Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Page 48

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Page 48
Ámi Sigurjðnsson Hugmyndafræði Alþýðubókarinnar Sósíalísk grundvallarsjónarmið Alpýðubókin, ritgerðasafn Halldórs Laxness, sem kom út árið 1929, er athyglis- verð bók fyrir það meðal annars að hún markar greinileg skil í hugmynda- fræðilegri þróun höfundarins. Eftir „nýrómantískt" og hamsúninnblásið tíma- bil í æsku skrifaði hann framúrstefnuskáldsöguna um vefarann Stein Elliða. Alþýðubókin aftur á móti sýnir að nú er fáni sósíalismans dreginn að húni. Bókin er hvatskeytlega skrifuð og það m.a. gerir hana skemmtilega og eykur jafnframt heimildagildi hennar um hugmyndir skáldsins. Halldór hefur sagt að hann hafi aldrei verið marxisti. Hann gekk ekki í Kommúnistaflokk íslands, en var meðal stofnenda Sósíalistaflokksins árið 1938. Stjórnmálaafstaða Halldórs á þessum árum hefur verið ýmsum hugleikin; kúvendingar hans ollu vonbrigðum, og sumir álíta að hann hafi reynt að falsa fortíð sína eftir á og gera lítið úr stjórnmálaafskiptum sínum.1 Astæðan er náttúrlega sú að hann er og hefur verið „mikilvægur“, orð hans vógu þungt, og minni spámenn eltu hann, — sumir hvert fótmál. Hér er hvorki ætlunin að fjalla um síðari túlkun skáldsins á stjórnmálafortíð sinni né neitt sem sumir vilja kalla „svik“ hans. En tvær ástæður valda því að mér þykir fróðlegt að gæta að hugmyndaþróun Halldórs þessi ár mikilla stjórnmálaátaka. Slík athugun getur dýpkað myndina af hinum frábæru skáldsögum hans frá þessum tíma, og hún getur orðið vinstrihreyfingunni að liði við að skilja sjálfa sig. Þegar rætt er um hvort Halldór hafi verið sósíalisti á tíma Alþýðubókarinnar má byrja á því að vitna í orð hans sjálfs um það efni. Hann kemst nefnilega svo að orði í bréfi frá 1929 að hann sé „kommúnisti, sósíalisti, single-taxer, sam- vinnumaður og aristókrati".2 Hann gaf Alþýðuflokknum bókina til útgáfu, sem er nokkur vísbending um að hann hafi talið hana í anda jafnaðarstefnunnar. í formála fyrstu útgáfunnar eftir Jakob Smára segir, að enda þótt bókin beri fram málstað jafnaðarmanna og boði þjóðskipulag jafnaðarstefnunnar, þá sé nú ekki víst að alþýðuflokksmenn geti skrifað undir allt sem Halldór segi t.d. um listir og trúmál. Halldór skrifar sjálfur í formálanum frá 1945 (2. útg.) að bókin sé ekki sósíalískt rit nema hvað varði nokkur grundvallarsjónarmið (í 4. útg. bls. 13; 38
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.