Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Side 57

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Side 57
Hugmyndafrceði A Ipýðubóka rinna r sinn hinzta draum um framleiðslu myndar á einum fleti. Og hvað skyldum vér framar geta á kosið og hvers krafist af mynd fram yfir eiginleikann til að herma útlit hlutanna eins og þeir birtast fyrir hinni almennu sjón, hinu óeinstaklings- bundna auga? Eða er hugsanlegt, að túlkun einstaklings á sýnum geti tekið fram hinu ópersónulega tilverugildi hinna séðu hluta? — M.ö.o. er hugsanlegt, að menn geti búið til betri myndir af guðs skepnu en guðs skepna er í raun og veru?“ (175—6) Þessi rökleiðsla er ákaflega gott dæmi um fagurfræðilega endurspeglunar- kenningu. Þessa fagurfræði, eða eitt af afbrigðum hennar, má túlka þannig: hlutur (veruleiki) — hugmynd listamanns verk listamanns hugmynd viðtakanda Brotin ör táknar skynjunarferli en heil ör táknar túlkunarferli. Gefið er: 1) Skynjunarferlin gerast án truflana nema skynjandinn gangi ekki heill til skógar; 2) skynjunarferlin gerast þannig að sá sem skynjar er þolandi ferlisins (skynj- unin felur ekki í sér neina túlkun); 3) eini hugsanlegi tilgangur listframleiðslu er eftirlíking; 4) það sem verkið, a.m.k. myndverkið, reynir að líkja eftir eru einkum hlutir, þ.e.a.s. áþreifanleg fyrirbæri (í tónlist: sönghæf lög, í lausamáli: endursegjanlegar sögur, í höggmyndalist: fígúratífar styttur o.s.frv.). Af þriðju forsendu þessatar endurspeglunarfagurfræði leiðir að framleiðsla listaverksins er skilin sem túlkun en ekki sköpun, líkt og var í kristinni miðaldafagurfræði en hins vegar andstætt fagurfræði rómantíkurinnar, þar sem gert var ráð fyrir að snillingurinn skapaði líkt og guð. Góður listamaður getur þess vegna, samkvæmt þessu viðhorfi, ekki sagt neitt sem ekki var þegar til í veruleikanum (þótt hann geti vakið athygli á hlutum), en heppnist verkið er þ>að eins konar afsteypa af veruleikanum. Af þessari þriðju forsendu leiðir einnig að ef listaverk misheppnast þá gildir eitt af þrennu: 1) listamaðurinn skynjar vitlaust; 2) listamaðurinn túlkar vitlaust það sem hann kann að skynja rétt; 3) viðtakandinn skynjar vitlaust það sem listamaðurinn kann að skynja rétt og túlka rétt. En að sjálfsögðu er yfirleitt ekki gert ráð fyrir þessu síðasta, enda er það almennt einkenni pósitífískra mannvísindamanna að gleyma að taka sjálfa sig með í reikninginn og halda að það sem þeir sjái sjái allir aðrir eins. Endurspeglunarfagurfræðin er líka hin tegundarhreina fagurfræði pósitífism- ans, og eitt einkenna hennar sem fagurfræði er að hún miðar allt við verkið sjálft og hefur tilhneigingu til að gleyma, svo ég noti orðalag W. Iser, að verkið verður ekki verk fyrr en það hefur verið skynjað. 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.