Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Side 92

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Side 92
SIGFUS DAÐASON Pasternak og Sívagó Sívagó læknir var í fyrra hið stóra tromp gagnrýnenda og út- gefenda um mörg lönd. Hér var þá loksins komið framhald hinnar miklu rússnesku bókmenntaerfðar, hér lifði á ný hin margfræga rússneska sál, hér var jafnoki Tolstojs og Dostojevskís, hér var bókin sem var Rússlandi bylt- ingartímanna það sem Stríð og jriður var Rússlandi Napóleonsstyrjald- anna. Hugsjónaríkir bókmenntamenn gátu vart fundið nógu sterk orð til að lýsa listrænu ágaéti, sögulegri yfirsýn og heimspekilegri dýpt þessarar bók- ar, og þær raddir voru hjáróma sem drógu kosti hennar í efa. — En þær raddir heyrðust þó. Einn þeirra sem sýndi þá ósvífni að spilla hinu fagra samræmi lofsyrðanna var brezki rit- höfundurinn Philip Toynbee, sem lét í liós það álit að „skáldsaga Paster- naks væri mjög langt frá að geta tal- izt snilldarverk“ (something very much less than a masterpiece), og hann rökstyður þá skoðun með eftir- farandi orðum: 1 The Observer, 23. nóv. 1958. ... Persónurnar skortir greinilega „líf“. Amerískur gagnrýnandi hefur komizt svo að orði um aðalkvenpersónuna, að hún stígi „beint út úr bókum Dostojevskís. Nastasja Filipovna er fyrirmynd hennar, en drættir hennar em mildaðir tolstojskum blíðleik. Lara er sambland af Nastösju og Natösju, algerlega bókmenntaleg og ótrú- leg persóna." Ég er sammála þessum dómi, og ég hygg að Sívagó sjálfur sé jafnvel enn óraunverulegri en Lara. [...] Ég sé ekki heldur að bókin streymi í raun og sannleika áfram að settu marki, eins og svona bók verður að gera. Okkur grunar að sagan sé gerð úr brotum sem er raðað saman, í stað þess að hún streymi áfram og vaxi eins og hin miklu gömlu höfuðverk gera. Smábrota- aðferðin ber ekki sök á þessu; heldur skorturinn á allri sannfærandi þróun sem tengi brotin saman.1 Eftir að hafa lesið Sívagó lœkni í annað sinn fæ ég ekki betur séð en að dómur Toynbees sé mjög sanngjarn, og hitti beint í mark að því er varðar tæknilega útgerð skáldsögunnar. Það eru sem sé þessir tveir höfuðgallar sem mestu valda um að Sívagó lœknir er misheppnað verk frá listrænu sjónarmiði: persónusköpunin og sú 282
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.