Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Síða 113
Þekkingin, bugmyndir og skoðanir
og hverjir eru stalínistar? Ég veit ekki
um nein samtök eða hópa manna sem
sjálfir kenni sig við Stalín, en hins veg-
ar við Lenín og Marx og Maó. Stalín
hélt reyndar sjálfur einhvern tíma fróð-
lega fyrirlestra um lenínisma og hefur
sjálfsagt talið sig framkvæma þá stefnu
í sinni valdatíð. Á þeim árum var hann
jafnan nefndur félagi Stalín. Stalínismi
gæti þá verið s. s. lenínismi eða s. s.
marxismi plús alræði öreiganna. Og er
ekki vert að fara lengra út í þá sálma.
Ég tek annað dæmi um orðið efnis-
hyggja, sem ætla mætti að væri alger-
lega fræðilegrar merkingar og er það
auðvitað hjá Þ.V. Efnishyggja er heim-
spekiskoðun sem lítur á efnið sem hið
upprunalega, gagnstætt hughyggju. En
orðið er oft notað í íslenskri stjórnmála-
umræðu í allt annarri merkingu. Ég
heyrði t. d. fyrir allmörgum árum ís-
lenskan forsætisráðherra í áramótaræðu
nota það nánast í merkingunni: ágirnd.
Þetta varð ljóst af samhengi ræðunnar.
Og auðvitað var efnishyggjan rót alls
ills.
Ég hef haldið mig að mestu við eitr
atriði í ritgerð Þ.V., þ. e. a. s. líffræðina,
þó að þekking mín í þeirri fræðigrein
sé að vísu af skornum skammti. En það
er vegna þess að hún snertir náið lífs-
skoðanir manna og hugmyndir um sjálfa
sig.
Það mætti halda lengi áfram að ræða
um heimspeki og lífsskoðanir og ekki
síst þjóðfélagsmál í framhaldi af grein
Þorsteins Vilhjálmssonar og það munu
eflaust aðrir gera. En hér má vera amen
eftir efninu og læt ég því staðar numið
að sinni.
Mars 1978.
Ádrepur
Vramhald af bls. 122.
nefndir og ráð borgarinnar. Sú hætta leynist oft í fjölflokkastjórn að fugla-
hrasðupólitíkin verði allsráðandi, þannig séu menn settir í stöður eingöngu til
að útiloka annan eða valda þá sem fyrir eru. Að sjálfsögðu verður ekki hjá
því komist að ný stjórn ráði sér sína trúnaðarmenn, því án trúnaðar er ekki
hægt að stjórna borg eins og Reykjavxk.
Hin spurningin er þó miklu mikilvægari. Hvert verður hið pólitíska leiðar-
ljós nýja meirihlutans? Verður leiðarljósið róttæk umsköpun borgarlífsins,.
þannig að lífið öðlist hér nýtt gildi og auðveldi efnahagslega afkomu alls þorra
almennings? Eða verður borginni bara vel stjórnað?
Eitt af stærsm vandamálum borgarinnar er atvinnuuppbyggingin sem hefur
farið úrskeiðis undir fargi einkaframtaksins. Atvinnulíf hérlendis er alltof
sveiflukennt, árstíðabundið og um leið fjármagnsfrekt vegna nýtingarvand-
kvæða til að einkaframtakið ráði sæmilega við það. Það er skylda hvers sam-
félags að útvega sérhverri vinnufúsri hendi atvinnu, og það er hægt að gera
223