Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Page 72
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR máli, hvort við værum gift eða ekki gift. Gifting er skrípaleikur.“ Andsvar hennar var rólegt og hnit- miðað: „Ef ég á að taka þetta sem bónorð, svara ég því, að eins og ég hef nú þegar sagt þér, þá er ég trúlofuð og ætla að ganga í hjónaband með Ar- sæli Grímssyni innan fárra daga. Eg hef enga löngun til að breyta þeirri ákvörðun.“ Hann var staðinn upp af bekknum og fór skyndilega að blæja. „Ég verð að viðurkenna, að með hliðsjón af borgaralegu siðferði er óviðeigandi að leggja hjúskapartil- boð fyrir konu, sem er trúlofuð öðr- um manni. Auk þess tók ég víst ekki með í reikninginn, að samkvæmt borgaralegum skilningi er ég alls ekki þess umkominn að sjá fyrir konu eins og sagt er. Af því leiðir, að ég hef farið með marklaust hjal. En væntanlegur bóndi þinn selur blóm. Það er göfug atvinna að selja blóm.“ Hún svaraði þessu engu. En hann sagði: „Jæja. Nú ætla ég að labba, var eiginlega á hraðferð í bæinn. Vertu blessuð. Ég vona þú haldir áfram að yrkja.“ „Blessaður.“ Hún sat eftir og reykti. Á leiðinni í bæinn veitti hann því athygli, að sólinn undir öðrum skón- um hans var að losna. Og þó var ekki lengra síðan en í fyrradag, að hann hafði tyllt honum upp í blindsólann með átta smánöglum og meira að segja bnykkt þá. Ársæll Grímsson, búlduleitur, vin- gjarnlegur náungi á þrítugsaldri, var einn í blómabúðinni sinni. „Komdu sæll, Ársæll,“ sagði skáld- ið. „Nei, sæll og blessaður, frændi. Hvað er að frétta?“ „Það helzt, að þú ætlir að lara að gifta þig,“ svaraði skáldið. „Já, þú hefur frétt það,“ sagði blómakaupmaðurinn eitt sólskins- bros. „Hver sagði þér?“ „Ég mætti konuefninu þínu á leið- inni í bæinn. Ég óska þér til ham- ingju.“ „Þakka þér fyrir. Já, þið þekkizt eitthvað?“ „Við þekkjumst öll þetta unga fólk, sem fæst við að yrkj a.“ Andlit kaupmannsins Ijómaði áfram af brosi. „Já, karl minn, það gengur svona,“ sagði hann. Það kemur að því, að mann langar til að stofna heimili — og maður kynnist gáfaðri og góðri stúlku, sem þykir vænt um mann og-.“ „Það var og,“ greip skáldið fram í fyrir honum. Blómasalinn hætti að brosa. „Kiljan,“ sagði hann, „þið eruð alltaf vitnandi í Kiljan.“ „Ekki segi ég það nú. En mér finnst þetta tilsvar „það var og“ ágætt og 62

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.