Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Side 91

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1957, Side 91
Orðsending frá Máli og menningu urn útboð á skuldabréfum til hlutafjárkaupa í Vegamótum h.f. Eins og skýrt hefur verið frá áður í Tímaritinu gekkst Mál og menning haustið 1953 fyrir stofnun hlutafélags, með einnar millj- ón króna hlutafjárupphæð, til að kaupa eða reisa hús fyrir starf- semi Máls og menningar. Hlutafélagið nefnist Vegamót og hefur það keypt húseignina Laugaveg 18 og Vegamótastíg 3 og 5 í Reykjavík, og er hlutafjár- söfnun langt komin. í því skyni að bókmenntafélagið sjálft, Mál og menning, geti eignazt sem stærstan hlut í Vegamótum h.f. hefur stjórn félagsins gert útboð á 300 þúsund króna láni, 1000 króna, 500 króna og 250 króna handhafaskuldabréfum. Lánið er boðið út til 15 ára með 7% vöxtum, afborgunarlaust fyrstu 5 árin, en bréfin síðan dregin út á næstu tíu árum. Enn er nokkuð óselt af þessum bréfum og eru þau til sölu í aðalskrifstofu Máls og menningar, Þingholtsstræti 27, í Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðustíg 21, og hjá umboðsmönnum félagsins. Eflið Mál og menningu með því að gera hlut félagsins sem stærstan í Vegamótum. STJÓRN MÁLS O G MENNINGAR Kristinn E. Andrésson. Jakob Benediktsson. Ragnar Ólafsson. Halldór Kiljan Laxness. Halldór Stefánsson.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.