Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Page 103
Frelsið og sprengjan
að hann hafi verið einfaldur friðarsinni sem var blekktur. Aðrir sagnfræðingar
hafa sett fram þá tilgátu að Chamberlain hafi vonast til að geta frekar beint árás
nasista frá vestri í austur. Sú skýring mundi að minnsta kosti hreinsa Hogg af
öllum áburði um ósamkvæmni.
Asökun yðar er líka sársaukafull fyrir þá sök að kynslóð mín, sem engan þátt
átti í „Múnchenarsáttmála“, lagði talsvert af mörkum til að bæta fyrir þau
mistök næstu árin. Margir samferðamenn mínir dóu fyrir þann málstað að
leiðrétta þessi glöp. Eg vona að þér hafið þá hreinskilni til að bera að viðurkenna
þátt evrópskra vinstrimanna í þeirri dýrkeyptu endurreisn.
Eg rifja þetta tvennt hér upp til þess að minna yður á þá hefð sem ríkt hefur
um samstöðu milli þjóða okkar í baráttu við harðstjórn og að vinstrimenn hafa
átt þar hlut að málum. Þér ættuð ekki að loka augunum fyrir því.
Þá er ásökun yðar sársaukafull sökum þess aðþessi áburður, og það frá Te'kka,
er það sem kætir andstæðinga okkar mest. Sú staðreynd að andófsmaður í Prag
ber hana fram hlýtur að vera endanleg sönnun sem gerir frekari rök óþörf. Þér
hafið slegið þessu spili fram, en vitið þér hvaða maður (eða eldflaug) ætlar að
hirða slaginn?
Loks er þessi ásökun sársaukafull vegna þess hvernig hún er sett fram. Að yðar
dómi er afvopnunarhreyfing okkar
mjög áhrifaríkt afl, sem vinna mun óafvitandi í þágu alræðiskerfis sem stefnir að
heimsyfirráðum, byggðum á afnámi allra mannréttinda.
Ekkert gæti verið einfaldara eða fallegra. Hvað sem við segjum og hugsum og
staðhæfum hlýtur þetta að verða hlutskipti okkar.
Utrætt mál. En . . . hægan nú. Væru nú ekki hæg heimatökin fyrir yður að
minnast gagnrýnenda yðar samfélags sem samkvæmt opinberum málflutningi
urðu að „vissum öflum“ sem, hver sem tilgangur þeirra var, lögðu „óafvitandi“
vestrænni heimsvaldastefnu lið ... urðu síðar „raunverulegir gagnbyltingar-
sinnar" ... og voru að lokum „afhjúpaðir“ sem handbendi gagnbyltingarafla?
Mér er það ekki að skapi að beita rökum sem þessum. Það er hluti af sjúklegri
lygi þessa heims að sérhver sem ekki tilheyrir beinlínis öðrum „herbúðunum" er
„óafvitandi“ eða „raunverulega“ liðsmaður í hinum. Og þar sem allt; ljóðlist,
ritgerðir, viðmót, er gert að gjaldmiðli kaldastríðsins. Það er orðið timabært að
við skiptumst á skoðunum með betra hugarfari, tökum við og bregðumst við
reynslu hvor annars; treystum málflutningi hvor annars.
Baráttuhreyfingin fyrir kjarnorkuafvopnun í Evrópu býður engum tilslökun og
93