Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Blaðsíða 76

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Blaðsíða 76
Tímarit Máls og menningar hefði í rauninni aðeins verið eitthvað sem þau ímynduðu sér. Draumur eða martröð sem þau vöknuðu nú upp af. Nema þetta væri árangurinn af því að þau höfðu fram til þessa látið sem hann væri ekki til. Árangur sem þau áttu sem sagt öll sinn hlut að og sem í stuttu máli þýddi að þau höfðu losnað við hann. Eða réttara sagt, að þau höfðu ekki aðeins losnað við hann heldur útrýmt honum svo gersamlega að hann hafði í rauninni aldrei verið til. Eins og raunin var á með dverga- og tröllalíkneskjurnar sem þau höfðu rekist á í hrauninu en sem nú voru aðeins til sem skuggar á gljá- andi iitfilmum þeirra. Það yrði eiginlega þá fyrst, þegar leiðsögukonan spyrði að venju í há- talarakerfi rútunnar hvort einhvern vantaði, að bæði léttirinn og ráðaieysið vegna fjarveru litla mannsins leiddi til sýnilegra og sameiginlegra viðbragða. Einn hinna framtakssömu spyrði varlega hvort það vantaði ekki litla manninn í gráu gaberdínfötunum og þar af vaknaði vissan um þetta til lífs og breiddist út um rútuna. Jú, það virtist sem hann vantaði, en ætli hann hafi ekki aðeins gengið erinda sinna og komi hlaupandi eftir andartak. Hann vildi nefnilega helst ekki með inn í hraunið svo varla gæti hann verið langt undan. Ef bílstjórinn lægi nú nógu lengi á flautunni skyti hann örugglega upp kollinum. Hægt og sígandi yrði ekki aðeins lesandanum eða áhorfandanum heidur einnig öllum í rútunni ljóst að hann kæmi ekki. Og það af þeirri einföldu ástæðu að hann væri horfinn. Það sem í fyrsm hafði verið þeim léttir og í hæsta máta skapraun breyttist nú óðfluga í gremju. Það vantaði bara að maður þyrfti nú líka að þola hvarf hans. Og ekki bætti það úr skák að þetta gat vel orðið tii þess að þau næðu ekki vélinni til Reykjavíkur á Akureyri. „Svei mér þá ef hann hefur ekki farið inn í hraunið upp á eigin spýtur,“ sagði lögfræðingurinn frá Kaupmannahöfn titrandi röddu. „Já, en þá skil ég ekki af hverju hann sat eftir í rútunni þegar við hin fórum öllsömul,“ hrópaði norðmaður nokkur. Við útgöngudyrnar stóð holdugur þjóðverji og tjáði bílstjóranum og leiðsögumanninum að hann þyldi ekki að ganga meira í dag, en hins vegar lægi það í augum uppi að það væri nauðsynlegt að senda nokkur hinna inn í hraunið í leit að þeim týnda. Að lokum töluðu allir í einu. En þau gerðu sér fyrst raunverulega grein fyrir því hve ástandið væri alvarlegt þegar leiðsögumaðurinn lýsti yfir því í hátalaranum á dönsku, ensku, þýsku, frönsku og íslensku að það yrði 186
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.