Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Side 115

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1959, Side 115
UMSAGNIR UM BÆKUR hugsanaferill Hrafnhettu er rakinn, og verður varla óbjörgulegar að orði komizt í skáldsögu af þessari gerð. Talað er um „ljúft eitur hinna fyrstu atlota“, og verður ekki séð að það öfuginæli hafi annað inni- hald en hótfyndnina. Vart mun nokkur sem kynnzt hefur álku, langvíu, hringvíu og háttum þessara hispurslausu bjargfugla telja að höfundi takist vel að vera háfleyg- ur, þegar liann lýsir ástarsælu sögupersóna sinna með þessum orðum: „Svartfugl næt- urinnar har þau í hreiður sitt.“ Þá er sam- líking eins og þessi lítil prýði á harmrænni ástarsögu: „Konan og nóttin var (svo G. D.) hvötum hans það sama og maturinn er mag- anum.“ Hroðvirkni gætir í ýmsum smærri atrið- um. Talað er um „þetta hálfgerða hús, sem enn var ekki nema hálfgert." Oftar en einu sinni er minnzt á umslög, enda þótt þau væru óþekkt á þessum tímum, og ekki get- ur að „kveinka sín“ talizt vandað mál. Prentvillur eru margar og sumar slæmar. Magnús T. Ólajsson. íslenzk ljóð 1944—1953 Ejtir 43 höjunda. Gils Guðmundsson, Guðmundur Gíslason Hagalín og Þórarinn Guðnason völdu. Menningarsjóður. Bókai'tgáfa Menningarsjóðs á lof skil- ið fyrir að dreifa um landið í stóru upplagi úrvali íslenzkra ljóða síðustu ára. Margir halda því fram að ljóðalestur hafi þverrað hérlendis síðustu áratugi. Hvað sem því líður er víst, að mörg ljóðskáldin, einkum hin yngri, eiga erfitt með að koma verkum sínum á framfæri. Ekki er fátítt að þau verði að gefa út bækur sínar á eigin kostnað, með öllum þeirn tormerkjum á kynningu og dreifingu sem slíkri útgáfutil- högun fylgja. Með útgáfu þessa safns er gerð gangskör að því að nokkur ljóð margra skálda, sem gefið liafa út eða fengið gefnar út bækur sínar í nokkrum hundruðum eintaka, komi fyrir augu tugþúsunda lesenda. Þegar í slíkt þjóðþrifafyrirtæki er ráðizt veltur á miklu að framkvæmdin takist vel, en á það þykir mér nokkuð skorta. í sjálfu sér getur verið fróðlegt að fá í hendur úrval sniekk- vísra manna úr ljóðagerð eins áratugs, en þegar um það er að ræða að kynna stórum lesendahóp í fyrsta skipti ljóðlist samtím- ans, er sá rammi alltof þröngur. Það er til- viljun háð hver hluti af ævistarfi góðskálds kemur út í bókarformi á einum áratug. Iljá einum getur þetta tímabil verið hnignunar- skeið, öðrum blómatími, þriðja hlé milli stórra átaka. Fjölmennasta bókmenntafélag landsins má ekki láta kylfu ráða kasti, þegar það tekur sér fyrir hendur að kynna samtíma ljóðagerð, þar á hvert skáld heimtingu á að verk þess komi öll til álita. Eitt dæmi úr bókinni nægir til að sýna hvílík spenni- treyja hinn þröngi rammi getur verið. Það eina sem þar er birt eftir Stein Steinar er Tíminn og vatnið. Hvaða hugmynd gefnr það verk lesanda, sem áður hefur lítil eða engin kynni af ljóðum Steins, um spenni- víddina í list hans? Um val einstakra ljóða má deila enda- laust. Yfirleitt má segja að þeim þremenn- ingum liafi tekizt vel valið úr þeim bókum þjóðskáldanna sem til greina komu. Vafa- samara er hvort sauðir liafa verið réttilega skildir frá höfrum meðal stærri spámanna gamla skólans. Mér þykja líflitlar, síðróm- antískar eftirhreytur skipa alltof mikið rúm. Smn Ijóðin um breytileik árstíðanna, aldurinn sem færist yfir og aðrar saknaðar- stemningar eru ósköp lík hvert öðru. Mál- skrúðið ber ljóðlistina ofurliði: tímarit máls oc mennincar 305 20
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.