Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Page 84
TIMARIT MALS OG MENNINGAR engu síður en sem skáld, beinn þátt- takandi í frelsishreyfingu þjóðar sinnar. Skáldið og ástin Federico García Lorca var ekki sýnt um að horfast í augu við pólitísk vandamál, en hinsvegar gerði hann sér fulla grein fyrir vandamálum kynjanna. Með hverri þjóð lýtur sam- band kynjanna hefðbundnum reglum og ber sín sérstöku einkenni, enda- þótt vandamálin séu alþjóðleg. Meðal allra þjóða eru til minnihlutastéttir, sem aðhyllast svipuð siðalögmál og áþekkar stéttir í öðrum þjóðlöndum innan sama menningarsviðs. Auk þess fylgir svo allur almenningur sín. um óskráðu en ginnhelgu lögmálum um ástir karls og konu, sínum þjóð- legu leikreglum. Lorca skynjaði og túlkaði vandamál kynjanna, eins og hinar flóknu siðvenjur þjóðar hans höfðu mótað þau og skapað. Hann var svo næmur á þær tilfinningar, sem liggja að dýpstu rótum spænskr- ar kynhefðar, að þær tvíefldust í list hans, unz hin sígildu verðmæti öðl- uðust líf og uggvænlega þýðingu. „Bændaharmleikirnir“ tveir, Bodas de Sangre og Yerma, afhjúpa á áhrifaríkan hátt þessar venjur og vandamálin sem þær skapa. Bodas de Sangre, Blóðbrullaup, er að efni einföld frásögn um ást, heið- ur og hefnd. Móðirin í leiknum syrg- ir eiginmann sinn og eldri son, sem fallið hafa fyrir morðvopnum einnar grannfjölskyldunnar. Yngri sonur hennar er ástfanginn af dóttur ekkju- manns, sem er fjáður bóndi eins og hann sjálfur. Jarðgræðgi bóndans og ósk móðurinnar um að gleyma for- tíðinni og sjá nýtt líf kvikna ráða jafn miklu og ást sonarins um það, að efnt er til brúðkaups. Stúlkan hef- ur lengi elskað einn af sonum ill- ræðismannsins, er varð föður og bróður unnusta hennar að bana. Hvorugur ungu mannanna hirðir um að halda áfram hefndarvígunum, sem aldrei líða móðurinni úr huga. Stúlk- an hefur árum saman reynt að bæla niður tilfinningar sínar og er stað- ráðin í að efna heit sitt við unnust- ann, enda hefur ástvinur hennar þeg- ar kvænzt annarri stúlku til að forða sér undan seiðmagni hennar. En hvorugt þeirra getur unað því, að annar maður fái að njóta hennar. Þau flýja saman á brúðkaupsdaginn. Annarra kosta er ekki völ. „Enn er stund blóðsúthellinganna runnin upp.“ Móðurinni er ljóst að nú er brostin von hennar um barnabörnin og að hún muni einnig missa yngri soninn, en hún hvetur hann samt til að veita elskendunuin eftirför, því morðingi vonanna verður að deyja — það verður að úthella blóði af- sprengis morðingjans, er myrti eigin. mann hennar og son. Eljararnir berj- ast og drepa hvor annan. 274
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.