Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Síða 98
Tímarit Máls og menningar
ritsins. Tómas Guðmundsson hefur séð um
útgáfu ritsins og það ráð var tekið að
sleppa úr nokkrum innskotsköflum og bæta
við tveim köflum, sem eru um Gísla Brynj-
úlfsson og Jón Sigurðsson, sem var vel
ráðið. Aftur á móti er ekki getið um fyrri
útgáfu aftan á titilblaði, eins og siðvenja
er.
Utgefandi segir í eftirmála að Séð og
lifað sé skemmtilegust þeirra minningar-
bóka, sem Islendingar hafa skrifað, sá
dómur er ef til vill nokkuð hæpinn, sé
Dœgradvöl Gröndals höfð í huga, en vissu-
lega er Séð og lifað mjög skemmtileg bók.
Húmor Gröndals var af öðrum toga en
húmor Indriða, það vottar hvergi fyrir
þeim gálgahúmor hjá Indriða, sem Grön-
dal tíðkaði. Indriði var konunglegur em-
bættismaður hvar sem hann var, 19. aldar
maður í beztu merkingu orðsins, en Grön-
dal var 19. aldar bóhem og lét margt
flakka, sem Indriði hristi höfuðið yfir.
Dœgradvöl er bundnari persónu höfundar-
ins heldur en Séð og lifað, sem er einnig
að nokkru stjórnmálasaga tímabilsins og
stórmerkileg menningarsöguleg heimild.
Æskuminningar Indriða eru meðal beztu
kaflanna í bókinni og lýsing hans á endur-
komunni í Skagafjörð (bls. 283-84) er
hrein lyrík. Mannlýsingar Indriða eru ein-
stakar og það rnyndi mikið skorta, ef þær
væru ekki. Lýsingar atburða horfinnar
aldar verða ljóslifandi í frásögn lians.
Hvergi kennir neinnar beiskju enda var
hann þannig skapi farinn að fáir urðu til
þess að óvingast við hann, hann virtist
alltaf í góðu skapi, leitaði sólskinsblett-
anna, alltaf kurteis og korrekt. Það var
alltaf bjart í kring um Indriða og minn-
ingar hans eru jafn bjartar og heiðar og
honum var himinninn yfir Skagafirði, 6em
hann unni svo mjög.
Siglaugur Brynleifsson
LykiIIinn aö nýjum heimi
Þér lærió nýtt tungumál á 60
LINGUAPHONE
Tungumálanámskeió á hljómplötum eóa
segulböndum tií heimanáms:
ENSKA. ÞÝZKA, FRANSKA, SPÁNSKA,
PORTUGALSKA. ITALSKA, DANSKA.
SÆNSKA, NORSKA, FINNSKA.
RÚSSNESKA. GRlSKA. JAPANSKA o. fl.
Aíborgunarskilmálar
Hljóðfœrahús Reyhjauihur Laugauegí 96 fimi. I 36 36
208