Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Blaðsíða 41

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Blaðsíða 41
SKERPLA næstum kátur, þessa stuttu nöpru frostdaga og þessi löngu, dimmu, þögulu kvöld, sem öll voru eins. Og næturnar, með sínu ógnandi myrkri, þegar bylurinn lamdi þekjuna og norðangjósturinn kembdi visnuð sinustráin áveggjunum. Það var bara eitt, sem hafði stælt í honum kjarkinn, hresst hann og glatt, það var vonin um endalok vetr- arins, tilhlökkunin eftir vorinu, — birtunni, hlýjunni, grængresinu og fuglasöngnum. Og nú var vorið komið — og farið aftur. Þessvegna var kuldinn miklu bitrari, stormurinn naprari og frostið sárara. Hann tvísteig enn hjá hófblaða- brúskinum og hugsaði sárhryggur til allra gulu kollanna, sem biðu saman- hnipraðir þarna innan í, — biðu eftir þey, sól og sunnanátt, árangurslaust. Þarna höfðu þær fyrstu rétt ætlað að fara að opna sig og breiða út gulu blöðin sín------ Drengnum kólnaði innan og það hljóp illt í hann, — hann setti á sig stút og spýtti í vindinn. Nístingsköld hviða sletti því framan í hann aftur. Hann þurrkaði framanúr sér á úlpu- erminni og fannst hann ætla að guggna. Hverskonar veður var þetta eigin- lega? Hann stappaði niður fætinum og óð svo rakleitt út í sóleyjastóðið og braut niður hrímaðar hófblöðk- urnar, tróð og sparkaði, þangað til ekkert varð eftir nema hrúga lemstr- aðra stilka og marinna blaða, ólögu- leg beðja af svívirtum líkum sóleyja- barnanna. Drengurinn gekk spölkorn aftur á bak og virti fyrir sér spjöllin. Hvað var hann eiginlega að hangsa? Sóleyjar, ekki nema það þó, — einskisvert hismi — og hann, full- orðinn maðurinn! Hann, sem átti að ganga til kinda. * Drengurinn labbaði hægt niður túnið, setti bakið í storminn og spark- aði í hrossagaddana, sem urðu á leið hans eins og pabbi var vanur að gera. Þeir voru harðfrosnir, og taðköggl- arnir skoppuðu glettnislega á undan honum rétt eins og hann væri að leika sér að þeim. Honum þykknaði í skapi og hann steinhætti að sparka. Honum var enginn leikur í hug, — hann var ekkert barn lengur. Hann grillti til lofts og hafði hönd- ina fyrir skyggni, eins og hann hafði séð fullorðna fólkið gera, þegar það var að spá veðri. Svo mundi hann, að þetta gerði fólkið bara í miklu sólskini, og hann fyrirvarð sig. Gott að enginn sá hann. Fólkið var svo útsetið með að stríða honum þegar hann reyndi að vera fullorðinn. Nú var engin ofbirta í lofti. Það var svo auðséð að veturinn var kominn aftur. Pabbi sagði reyndar 231
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.