlegum og lýðræðis-
legum aðferðum, voru komnir í sömu
sveit og þeir, sem vildu steypa stjórn-
inni og endurreisa kapítalismann,
eins þótt klíka Rakósís og Gerös hefði
ekki spillt ríkisvaldi alþýðulýðveldis-
ins.
Samtímis hafa ungverskir flótta-
menn á Vesturlöndum — fyrrverandi
stórjarðeigendur, kapítalistar, Hortý-
liðsforingjar, lögreglumenn o. fl. -—•
þegið árum saman fé úr gildum sjóð-
um, sem til þess voru ætlaðir að
undirbúa endurreisn fyrri stjórnar
með hjálp opinbers og leynilegs áróð-
urs í útvarpi, blöðum og flugritum.
Með aðstoð bandamanna sinna í
landinu sjálfu tókst þeim að ná ár-
angri, fyrst og fremst eftir að hin
ranga pólitík Rakósís tók að grafa
undan sósíalismanum. En aldrei var
þó hægt að birta opinberlega tilgang
þessarar starfsemi. því að yfirgnæf-
66