Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Qupperneq 98
Tímarit Máls og menningar
og ný stjómlist er að líta dagsins ljós, sem boðar að kjarnorlcustyrjöld sé að verða
„hugsanleg" og jafnvel stefnt að henni. Menn hafa lengi íhugað slíka stjórnlist í
Pentagon, stjómlist sem felur í sér hugmyndir um árás á hernaðarmannvirki
(counterforce) og um „svæðisbundið" (limited) eða „leikvangs“-kjarnorkustríð
(„theatre" nuclear war).
Líklegasti vettvangurinn fyrir slíkt „leikvangsstríð“ er Evrópa (bæði austurs
og vesturs). Nató líkti eftir slíku stríði í æfingum 1977. Til þess að mæta árás
„hefðbundins" sovésks liðsafla á Vestur-Þýskaland, gaf Haig hershöfðingi út
tilskipun um að svara fyrst með svæðisbundinni kjarnorkuárás á flugvelli og
birgðaflutningaleiðir í Austur-Þýskalandi, Tékkóslóvakíu, Ungverjalandi,
Rúmeníu og Búlgaríu. Þegar því var lokið var gert ráð fyrir að Sovétmenn
hættu við þessa hefðbundnu árás og fallist yrði á vopnahlé. Og þó höfðu margir
hermálaráðgjafar varað við því, að sérhver kjamorkuárás leiddi umsvifalaust til
algjörs kjarnorkustríðs.
Kjarni málsins er sá, að sumir bandarískir ráðgjafar telja það hugsanlegt,
pólitískt og herfræðilega (og skipuleggja jafnvel og han'na vopn til þess) að
heyja „leikvangsstríð“ í Evrópu, sem Bandaríkin kynnu að „sigra í“ með litlum
skakkaföllum heima fyrir. Og slíkir ráðgjafar þyrpast nú að Reagan forseta og
stjórn hans.
Mér virðist sem þér og margir baráttumenn fyrir mannréttindum austantjalds
viljið jafnvel ekki taka þessi mál á dagskrá, enda þótt um þau séu itarlegar
heimildir. Þér vísið allri umræðu frá yður — og neitið í raun og veru að líta á
málavöxtu — með því að saka okkur um fylgisspekt við „tilslökun“ og dragið
heiðarlegan tilgang okkar í efa. Fyrri röksemdin er að mínum dómi á misskiln-
ingi byggð; ég verð að játa að mér þykir sú síðari óviðkunnanleg.
Þér setjið fram tvískipta heimsmynd: hér ríkir kommúnísk „alræðishyggja“
og þar er hið „frjálsa vestur“; hollusta við aðra hvora blokkina felur um leið í sér
stuðning við hernaðarlega stjómlist hennar. Eru ekki aðrir möguleikar fyrir
hendi? Hefur sagan nokkurn tíma verið svona einföld og snyrtileg?
Þér byggið málflutning yðar á „Uppruna alrcedis“ eftir Hannah Arendt og
trúið á þá bók eins og biflíu. Hún er yðar Auðmagn (das Kapital). Ég er orðinn
langþreyttur á þeirri trú á algildar kenningar, hvort sem hún er „marxísk“ eða
„and-marxísk“ sem neitar með sönnunum að hleypa sönnunum að í umræð-
unni (ég mundi senda yður Örbirgðkenninga (Poverty of Theory) eftir mig, ef ég
vissi ekki að hún mundi týnast í póstinum). Þér neitið að ræða ótvíræðar
heimildir um hervæðingu á meginlandi okkar nú á dögum, vegna þess að
88