Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Side 90

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Side 90
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR raddir úr gröfunum fléttast hver inn í aðra og gefa samfellda mynd af mannlífi bygg'ð- arlagsins. Magnús Asgeirsson þýddi ljóð úr flokki Masters. Ósagt, skal látið hvort þær þýðingar hafa átt þátt í að til varð bók sú eftir annað borgfirzkt skáld sem hér er til umræðu, en sé samband á milli radd- anna úr gröfunum vestur undir Klettaf jöll- um og lýsinga Guðmundar Böðvarssonar á þeim sem byggja nokkur leiði í íslenzkum kirkjugarði, er það af því tagi sem ekki verður þverfótað fyrir í skáldskap fyrr og síðar og á ekkert skylt við stælingu, aug- ljós tengsl milli rammanna um verkin en innihaldið ólíkt. Guðmundur hefur ort flokk 22 ljóða, og í hverju um sig eru rakin fáein atvik úr lífi einstaklings eða fjölskyldu frá liðinni öld. Um þetta myndasafn lykja svo tvö ljóð, inngangur um mannlegan breyskleika og eftirmáli þar sem skáldið þakkar frásagnir langminnugs föður af fyrri mönnum. Eru sögurnar af garðbúum skáldskapur eða sannfræði? Eg hef það fyrir satt að þær séu sóttar í veruleikann, og byggi það ekki aðeins á lokakvæði bókarinnar, heldur á því að svipað safn mætti draga saman úr sérhverju íslenzku byggðarlagi þar sem ég þekki til. Ef við skyggnumst hvert um sína sveit, kemur þá ekki í ljós að margt það atvikið og tilsvarið sem skýrast sýna fjöl- breytileika mannlegs hátternis og við- bragða fá sjaldnast varaulegri búning en þann sem felst í munnlegri frásögn? Tepru- skapur af ýmsu tagi kemur allajafna í veg fyrir að nærmynd af manninum á þeim stundum þegar hann varpar rækilegast af sér grímu hversdagsleikans fái að festast á pappír, hvað þá að komast á prent. Svo gleymist sagan, þegar næsta kynslóð fylgir á eftir undir græ.na torfu. Glansmyndagerð sýndarmennskunnar fær ekkert rúm í kvæðum Guðmundar. Hann þorir að sjá það sem er. Það eru ekki margir drættir í mynd Gróu frá Norðurá, en hún er þó eins skýr og á verður kosið. Atvikin sem einkenna hana eru þegar hún skýlir nekt sinni með taðflögu þar sem gestir koma að henni óvörum meðan hún er að reka úr túni á næturþeli, og dauði liennar fram á skammorfið við að rista torf í brunninn bæ sonar síns. Þetta nægir, per- sónan verður ljóslifandi, íslenzk sveitakona af gerð sem nú er víst útdauð. Eða þá drottinvaldi ágimdarinnar yfir hinum vígða manni, sem notar líkræðuna til að úthúða Sæmundi í Seli fyrir greiðasem- ina við fátæka, af því að hann hafði látið greiðslu leigunnar af kirkjujörðinni sitja á hakanum fyrir því að metta svanga munna. Þá er það hann Vigfús í Víðikeri, sem reyndi að hengja sig í fjósinu af harmi eft- ir hross, en horfði aðgerðalaus á Soffíu konu sína aðframkomna í vök. Og ekki má gleyma Oddi í Garði, sem ellihrumur afl- aði sér fóðurs fyrir skepnurnar og matfanga til búsins með því að gangast við bömum fyrir menn í mörgum sveitum gegn hæfi- legri þóknun. Þetta er ramíslenzkur frásagnarsmekkur, einkenni allra okkar sagnameistara frá Sturlu Þórðarsyni til séra Árna Þórarins- sonar. Þeir eru aldrei að hugsa út í það hvort frásagnarefnið sé uppbyggilegt og pent, það er háttur hins skólans, munkanna Odds og Gunnlaugs og andlegra afkom- enda þeirra allt fram til Kristmanns og Kristjáns Albertssonar. Einkenni þess ætt- boga er hin heilaga rangfærsla og kámuga tæpitunga. Þar sem hið sögulega fær að njóta sín án allra annarlegra tillita birtast mannleg- ar eigindir ófalsaðar, mannvonzkan og góð- vildin, harkan og mildin, einbeitnin og ístöðuleysið, nízkan og örlætið. Af þessu tagi em saltkomin sem hann Guðmundur hefur fundið í moldinni. Búningur kvæðanna í bókinni er látlaus 80
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.