Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 62

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1959, Page 62
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR við lítum á fornar ættskrár, sjáum við' ættfesti einstakra nafna. Nú ber oft svo við, að börn eru lát- in heita eftir fleirum en einum, og er það ævaforn siður. Slíkt er einkum hægt, ef um samsett nöfn er að ræða. Ef foreldrar vildu láta son sinn heita eftir manni, sem hér Hallgeir, og konu, sem hét Þorbjörg, gátu þau látið sveininn heita Halldór, Þórhall, Þorgeir eða Hallberg. í öllum þessum nöfnum koma fyrir liðir úr báðum fyrri nöfnunum. A sömu lund var hægt að láta stúlku heita eftir þeim Hallgeiri og Þorbjörgu og kalla hana Hallbjörgu, Þórhöllu, Halldóru, Geir- björgu eða Þorgeiru. En til slíkra nafngifta þarf vitanlega góðan smekk og örugga þekkingu á nöfnum. Að þessu leyti hefur málvitund margra Islendinga brugðizt hrapallega á síð- ustu mannsöldrum, eins og rakið verður síðar í þessu spjalli. Ef vér athugum ættartölur í Land- námu og öðrum fornritum, sjáum vér, hve einstakir nafnaliðir haldast í ættum. Þannig hétu þrír feðgar, hver fram af öðrum Þorbrandur, Asbrand- ur og Vébrandur. Þrír synir Atla jarls hétu Hásteinn, liersteirm og Hólmsíeí'nn. í Landnámu er getið um Végeir Sygnakappa. Börn hans námu land á Ströndum, en þau hétu svo: Vébjörn, Vésteinn, Véþormur, Vé- mundur, Végestur, Véþorn og Védís. Af þessum dæmum má ráða, hve ein- stakir nafnaliðir gátu sett svip á nöfn í tiltekinni ætt eða fjölskyldu. 6 Á 12. öld hjó í Laufási sá prestur, sem Þórður hét. Hann virðist hafa valið sonum sínum nöfn eftir öðrum rökum en venja var til. Synir hans hétu Hákon, Dagstyggur og Hildi- brandur. Hákonar-nafnið hafði að vísu þekkzt hér allt frá landnámsöld, en virðist þó ekki hafa verið algengt framan af. Ilugsanlegt er, að Hákon Þórðarson hafi verið látinn heita eft- ir íslenzkum manni, sem svo hafði heitið, en þó þykir mér hitt senni- legra, að nafnið hafi verið tekið úr fornum sögnum, eins og virðist vera um hina bræður hans. Vel má vera, að nafnið sé þegið úr fornaldarsögu eða öðrum kosti frá einhverjum Há- koni af ætt Noregskonunga. Um hin nöfnin getur naumast nokkur vafi leikið, að þau eru sótt í fornar bók- menntir. Nöfnin Dagstyggur og Hildibrandur sýna það ásamt með mörgu öðru, að hinar svokölluðu fornaldarsögur nutu mikilla vinsælda á 12. öld, enda höfðu margar þeirra þá verið færðar í letur, þótt fæstir fræðimenn látist nú trúa því. Nafnið Dagstyggur kemur fyrir á einum öðr- um stað, í framættartölu Sléttu- Bjarnar, sem nam land norður í Skagafirði. Enginn trúnaður verður 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.