Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 72
Tímarit Máls og menningar „Mörkespil“ (1967) og „Roman“ (1968) vann Vagn Lundbye fyrst og fremst að sjálfu skáldsöguforminu. Bækurnar eru ekki með sama hætti í innra samhengi í tíma og rúmi og hefðbundnar skáldsögur. Þeirra sam- hengi er einkum tengt formi málsins, sem vísar á mynd sögumanns. Þó að þær komi í upphafi ruglingslega fyrir er lesandinn með ýmsum áhrifa- miklum stílbrögðum einatt hvattur til að skapa samhengi, röð og reglu — hér er um að ræða opna, „lýðræðislega“ skáldsögu, þar sem höfundur vísar óbeint á bug þeirri hugmynd bókmenntastofnunarinnar að hlutverk skáldsins sé að túlka óvirkum lesanda tilveruna af snilli sinni og inn- blæstri. Best hefur þessi frásagnartækni heppnast í „Roman“ — atburða- snauðri lýsingu á tveim mönnum, sem flytja nautgripi, og konu í íssjoppu úti í skógi. Bók sem smám saman þróast til dauðasýnar með heimsenda- myndum og ofbeldishrolli. Dauðinn er líka sameinandi tákn í næstu bók Vagn Lundbye, „Nico“ (1969), sem er um leið sú bók hans sem er síst bundin hefð, að minnsta kosti að því er varðar uppbyggingu: tvisvar í bókinni er sama Ijósmyndin af beat-söngkonunni Nico endurtekin 16 sinnum. Vagn Lundbye finnur í söng Nico hringsól umhverfis dauðann, og fegurð hennar og fegurð tón- listarinnar verður honum fegurð tortímingar. Textar þessarar bókar lýsa einnig skyndireynslu af fegurð sem er oftast tengd við ofbeldi eða dauða. Og þó rís af síðum verksins draumur Nico um mannlegt samfélag og nýtt mennskt tungutak. Draumurinn um samfélag, bræðralag sem við ríkjandi aðstæður verður byltingarhugmynd, er sú hugsjón sem mestu ræður innan hóps pólitískra hermdarverkamanna sem koma fram í skáldsögunni „Smukke tabere“ (1970) sem samin var fyrir danska útvarpið. Sagan er lögð í munn eins af meðlimum hópsins sem í fimmtíu dagbókarfærslum skýrir frá baráttu þeirra félaga við fjendur, utan hópsins sem innan. Næstum því allur hóp- urinn fellur í baráttunni (við her ríkisstjórnar), en það tekst samt að fram- kvæma áætlun hans: sprengjuárás á kjarnorkuver. I rás viðburða lifir hóp- urinn það að hugsjón hans um samræmisfullan samleik manna rætist. Með þessari skáldsögu snýst gagnrýni Vagn Lundbye á ríkjandi hug- myndafræði yfir í leit að undirstöðuatriðum nýrrar pólitískrar vitundar. Það er engin tilviljun að umhverfisverndarskæruliðar sögunnar leiða helst hugann að indíánum, því að indíánar eru lykilpersónur í síðari hluta höf- undarverks hans, enda eru það þeir sem mest þjást í hinu núverandi valda- kerfi vesturlanda. 182
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.