Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Page 60
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ur hitt, hversu bilið hefur mjókkað mikið þrátt fyrir erfiðustu aðstæður. Fyrsta og brýnasta verkefnið eftir að stríðinu lauk var að reisa úr rúst- um híbýli þeirra milljóna manna, er ekkert húsaskjól áttu sér, svo og að koma atvinnuvegunum í gang. Pól- verjar gengu að þessu starfi af slík- um eldmóði, að heimsathygli vakti. Sérstaklega vakti það undrun og að- dáun, hversu rösklega gekk að byggja upp Varsjá. Ýmsum þótti í fyrstu óráðlegt að reisa hana á hinum gamla stað. Það mundi verða miklu auðveldara og hentugra að reisa hana alveg af nýjum grunni. En almenn- ingur mátti ekki heyra annað nefnt en að endurreisa borgina á sínum gamla stað og sem líkasta því, sem hún hafði áður verið, án tillits til þess, að nýtízku byggingarlag mundi betur henta. Það var þjóðernislegt metnaðarmál. Nú er endurbyggingu Varsjár langt komið. Það er aftur risin hreinleg borg með breiðum strætum, og íbúa- talan er komin yfir eina milljón. Rúst- ir stríðsáranna eru furðu lítið áber- andi, en meðfram hinum breiðari götum standa hvarvetna ung og grönn tré. Þau gætu verið svo sem fimmtán ára. Fyrstu fjögur árin eftir striðið fóru í það að bæta mesta styrjaldar- tjónið á mannvirkjum og atvinnu- vegum. Að því búnu var loks hægt að hugsa til þess að hefja sókn til auk- inna framfara og þá fyrst og fremst að gera gangskör að því að vinna upp hina miklu vanrækslu, sem valdhaf- arnir á tímabilinu milli stríðanna höfðu gert sig seka um. Það var sam- in sex ára áætlun, er framkvæmd skyldi á árunum 1949—55, og var meginatriði hennar að leggja grund- völl að stóriðju í landinu. Þetta tíma- bil varð erfitt og fórnfrekt og lífskjör bötnuðu ekkert, heldur hið gagn- stæða, en það voru sköpuð mikil verð- mæti, sem bráðlega mundu gefa arð. Síðustu þrjú árin hefur verið slakað á klónni, lífskjör bætt til mikilla muna, en fjárfesting er þó enn mikil. Vitanlega vantar enn mikið á, að Pól- land hafi náð þeim löndum í Evrópu, er fremst standa í iðnaði, en bilið hefur mjókkað mikið. Skulu hér nefndar nokkrar tölur, er sýna, hve iðnvæðingin hefur verið hröð. A þessu ári framleiðir Pólland 6 milljónir lesta af stáli, rúmlega fjór- falt á við framleiðsluna fyrir stríð. Framleiðsla rafmagns er 6,6 föld, kolaframleiðsla 2,6 föld og sements- framleiðsla þreföld miðað við fram- leiðsluna fyrir stríð. Framleiðsla véla er orðin tvítugföld miðað við sama tíma. Á þessu tímabili hafa verið reist nokkur stór iðjuver, og er járn- og stáliðjuverið Nowa Huta þeirra kunnast. Það er meðal stærstu iðju- vera sinnar tegundar í Evrópu. Vinna þar 18 þúsund verkamenn. Þróun landbúnaðarins hefur verið 250
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.