Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Síða 84

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Síða 84
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Val Ólafs Jóhanns á sögum í Jiessa bók finnst mér liafa tekizt allvel, og er slíkt þó atriði, sem endalaust má deila um. Hann kveðst þar hafa látið eigin geðþótta ráða, og svo það, hverjar sagnanna hafi orðið sér minnisstæðastar. Um þá aðferð er ekki nema gott eitt að segja; hún er heiðarleg, svo langt sem hún nær. — Hann hefur ekki kosið að raða sögunuin eftir aldri þeirra, enda er það ekki nauðsynlegt í sjálfu sér. En úr því að slíkt er ekki gert, hefði alls ófróðum lesendum getað verið til nokkurrar glöggvunar á höfundi, að ár- tal hefði fylgt hverri sögu. Hér er um þess- konar yfirlit að ræða, þótt ekki eigi það beinlínis að vera úrval, að vel hefði farið á því. Annars er útgáfan í alla staði prýði- leg og frágangur til fyrirmyndar. Rakst ég samt á þrjár eða fjórar prentvillur í bók- inni, mér til stórrar furðu. Einatt er bóktim talið til gildis, ef les- endur eiga bágt með að leggja þær frá sér fyrr en þeir ern búnir með þær. Þetta á sjálfsagt prýðilega við um ýmsar skáld- sögur. Aftur er ég ekki viss um, að slíkt þurfi að vera góð meðmæli með smásagna- safni, og fer það þó m. a. eftir því, hvern- ig lesið er. Ég hlýt að viðurkenna, að mér var ógjörningnr að klára „Sextán sögur“ 11 alldórs Stefánssonar í fljótheitum. Því að þótt ég hafi lesið þessar sögur áður, og myndi þær velflestar, urðu þær mér við enduriesturinn svo nýjar, á ýmsan hátt, að ég gat sjaldnast fengið mig til að hefja lestur annarrar sögu að einni lokinni. Hver og ein greip mig þeirn tökum og vakti mig til slíkrar umhugsunar, að ég kaus að geyma áhrifin án þess þau trufluðust af nýju söguefni. H. St. tekst það nefnilega, sem er aðal góðra höfunda, einkum snjallra smásagnahöfunda, að hrífa lesand- ann til skynjunar langt útfyrir þann vett- vang er sagan nær, bæði í tíma og rúmi. Minnist ég nú ekki annarrar bókar, er heppilegri gæti verið til að vekja áhuga íslenzkra lesenda almennt fyrir hinu göf- uga formi smásögunnar en „Sextán sögur“ hans. Að loknum lestri hennar fannst mér ég hafa lesið margar bækur. Elías Mar. Kvæðasafn GuSmundar Böðvarssonar Heimskringla 1956. að var mikill fengur ljóðaunnendum að fá í hendur öll kvæði Guðmundar Böðv- arssonar í einni bók nú á síðastliðnu hausti. Giiðmundur er eitt þeirra fáu skálda sem eiga erindi við kröfuharðan lesanda oftar en einu sinni. Ljóð hans mörg eru dýrgripir íslenzkrar tungu og því hjartfólgin geymd öllum þorra bóklesandi íslendinga — eða ælti að vera. Þó að ýmis þessara kvæða hafi um langt árabil sungið í huga undirritaðs eins og ljúft viðlag við aðra og ómstríðari söngva, þá er honum engu að síður kært að hafa þau í höndum á ný bókfest og í ófor- gengilegri búningi en hrörnandi heilafrum- ur hans sjálfs geta léð þeim. Ég á við kvæði eins og Kyssti mig sól, Vísur um birkilauf, Vor borg, Rauði steinninn, Hin hvítu skip, Tvær hæðir, Stephan G., Hinn síðasti morg- unn, I vor, Hörpuskel. Og miklti fleiri kvæði sem á ný syngja inn í hug minn þegar ég fletti bókinni: Fylgd, Jólakort frá 1910, Hrjóstursins ást, Bogmenn, Lyngheiðin rauð, Þokuriddarinn, Boltaleikur, Vísurnar við hverfisteininn. Og kvæði eftir kvæði sem ég hef ekki veitt athygli fyrr: bókin er svo auðug. Mér verður hugsað til þeirra kynslóða sem á eftir koma: Hvílíkt ævintýri verður þeim ekki að vakna til meðvitundar um 74
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.